Fréttablaðið - 07.06.2017, Síða 31
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug við útför móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
Jósefínu Björnsdóttur
frá Galtanesi,
Grenigrund 6.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á hjúkrunar-
og dvalarheimilinu Grund fyrir einstaka umönnun.
Þórður Hannesson Valdís V. Randrup
Dýrunn Hannesdóttir Ársæll Daníelsson
Björn Hannesson Kristín Edda Sigfúsdóttir
ömmu- og langömmubörn.
Ástkær eiginkona mín,
móðir og stjúpmóðir,
Ásta Lilja Kristjánsdóttir
frá Siglufirði,
til heimilis að Vesturgötu 7,
andaðist á lungnadeild Landspítalans
2. júní. Jarðarförin verður gerð frá
Hallgrímskirkju mánudaginn 12. júní kl. 15.
Sigurður Jón Ólafsson
Melkorka Sigurðardóttir Steinar Logi Sigurðsson
Rósa Huld Sigurðardóttir Klara Dögg Sigurðardóttir
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Rut Sigurðardóttir
Hrafnistu, Reykjavík,
áður Árskógum 8,
sem andaðist fimmtudaginn 1. júní,
verður jarðsungin frá Bústaðakirkju
föstudaginn 9. júní kl. 13.00. Blóm og kransar eru
vinsamlegast afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast
hennar er bent á Minningarsjóð blóðlækningadeildar
Landspítalans.
Birna Ágústsdóttir Júlíus Sigmundsson
Guðlaugur Ágústsson Sigríður Ósk Pálmadóttir
Ævar Ágústsson Ragnheiður Júníusdóttir
Ína Björg Ágústsdóttir Haraldur Hansson
Magnús Ágústsson Reynee Rose Agustsson
Berglind Ágústsdóttir Hjálmar Hjálmarsson
Linda Sjöfn Sigurðardóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir
okkar, tengdafaðir og afi,
Guðfinnur Georg Pálmason
(Gussi)
Vesturbergi 68,
lést þann 30. maí. Útförin fer fram frá
Fella- og Hólakirkju miðvikudaginn
14. júní kl. 13.
Jóhanna S. Emilsdóttir
Trausti Guðfinnsson Ingibjörg Rafnsdóttir
Pálmi Guðfinnsson Þórhildur Björgvinsdóttir
Emil Freyr Freysson Soffía H. Gunnarsdóttir
og barnabörn.
Þórunn Ingólfsdóttir
Flygenring
Garðstíg 5, Hafnarfirði,
lést á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu
Grund föstudaginn 26. maí sl. Útför
hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hinnar látnu. Starfsfólk Grundar fær
alúðarþakkir fyrir góða umönnun.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Kristín Magnúsdóttir Sigurður Helgason
Ásta Magnúsdóttir Oddur Borgar Björnsson
Okkar elskulega eiginkona og vinur,
móðir, tengdamóðir, amma og dóttir,
Kristbjörg Dagrún
Þorbjarnardóttir
Hraunhvammi 2,
Hafnarfirði,
lést á heimili sínu þann 1. júní síðastliðinn
í faðmi fjölskyldu sinnar. Hún verður jarðsungin frá
Víðistaðakirkju föstudaginn 9. júní klukkan 13. Blóm og
kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er
bent á Karítas og Krabbameinsfélagið.
Sigurður Elvar Sigurðsson
Anna Lilja Sigurðardóttir Sæmundur H. Gíslason
Kristín Elva Sigurðardóttir Pétur Valur Pétursson
Esther Ósk Sigurðardóttir Jón Símon Ottósson
barnabörn
Dagrún Kristjánsdóttir
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Sigurlaug Eðvaldsdóttir
frá Kálfshamarsvík,
Engihjalla 25,
lést á Landspítalanum 31. maí. Útförin
fer fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Kolbrún Sigurðardóttir Rósmundur Jónsson
Margrét Sigurðardóttir Guðsteinn Eyjólfsson
Guðrún Sigurðardóttir
Erna Sigurðardóttir Ómar Kjærnested
Guðný Sigurðardóttir
barna- og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og langalangamma,
Anna Karólína Gústafsdóttir
Hrafnistu Reykjanesbæ,
áður Aðalgötu 5, Keflavík,
lést í faðmi fjölskyldunnar að
Hrafnistu 22. maí. Jarðarförin hefur
farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Jóhanna Gústafsdóttir
Lilja, Ragnheiður, Logi og Olga Guðmundarbörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
stjúpfaðir, tengdafaðir, afi og langafi,
Halldór V. Vilhjálmsson
(Mansi)
matreiðslumaður,
Strikinu 8,
lést miðvikudaginn 31. maí. Útförin fer
fram frá Háteigskirkju föstudaginn 9. júní kl. 13.00.
Sigríður Þorsteinsdóttir
Einar Halldór Halldórsson
Hörður Halldórsson Hólmfríður Jónsdóttir
Valgerður Halldórsdóttir
Ágústa A. Grétarsdóttir Jón Benediktsson
Kristján Grétarsson Guðný Hansdóttir
Inga Hrönn Grétarsdóttir Ari Björnsson
barnabörn og langafabörn.
Háskólakórinn gerði á dögunum góða ferð á kóramót í Tékklandi en kórinn kom úr víkingi með tvær medalíur í far-teskinu. Þetta er í fyrsta
skipti sem kórinn fer á slíkt mót. Fráfar-
andi formaður segir meðlimi vera heita
fyrir því að endurtaka leikinn síðar meir.
„Háskólakórinn fer árlega í vorferð og
annað hvert ár reynum við að fara út fyrir
landsteinana. Í stjórninni var stelpa sem
hafði áður farið á þetta mót og stakk upp
á því að við færum þangað,“ segir Guð-
mundur Alfreðsson, formaður kórsins.
Undirbúningur fyrir ferðina hófst í
október á síðasta ári en förin var alls
tíu dagar. Af um 60 meðlimum kórsins
fóru 35 með út. Flogið var til Salzburg og
þaðan var farið um Austurríki. Áfanga-
staðurinn var borgin Olomouc í austur-
hluta Tékklands en þar fer árlega fram
alþjóðlegt kóramót.
„Fyrstu dagana vorum við í alls kyns
vinnustofum tengdum söng. Við hittum
líka dómarana, fórum yfir reglur keppn-
innar og tókum þátt í ýmsum viðburðum
í tengslum við keppnina sjálfa,“ segir
Guðmundur. Meðal annars söng kórinn
á opnum tónleikum á torgi í bænum.
Keppnin sjálf fór fram síðasta laugar-
dag. Þar tók kórinn þátt í tveimur undan-
riðlum, annars vegar fyrir blandaða kóra
með frjálst efnisval og hins vegar í riðli
þar sem skylda var að flytja eitt keppnis-
verk. Í hvorum riðli fyrir sig fékk kórinn
tuttugu mínútur en af þeim var gert ráð
fyrir fimm mínútum í klapp og upphafs-
tóninn. Alls fengu meðlimir því að syngja
þrettán lög.
„Fengum gullverðlaun í báðum
flokkum en okkur tókst hins vegar ekki
að komast áfram í það sem kallað er
„ultimate champion“. Þeir kórar sem
þangað komust eru flestir atvinnu-
mannakórar með fólki sem er sprenglært
í söng. En það munaði ekki miklu og í
raun gífurlega gaman að sjá að Háskóla-
kórinn stendur ekki fjarri þeim,“ segir
Guðmundur.
Formannstíð Guðmundar lýkur brátt
en hann segir að almennur áhugi sé
fyrir því meðal meðlima að herja aftur
á slíkt kóramót. Hvort hið sama verður
fyrir valinu verður tíminn að leiða í ljós.
Hann segir einnig gaman að mótið hafi
gefið kórstjóranum, Gunnsteini Ólafs-
syni, ýmsar áhugaverðar hugmyndir um
breytingar sem hægt sé að gera á kórnum.
„Þetta gaf honum örlítið aðra sýn á
kórastarfið og hann er kominn með
ýmsar nýjar hugmyndir er varða svið-
setningu,“ segir Guðmundur. „Háskóla-
kórinn var auðvitað skemmtilegur fyrir
en það verður áhugavert að sjá hvað þetta
hefur í för með sér.“
johannoli@frettabladid.is
Háskólakórinn úr víkingi
með tvenn gullverðlaun
Háskólakórinn tók á dögunum þátt í sínu fyrsta alþjóðlega kóramóti á erlendri grund. Í
farteskinu á heimleið voru verðlaun sem kórinn söng sér inn. Formaðurinn segir gaman
að sjá að kórinn sé ekki langt að baki atvinnumannakórum. Gæti breytt starfi kórsins.
Háskólakórinn þenur raddböndin á hátíðinni.
Guðmundur Alfreðs-
son, formaður
Háskólakórsins.
t í m a m ó t ∙ F R É t t a B L a ð i ðT T T T 15m i ð V i K U D a G U R 7 . j ú n í 2 0 1 7
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@365.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
0
7
-0
6
-2
0
1
7
0
4
:3
5
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
0
3
-C
5
0
4
1
D
0
3
-C
3
C
8
1
D
0
3
-C
2
8
C
1
D
0
3
-C
1
5
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
0
s
_
6
_
6
_
2
0
1
7
C
M
Y
K