Fréttablaðið - 07.06.2017, Blaðsíða 9
Eins og flestir vita, var Albert Einstein einn mesti stærðfræð-ingur, eðlisfræðingur og hugs-
uður síðustu aldar. Hann setti m.a.
fram afstæðiskenninguna, og þegar
hann var spurður, hvað afstæða væri,
var svarið þetta: „Ef þú situr með fal-
legri stúlku í tvo tíma, er það eins og
ein mínúta, en, ef þú situr á heitum
ofni í eina mínútu, er það eins og
tveir tímar.“
Það, sem ég vil fjalla um hér, er þó
önnur og nokkru alvarlegri tilvitnun
í Einstein:
„Ef þú gerir sama hlutinn aftur
og aftur og reiknar með breytilegri
niðurstöðu, þá er það vitfirra.“
Gengið fallið 40 sinnum
Mér er sagt, að krónan hafi fallið 40
sinnum frá 1950. Þessi fjöldi er ekki
aðalmálið, heldur þau vandræði
fyrir einstaklinga, fyrirtæki og aðra
– á stundum sá stórfelldi sársauki og
kvöl – sem þessar sviptingar á gengi
og verðgildi krónunnar hafa haft í
för með sér fyrir flesta landsmenn,
auk þeirra miklu vaxta, sem óstöð-
ugri krónu hafa fylgt og þjakað hafa
lántakendur og skuldara.
Þrátt fyrir þetta – þrátt fyrir síðasta
heljarstökkið 2008 og fárið, sem því
fylgdi – er eins og stjórnendur gjald-
miðils- og peningamála á Íslandi
hafi ekkert lært. Þeir gera það sama
aftur og aftur í gjaldmiðilsmálum,
halda krónunni úti með sama hætti,
en virðast reikna með nýrri og betri
útkomu í hverri nýrri tilraun.
Þetta á við um stjórnendur Seðla-
banka og stjórnendur landsins, hvert
teymið á fætur öðru. Ef Einstein
hefur á réttu að standa með kenn-
ingu sína, er þetta ekki góður vitnis-
burður eða dómur yfir stjórnendum
þessa lands.
Hvernig á ekki að leysa vandamál
„Þú getur aldrei leyst vandamál með
sömu hugsun og vandamálinu olli.“
Þetta er líka kenning, sem Einstein
setti fram, og ég hygg, að flestir hljóti
að sjá, að er rétt. Þessi sannindi hafa
greinilega ekki náð til stjórnenda
gjaldmiðilsmála á Íslandi. Þeir lemja
höfðinu við steininn og ganga glað-
beittir fram á fundum og fullyrða:
„Krónan bjargaði okkur úr hruninu.“
Sannleikurinn er auðvitað það and-
stæða; Það var krónan, sem kom
okkur í hrunið. Ef við hefðum verið
með evruna, í stað krónunnar, og í
ESB, hefðum við aldrei lent í hruninu
með þeim hætti, sem varð; Evrópski
seðlabankinn og björgunarsjóðir
Evrópu/ESB hefðu bjargað okkur frá
því versta, eins og öllum öðrum ESB-
löndum.
Af hverju er krónan handónýt?
Ég hef líkt krónunni við 30 tonna
fiskibát á úthafi gengis-, gjaldeyris-
og efnahagsmála, sem auðvitað
hendist til og sveiflast upp og niður
í þeim stormum, sem þar geisa, og
flýtur alvarlega laskaður, í bezta falli,
meðan evran er eins og 50.000 tonna
hafskip, sem allt stendur af sér.
Í Bergen í Noregi eru um 340.000
íbúar, sem lifa mikið á fiskveiðum
og ferðamennsku. Gætu þeir verið
með eigin gjaldmiðil? Gætu verið
sautján gjaldmiðlar í Danmörku, en
Danir eru sautján sinnum fleiri en
við? Hvernig í ósköpunum eigum
við, 340.000 manns, að geta haldið
úti stöðugum og traustum gjald-
miðli, með lágmarksvöxtum, þegar
meira að segja Þjóðverjar, með sitt
ofursterka þýzka mark, ákváðu að
styrkja sitt efnahagskerfi enn betur
með upptöku evrunnar?
Skilja þetta allir nema við?
Allar aðrar smáþjóðir Evrópu, fjór-
tán talsins, hafa tekið upp evruna.
Þetta eru allt stoltar og sjálfstæðar
þjóðir, eins og við, en þær skilja að
á þessum tímum samþjöppunar
heimsins og alþjóðlegra fjármála-
kerfa verða þeir, sem skyldir eru
og svipuð eða sömu lífsviðhorf og
menningu hafa, að standa saman og
stilla sín kerfi og tæki saman með
sameiginlega hagsmuni og öryggi
fyrir augum.
Í raun og veru er gjaldmiðill verk-
færi eða tæki, sem ekkert hefur með
þjóðerni að gera; Menn geta því
gleymt öllum þjóðernistilfinningum
og þjóðarmetnaði hér.
Kenning Einsteins um vitfirru;
Á hún við um krónuna?
Ole Anton
Bieltvedt
alþjóðlegur
kaupsýslu-
maður
Borg verður óbyggðir, barnið er stuck þar,“ syngur Kött Grá Pje í lagi dags rauða nefsins og vísar
til milljóna barna sem eru fórnarlömb
átaka og ofsókna um allan heim. Við
berum öll ábyrgð á þessum börnum
og alveg sérstaka ábyrgð berum við á
börnunum sem dvelja hér á landi. Þau
sem komast loksins í öryggi eftir langt
og strangt ferðalag.
Mannréttindi barna alls staðar
UNICEF leggur ríka áherslu á að
mannréttindi barna séu virt hvar
sem þau eru stödd í heiminum.
Barnasáttmálinn á alltaf við um öll
börn. Um 50 milljónir barna búa
nú utan fæðingarlands síns og þar
af eru 28 milljónir á flótta undan
átökum, og börnum sem eru ein á
ferð fjölgar hratt. Þau leita að fjöl-
skyldum sínum, eða flýja þær vegna
ofbeldis, þvingaðra giftinga eða her-
mennsku. En börn á flótta eru líka
í sérstakri áhættu þegar kemur að
ofbeldi og misnotkun. Ábyrgð okkar
á að tryggja öryggi þeirra er mikil.
Það sem barni er fyrir bestu
Börn sem sækja um alþjóðlega
vernd á Íslandi eiga sömu mann-
réttindi og önnur börn hér á landi.
Þau mannréttindi hafa þó ítrekað
verið brotin þegar börnin hafa ekki
fengið sömu umönnun og þjón-
ustu og önnur börn. Þau eru einnig
brotin þegar börn eru send úr landi
gegn vilja þeirra og án þess að öryggi
þeirra sé tryggt, því þriðja grein
Barnasáttmálans kveður á um að
það sem sé barninu fyrir bestu skuli
ávallt hafa forgang þegar stjórnvöld
gera ráðstafanir sem varða börn.
Kröfur um endursendingar byggja
oft á Dyflinnarreglugerðinni sem
íslensk stjórnvöld beita í mörgum
málum. Reglugerðinni er ætlað að
dreifa álagi við móttöku flóttafólks
í Evrópu en hefur þess í stað aukið
gríðarlega álag á þau ríki sem eiga
landamæri að Miðjarðarhafinu.
Ekkert í reglugerðinni skyldar eða
hvetur til þess að Ísland sendi frá sér
flóttafólk, en það virðist samt sem
áður vera stefna stjórnvalda. Þegar
kemur að viðkvæmum hópum eins
og börnum er slík stefna óásættanleg.
Ísland hefur lagt áherslu á að koma
viðkvæmum og jaðarsettum hópum
flóttafólks til aðstoðar, og það ætti
einnig að eiga við um þá umsækj-
endur um alþjóðlega vernd sem
koma hingað til lands af sjálfsdáðum.
„Ekki vera fáviti. Nískuflipp.
Opnum dyrnar,“ heldur Kött Grá Pje
áfram í laginu fyrir dag rauða nefsins.
Öll börn eiga rétt. Verndum börn á
flótta, sérstaklega börn sem eru ein
á ferð. Ráðstafanir okkar í málefnum
þeirra geta skilið á milli lífs og dauða.
Ekki vera fáviti
Bergsteinn
Jónsson
framkvæmda-
stjóri UNICEF á
Íslandi
Ekkert í reglugerðinni
skyldar eða hvetur til þess að
Ísland sendi frá sér flóttafólk.
GÓÐUR
VINNUFÉLAGI
Volkswagen Caddy
www.volkswagen.is HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · sími 590 5000 · hekla.is
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ
Einn vinsælasti atvinnubíll á Íslandi er Volkswagen Caddy.
Hann er áreiðanlegur, öruggur og fæst í tveimur lengdum
- hefðbundinni lengd og lengri gerð (Maxi).
Caddy má fá með fjórhjóladrifi sem eykur enn við öryggi
og aksturseiginleika bílsins. Fjórhjóladrifinn Caddy hentar
einstaklega vel við íslenskar aðstæður og eykur til muna
notkunarmöguleika Caddy, hvort heldur er í snjó, hálku eða
erfiðu færi.
Volkswagen Caddy kostar frá
2.550.000 kr.
(2.056.452 kr. án vsk)
Við látum framtíðina rætast.
S k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 9M i ð V i k u D A G u R 7 . j ú n í 2 0 1 7
0
7
-0
6
-2
0
1
7
0
4
:3
5
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
0
3
-C
9
F
4
1
D
0
3
-C
8
B
8
1
D
0
3
-C
7
7
C
1
D
0
3
-C
6
4
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
0
s
_
6
_
6
_
2
0
1
7
C
M
Y
K