Fréttablaðið - 02.06.2017, Qupperneq 4
WWW.GÁP.IS FAXAFENI 7 · SÍMI 5 200 200
ÞÚ ÞARFT EKKI AÐ
FINNA UPP HJÓLIÐ
– ÞÚ FINNUR ÞAÐ HJÁ GÁP
OPIÐ
LAUGARDAGA
KL. 10 - 16
„Breyting ráðherra á niðurstöðu
dómnefndar er því öðrum þræði
á skjön við eigin rökstuðning. Það
leiðir hugann að því að önnur og ef
til vill ólögmæt sjónarmið hafi ráðið
mati ráðherra á hæfi umsækjenda,“
segir í bréfi Jóns Höskuldssonar
héraðsdómara til stjórnskipunar-
og eftirlitsnefndar.
Jón var metinn ellefti hæfasti
umsækjandinn í starf dómara í
Landsrétti en var ekki í tillögum
dómsmálaráðherra um þá fimmtán
sem skipa ber í starfið.
Í bréfi sínu til nefndarinnar and-
mælir Jón tillögu dómsmálaráð-
herra og segir: „Af þessu tilefni leyfir
undirritaður sér að vekja athygli
stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar
Alþingis á því að með tillögu ráð-
herra er undirritaður tekinn út
einn héraðsdómara án þess að finna
megi ástæðu þessa í skýringum ráð-
herrans. Undirritaður var skipaður
héraðsdómari 15. maí 2010, eða
fyrir sjö árum. Meðal þeirra sem
ráðherra gerir tillögu um er héraðs-
dómari sem skipaður var sama dag
og undirritaður og hefur því gegnt
embætti héraðsdómara nákvæm-
lega jafn lengi.“
Jóhannes Karl Sveinsson hæsta-
réttarlögmaður ritaði nefndinni
einnig umsögn. Hann segir tillögu
ráðherra stefna í að vera ríkinu dýr
vegna bótaréttar sem skapast. „Lét
dómari stjórnmálaskoðanir (for-
tíðar) ráða þegar tilteknir umsækj-
endur voru látnir gossa út af dóm-
nefndarlistanum? Urðu vina- og
pólitísk tengsl til þess að aðrir voru
teknir inn í þeirra stað o.s.frv. Svona
hugsanir vill maður ekki þurfa að
hlusta á í eigin höfði en það er því
miður óhjákvæmilegt.“
Í umsögn Lögmannafélags Íslands
segir að félagið telji ákvörðun dóms-
málaráðherra síst til þess fallna að
skapa nýjum dómstól það traust og
veganesti sem nauðsynlegt sé í lýð-
ræðisþjóðfélagi. „Að sama skapi eru
það vonbrigði að ráðherra, sem var
starfandi lögmaður, geri jafn lítið úr
lögmannsreynslu, samanborið við
reynslu af dómsstörfum, og raun ber
vitni.“ – snæ
Spyr hvort vinatengsl hafi ráðið för við skipan dómaranna
Lét dómari stjórn-
málaskoðanir
(fortíðar) ráða þegar tilteknir
umsækjendur
voru látnir
gossa út af
dómnefndar-
listanum?
Jóhannes Karl
Sveinsson, hæsta
réttarlögmaður
Aðeins eitt mál lá fyrir sjö tíma
löngum þingfundi í gær, degi eftir að
þingfrestun var áætluð. Þingmönnum
var heitt í hamsi og blótsyrði voru
látin falla í pontu vegna ákvörðunar
Sigríðar Á. Andersen dómsmálaráð-
herra um að hræra í lista dómnefndar
yfir umsækjendur um embætti dóm-
ara við Landsrétt, og skipta fjórum af
þeim fimmtán hæfustu út fyrir aðra
fjóra umsækjendur.
Fyrir lá að tveir þingmenn yrðu
fjarverandi við atkvæðagreiðsluna,
þau Brynjar Níelsson, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins, og Svandís
Svavarsdóttir, þingmaður Vinstri
grænna. Brynjar er eiginmaður Arn-
fríðar Einarsdóttur sem færð var upp
á lista Sigríðar en Svandís fyrrverandi
eiginkona Ástráðs Haraldssonar, sem
færður var niður í sömu andrá.
Umræður í þingsal snerust að
megninu til um rökstuðning ráð-
herra, eða skort á rökstuðningi hans,
í málinu. Reifuð voru jafnréttissjónar-
mið, því með ákvörðun Sigríðar verða
kvendómarar sjö talsins og karldóm-
arar átta. Þá tókust á sjónarmið um
hvort Sigríður hefði lagalega heimild
til að gera þær breytingar sem hún
gerði, ítarlega var farið yfir þá bóta-
ábyrgð sem hún gæti með ákvörðun-
inni skapað ríkinu og hvaða áhrif
ákvörðunin hefði á virðingu og traust
Alþingis og hins nýja Landsréttar.
Eins og áður segir stóð til að
fresta þingi á miðvikudag og voru
þingmenn margir hverjir komnir
í sumarstellingar. Það voru því
átta varaþingmenn sem tóku þátt í
atkvæðagreiðslunni þar sem útlit var
fyrir að svo mjótt yrði á munum að
ekki mætti taka neina áhættu með
mætingu þingmanna í þingsal.
Að endingu varð niðurstaðan sú að
alls ekki var mjótt á munum. Frétta-
blaðið hefur heimildir fyrir því að
stjórnarandstaðan hafi, ekki mjög
löngu fyrir atkvæðagreiðslu, reynt að
stilla saman strengi um hvernig kjósa
bæri í málinu. Niðurstaðan varð þó sú
að þingflokkur Framsóknar sat hjá í
málinu en Vinstri græn, Píratar og
Samfylking kusu gegn tillögu dóms-
málaráðherra. Atkvæði fóru því svo
að 31 þingmaður stjórnarliðsins kaus
með tillögu Sigríðar, 22 greiddu gegn
henni og 8 sátu hjá.
snaeros@frettabladid.is
Tíðrætt um traust Alþingis
Ríkisstjórnarflokkarnir
höfðu betur gegn minni-
hlutanum þegar kosið
var um tillögu dóms-
málaráðherra um fimm-
tán dómara við Lands-
rétt. Alþingismönnum
var heitt í hamsi í um-
ræðum um málið. Dóms-
málaráðherra var á öðru
máli í febrúar en nú.
Þessi verða dómarar
við Landsrétt
Aðalsteinn E. Jónasson
Arnfríður Einarsdóttir
Ásmundur Helgason
Davíð Þór Björgvinsson
Hervör Þorvaldsdóttir
Ingveldur Einarsdóttir
Jóhannes Sigurðsson
Jón Finnbjörnsson
Kristbjörg Stephensen
Oddný Mjöll Arnardóttir
Ragnheiður Bragadóttir
Ragnheiður Harðardóttir
Sigurður Tómas Magnússon
Vilhjálmur H. Vilhjálmsson
Þorgeir Ingi Njálsson
Skipt um skoðun
Meðal raka Sigríðar Á. Andersen
dómsmálaráðherra fyrir því að
hræra í niðurstöðu nefndarinnar
var að reynsla af dómarastörf
um hefði haft minna vægi en
efni stóðu til. Af þeim sem voru
skipaðir dómarar eru átta sem
starfa við dómstóla landsins, sex
héraðsdómarar, settur hæsta
réttardómari og dómstjóri.
Í ræðu á Alþingi, þann 7.
febrúar síðastliðinn, sagði Sig
ríður meðal annars um skipan
landsréttardómara: „Það er mjög
mikilvægt að til starfa þar veljist
fólk með ólíkan bakgrunn úr
heimi lögfræðinnar, ekki bara
núverandi embættisdómarar
eða menn sem hafa sinnt dóm
störfum heldur líka alls kyns
öðrum lögfræðistörfum.“
Landsréttur
Óttarr
Proppé
„Rökstuðningur
er ekki endilega
betri ef hann er
á fleiri […]. Margar
af þeim merkustu upplýsingum,
bókum og svo framvegis sem ég
hef lesið, segjum t.d. bara Bókin
um veginn, eru mjög stuttar.“
Katrín
Jakobsdóttir
„Minnihlutinn
á Alþingi hefur
gert athuga
semdir við
röksemdir ráðherra
og telur ekki sýnt, út frá rökstuðn
ingnum, að rannsóknarskyldu hafi
verið fylgt.“
Pawel
Bartoszek
„[Þingmaður
inn] sagði í einni
setningu að hér
væri ráðherra að
velja dómara sem
eru henni þóknanlegir en ákvörð
un Pírata snerist ekki um þetta
tiltekna fólk. Ég veit ekki hvort
háttvirtum þingmanni þykir gæta
ákveðinnar mótsagnar þarna en
mér þykir gera það.“
Jón Þór
Ólafsson
„Þingmaðurinn
hlær. Þingmenn
verða að átta sig
á því að á þetta
þing veljast almennir
borgarar sem eru ekki allir lög
menn og við þurfum fokking tíma
til þess að geta unnið þetta mál.“
„Mér sýnist á öllu að gamla Ísland vinni, jibbý“ sagði Birgitta Jónsdóttir
háðskt í atkvæðagreiðslunni í gær og gekk úr pontu. Í bakgrunni situr ráð-
herra dómsmála, Sigríður Á. Andersen, með óræðan svip. fréttABlAðið/ernir
2 . j ú n í 2 0 1 7 F Ö S T U D A G U R4 F R é T T i R ∙ F R é T T A B L A ð i ð
0
2
-0
6
-2
0
1
7
0
4
:3
7
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
F
E
-6
8
6
4
1
C
F
E
-6
7
2
8
1
C
F
E
-6
5
E
C
1
C
F
E
-6
4
B
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
8
s
_
1
_
6
_
2
0
1
7
C
M
Y
K