Fréttablaðið - 07.06.2017, Side 14
Álver Norðuráls á Grundartanga
var rekið með 21,2 milljóna dala
tapi í fyrra, jafnvirði 2,4 milljarða
króna, og er um að ræða verstu
afkomu í nítján ára sögu fyrirtækis-
ins. Tekjur álversins drógust saman
um ellefu prósent og bendir Ragnar
Guðmundsson, forstjóri Norðuráls,
á að álverð hafi í fyrra ekki verið
lægra síðan 2003.
„Áliðnaðurinn einkennist af
sveiflum í verði og erum við því
ekki óvön að sjá það sveiflast upp og
niður. Við erum líka að sjá áhrifin
af sterkari krónu og launahækk-
anir hér hafa verið mun meiri en í
nágrannalöndum og launakostn-
aður því aukist,“ segir Ragnar.
Forstjórinn bendir á að álverð
hafi hækkað um 20 prósent frá
meðalverðinu í fyrra. Tonn af áli
hafi í gær kostað um 1.918 dali en
að meðaltali um 1.600 dali í fyrra.
„Frá síðasta ári hefur krónan
styrkst enn þá meira og launa-
hækkanir eru enn þá töluvert mikl-
ar. Þetta er hluti af skýringunni á
afkomunni í fyrra þar sem stóra
myndin er tekjurnar.“
Tekjur álversins í fyrra námu 516
milljónum dala, eða 58 milljörðum
króna miðað við gengi krónunnar
í lok árs, og drógust saman um 65
milljónir dala milli ára. Rekstrar-
kostnaður lækkaði einnig eða úr
476 milljónum dala árið 2015 í 450
milljónir. Álverið á Grundartanga
hefur ekki skilað tapi síðan árið
2009 þegar afkoman var neikvæð
um 3,2 milljónir dala. Árið 2015
skiluðu framleiðsla og útflutningur
á áli fyrirtækinu hagnaði upp á 46
milljónir dala og 82,7 milljónir
árið 2014. Síðastliðin tíu ár hefur
afkoman þó ekki verið betri en árið
2008 þegar álverið var rekið með
164 milljóna dala hagnaði.
Hagnaður fyrir skatta og fjár-
magnsliði nam 26 milljónum dala
í fyrra samanborið við 63 millj-
ónir árið 2015. Eigið fé félagsins var
jákvætt um 375 milljónir í árslok
2016 samanborið við 397 milljónir
á sama tíma árið á undan.
Stjórn Norðuráls Grundartanga
ehf. félagsins samþykkti í apríl að
greiða móðurfélaginu Norðuráli ehf.
60 milljóna dala arð vegna rekst-
ursins í fyrra. Norðurál ehf. er í eigu
kanadíska álfyrirtækisins Century
Aluminum og hefur ekki skilað inn
ársreikningi til ársreikningaskrár
ríkisskattstjóra fyrir árið í fyrra.
haraldur@frettabladid.is
Versta afkoma álvers
Norðuráls frá upphafi
Álver Norðuráls á Grundartanga var rekið með um 2,4 milljarða króna tapi í
fyrra. Tekjur fyrirtækisins drógust saman enda álverð ekki verið lægra síðan
2003. Forstjórinn bendir á að verðið hafi hækkað um 20 prósent frá áramótum.
Norðurál hefur rekið álverið á Grundartanga frá júní 1998. Fréttablaðið/SteFáN
Áliðnaðurinn
einkennist af
sveiflum í verði og erum við
því ekki óvön að sjá það
sveiflast upp og niður.
Ragnar Guðmunds-
son, forstjóri
Norðuráls
Baðstaðurinn Laugarvatn Fontana
var rekinn með 90,8 milljóna króna
hagnaði í fyrra og var afkoman þá
þrefalt betri en árið á undan. Tekjur
fyrirtækisins námu 372 milljónum
samanborið við 235 milljónir árið
2015.
Þetta kemur fram í nýjum árs-
reikningi Laugarvatns Fontana ehf.
sem var opnað í júlí 2011. Um er að
ræða baðstað og verslun sem eru
byggð í kringum náttúrulegt gufubað
á lóð fyrirtækisins. Fontana er í eigu
Gufu ehf. og er dótturfélag Ice landair
Group, Flugleiðahótel ehf., stærsti
eigandi móðurfélagsins með
32 prósent. Þar á eftir kemur
dótturfélag Bláa lónsins,
Íslenskar heilsulindir, með
19,1 prósent.
Í árslok 2016 átti
Fontana eignir upp á 105
milljónir en skuldaði 137
milljónir. Eigið féð
fyrirtækisins var
því neikvætt um
31 milljón króna.
B a ð s t a ð u r i n n
var í fyrsta sinn
r e k i n n m e ð
hagnaði árið
2015. – hg
Hagnaður Fontana meira
en þrefaldaðist í fyrra
laugarvatn Fontana var opnað sum-
arið 2011. Fréttablaðið/Pjetur
Jakob Ásmundsson, sem var kjör-
inn stjórnarmaður í Arion banka á
aðalfundi 9. mars síðastliðinn, hefur
ekki sótt fundi stjórnar bankans
eða tekið þátt í öðrum stjórnar-
störfum í meira en tvo mánuði
vegna skoðunar Kaupskila, dóttur-
félags Kaupþings sem á 58 prósenta
hlut í bankanum, á óhæði hans
sem stjórnarmanns. Ráðist var í þá
skoðun eftir að Kaupskilum barst
fyrirspurn frá Fjármálaeftirlitinu
(FME) um hvort Jakob kynni að
vera háður stjórnarmaður vegna
mögulegra fyrri tengsla hans við
Kaupþing, samkvæmt heimildum
Markaðarins.
Reynir Karlsson, stjórnarfor-
maður Kaupskila, segir í samtali
við Markaðinn að slík fyrirspurn
hafi borist í lok marsmánaðar en
vill þó ekki staðfesta að hún hafi
komið frá FME. Í kjölfarið hafi
Kaupskil beint því til Jakobs að
hann myndi ekki sinna stjórnar-
störfum á meðan farið væri í frekari
vinnu á fyrra mati félagsins um að
hann væri óháður stjórnarmaður.
Jakob sótti meðal annars ekki fund
stjórnar Arion banka 12. maí síð-
astliðinn þegar stjórnin samþykkti
árshlutareikning bankans fyrir
fyrsta ársfjórðung. Reynir segir
hins vegar að þeirri vinnu Kaup-
skila sé nú lokið og að niðurstaðan
hafi verið sú hin sama og áður um
að Jakob væri óháður Kaupþingi.
Hann muni því sækja næsta fund
stjórnar Arion banka.
Ekki sótt stjórnarfundi frá því í mars
Kaupþing á 58 prósent í arion í gegnum Kaupskil. Fréttablaðið/eyþór
markaðurinn
Útgáfufélag 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000
Netfang rit stjorn@markadurinn.is | Sími 512 5000 | Fax 512 5301
Ritstjóri Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is
Ábyrgðarmaður Kristín Þorsteinsdóttir
Netfang auglýsingadeildar auglys ing ar@markadurinn.is Veffang visir.is
Magnea þórey
Hjálmarsdóttir er
stjórnarformaður
laugarvatns
Fontana.
372
milljóna velta var
hjá baðstaðnum í
fyrra.
jakob
ásmundsson,
stjórnarmaður í
arion banka
Jakob var forstjóri Straums fjár-
festingarbanka á árunum 2013 til
2015 en þar áður starfaði hann sem
fjármálastjóri eignaumsýslufélags-
ins ALMC (gamla Straums). Hann
var á meðal nokkurra fyrrverandi
lykilstjórnenda ALMC sem fengu
hundruð milljóna króna hver í sinn
hlut þegar félagið greiddi saman-
lagt út yfir þrjá milljarða í bónusa
til starfsmanna í desember 2015.
Hluthafar ALMC eru ýmsir erlendir
fjárfestingarsjóðir og fjármálafyrir-
tæki, meðal annars Goldman Sachs,
en bankinn var fimmti stærsti hlut-
haf félagsins í árslok 2016 með tæp-
lega sjö prósenta hlut. Félag í eigu
Goldman Sachs var sem kunnugt
er í hópi stórra kröfuhafa í Kaup-
þingi sem keyptu samanlagt 29,2
prósenta hlut í Arion banka fyrr á
þessu ári.
hordur@frettabladid.is
Viðskiptatækifæri á www.kontakt.is
Hótelfasteignin
Skúlagarður
í Kelduhverfi
Frekari upplýsingar veita:
Gunnar Svavarsson, gunnar@kontakt.is
Guðni Halldórsson, gudni@kontakt.is
Til sölu er helmingshlutur eða meira í Skúlagarði
fasteignafélagi ehf. Í fasteignum félagsins, sem samtals eru
947 fm að stærð, er rekið 17 herbergja hótel búið nýlegum
herbergjum sem öll eru með baði. Auk þess er veitingarými með
góðu eldhúsi og aðgengi að 233 fm samkomusal.
Lóðin er mjög stór eða 13.732 fm sem býður upp á mikla
stækkunarmöguleika. Á lóðinni er m.a. starfsmannabústaður.
Hótelið mun væntanlega styrkja mjög stöðu sína
þegar nýr Dettifossvegur er fullbúinn.
H
au
ku
r 0
6.
17
7 . j Ú n í 2 0 1 7 M I Ð V I K u D a g u R2 markaðurinn
0
7
-0
6
-2
0
1
7
0
4
:3
5
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
0
3
-D
3
D
4
1
D
0
3
-D
2
9
8
1
D
0
3
-D
1
5
C
1
D
0
3
-D
0
2
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
0
s
_
6
_
6
_
2
0
1
7
C
M
Y
K