Fréttablaðið - 07.06.2017, Page 16
– Tengir þig við framtíðina!
Sjónvarpsdreifikerfi
fyrir hótel, gistiheimili og skip.
Auðbrekku 3 • Kópavogur • s. 564 1660
oreind@oreind.is • www.oreind.is
Skúli Mogensen, forstjóri og stofnandi WOW air, segir að flugfélagið muni hefja beint flug til Asíu á næsta ári. „Þegar það gerist munum við sjá, rétt eins
og gerðist þegar við hófum beint
flug til Kaliforníu, gríðarlega aukn-
ingu þaðan í ferðamannastraumi til
Íslands. Ég get fullyrt það.“
Í viðtali við Markaðinn segir Skúli
að félagið vinni nú að því að ákveða
hvaða áfangastaðir í Asíu verði fyrir
valinu en hann er þeirrar skoðunar
að beint flug þangað skipti sköpum
fyrir WOW air eigi það að lifa af
aukna samkeppni í flugi yfir hafið.
Grundvallarskilning vanti á þeirri
ógn innan stjórnsýslunnar sem ein-
blíni nær alfarið á komu ferðamanna
til Íslands í stað þess að skoða tæki-
færin sem séu fólgin í því að búa til
fyrirmyndar alþjóðlegan tengiflug-
völl sem gæti tryggt stöðugleikann
í ferðamannastraumnum til og frá
Íslandi og komið í veg fyrir skyndi-
legt hrun sökum þess að einn mark-
aður bregðist.
Þegar blaðamaður settist niður
með Skúla í liðinni viku voru fimm
ár liðin frá því að WOW air fór í jóm-
frúarflug sitt 31. maí 2012. Óhætt
er að segja félagið hafi vaxið hratt á
þessum árum en áætlað er að tekjur
þess aukist um ríflega 70 prósent
í ár og verði samtals um 500 millj-
ónir Bandaríkjadala, jafnvirði um
50 milljarða króna.
Það má segja að þú hafir lagt allt
þitt undir Ísland og ferðaþjónustu.
Þegar þú lítur fimm ár til baka, átt-
irðu von á því að vöxturinn yrði jafn
mikill og reyndin hefur orðið? „Já og
nei. Ég bjóst tvímælalaust við því að
það yrði mikill vöxtur en að hann
yrði jafn mikill á svo skömmum
tíma – úr hundrað þúsund farþegum
2012 í þrjár milljónir farþega í ár –
hefur komið skemmtilega á óvart og
er langt umfram allar mínar vænt-
ingar.“
Reksturinn tekur stakkaskiptum
eftir að WOW air byrjar að fljúga
til Bandaríkjanna árið 2015, ekki
satt? „Það hefur sýnt sig eftir að við
hófum flug til Bandaríkjanna hvað
viðskiptamódelið er að virka vel
enda var ég alltaf viss um að við
þyrftum að ná Norður-Ameríku inn
í leiðakerfið okkar og nota Ísland
sem stoppistöð (e. hub) fyrir flug
yfir hafið.
Það er þekkt fyrirbæri að þegar
flugfélag kemur með nýjan áfanga-
stað á markaðinn verður aukning í
farþegafjölda um kannski 10 til 15
prósent. Frá því að við byrjuðum að
fljúga beint til Kaliforníu höfum við
séð aukningu í farþegafjölda þaðan
til Íslands upp á mörg hundruð
prósent. Flugið yfir hafið hefur því
reynst afar vel og gefið okkur byr
undir báða vængi. Margir spáðu að
Bandaríkjaflugið yrði okkar banabiti
en það hefur hins vegar haft þver-
öfug áhrif.“
Fyrstu árin einkenndust samt af
taprekstri og þá þurfti að seinka
áformum ykkar um að hefja flug til
Bandaríkjanna í um eitt ár sem kost-
aði félagið talsverða fjármuni. Kom
aldrei sá tímapunktur þar sem þú
hugsaðir með þér að þú hefðir mögu-
lega veðjað á rangan hest? „Þetta
hefur vissulega verið þungt á köflum
og fyrsta alvarlega staðan kom upp
haustið 2012 þegar við við stóðum
frammi fyrir því að sumarið hafði
ekki verið í takt við áætlanir og tapið
reynst miklu meira. Ég þurfti þá að
spyrja mig hvort ég ætti að pakka
saman og viðurkenna mistökin eða
fara hina leiðina og leggja allt mitt
undir í félagið. Það var langt í frá aug-
ljóst á þeim tíma hvort þetta myndi
ganga eftir og það hafði enginn fjár-
festir þá áhuga á að koma að félaginu
þannig að ég var í raun tilneyddur til
að gera þetta sjálfur.“
Dregur úr rekstraráhættu
Þú hefur sagst ekki ætla að láta
íslenskar aðstæður hamla vexti
WOW air og að félagið stefni að því
að opna nýja sjálfstæða starfsstöð.
Hvar er það mál statt í dag? „Já, við
höfum verið að skoða það mjög
alvarlega. Hvernig getum við nýtt
okkur vörumerki okkar, þekkingu,
hugbúnaðarþróun, hliðartekjur og
ekki síst brautryðjandi reynslu af því
að beita lággjaldamódelinu á lengri
flugleiðum?
Það eru tvímælalaust tækifæri víða
í heiminum til að gera betur án við-
komu á Íslandi. Það er ekki að fara
að gerast núna í ár enda eigum við
fullt í fangi við að sinna stækkunar-
áformum okkar hérlendis eins og er,
en við munum hins vegar brátt bæta
Asíu við leiðakerfið okkar. Á næsta
ári fáum við afhentar fjórar glænýjar
Airbus A330neo vélar sem geta flogið
í rúmlega tólf tíma og það er ljóst að
við þurfum að finna eitthvað fyrir
þær að gera og nýta langdrægni
þeirra. Ég er ekki enn tilbúinn að
ljóstra upp um hvaða staða við erum
þar að horfa til en þar er um að ræða
flug til fjarlægari landa en við höfum
fram til þessa verið að fljúga til.“
Þannig að WOW air mun hefja
beint flug til Asíu á næsta ári – spurn-
ingin er aðeins hvaða staðir þar verða
fyrir valinu? „Já, það er rétt. Við erum
enn að gera þær stúdíur en ég er
sannfærður um að það skref eigi eftir
að efla félagið. Ég tel ekki að þetta feli
í sér aukna rekstraráhættu heldur
þvert á móti dragi úr henni þar sem
leiðakerfið verður stærra og fjöl-
breyttara fyrir vikið og býður upp á
mun fleiri samsetningar af farþegum.
Við vorum í raun brothættastir til að
byrja með þegar við buðum upp á
fáa áfangastaði þar sem hver staður
skipti þá félagið gríðarmiklu máli.“
Flug til Asíu er því nauðsynlegt fyrir
ykkur til að lifa af vaxandi samkeppni
í flugi yfir hafið? „Að mörgu leyti er
það rétt. Við erum núna að sjá mikla
aukningu í framboði af slíku flugi
frá Norwegian og fleirum. Jetblue er
líka búið að gefa út að félagið hygg-
ist hefja beint flug frá New York og
Boston árið 2019 inn á helstu borgir
í Evrópu. Það er ljóst að ef farþegar
hafa möguleika á að fljúga beint
yfir hafið í nýjum þotum, af hverju
í ósköpunum ættu þeir þá að stoppa
á Íslandi? Það mun enginn gera það.
Þetta er því ekki spurning um
hvort það muni hægja eitthvað á flug-
traffíkinni heldur mun hún færast til
og þá verðum við að vera reiðubúin
til að finna aðrar leiðir til að búa til
þær tengingar. Og við teljum að flug
til Asíu geti fyllt það skarð.“
Vantar skilning í stjórnsýslunni
Þegar talið berst að samkeppni í flugi
þá hefur þú lítið viljað beina sjónum
þínum að Icelandair heldur fremur
Norwegian air. Af hverju? „Icelandair
og ekki síst Loftleiðir voru brautryðj-
endur á sínum tíma sem margt má
læra af. Í dag erum við á allt öðrum
stað og eigum lítt skylt við þá og
eyðum því litlum tíma í að velta fyrir
Asía mótspil
við aukinni
samkeppni
Skúli Mogensen sér fram á gríðarlega aukningu í
ferðamannastraumi frá Asíu til Íslands þegar WOW
air hefur beint flug þangað á næsta ári. Alþjóðlegur
tengiflugvöllur nauðsynlegur til að koma í veg fyrir
hrun ef einn markaður bregst. Erlendir og innlendir
fjárfestar sýna flugfélaginu stöðugan áhuga.
„Margir spáðu að Bandaríkjaflugið yrði okkar banabiti en það hefur hins vegar haft þveröfug áhrif,“ segir Skúli Mogensen, stofnandi og forstjóri WOW air. FréttaBlaðið/antOn Brink
Mér finnst það galin
hugmynd, eins og
forsvarsmenn Icelandair
hafa talað fyrir, að byggja
upp annan flugvöll í Hvassa
hrauni og held að sú umræða
hafi truflað uppbygginguna í
Keflavík.
Hörður
Ægisson
hordur@frettabladid.is
7 . j ú n í 2 0 1 7 M I Ð V I K U D A G U R4 MarKaðurInn
0
7
-0
6
-2
0
1
7
0
4
:3
5
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
0
3
-E
7
9
4
1
D
0
3
-E
6
5
8
1
D
0
3
-E
5
1
C
1
D
0
3
-E
3
E
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
0
s
_
6
_
6
_
2
0
1
7
C
M
Y
K