Fréttablaðið - 02.06.2017, Page 12

Fréttablaðið - 02.06.2017, Page 12
Frá degi til dags Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Einar Þór Sverrisson forStjóri: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is aðStoðarritStjórar: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is markaðurinn: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is lífið: Guðný Hrönn Antonsdóttir gudnyhronn@frettabladid.is ljóSmyndir: Vilhelm Gunnarsson villi@365.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Halldór Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is Það er áhugavert að gægjast inn um glugga Alþingis nú við lok þingsins og rýna í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar. Hún er meginafrakstur þessa þingvetrar, hvernig sem á það er litið. Hún virðist í ein- faldri mynd ganga út á þrennt: samdrátt í ríkisrekstri, lágmarksfé í uppbyggingu innviða og það að létta skatt- byrði af þeim efnaðri. Þessari stefnu er svo ætlað að keyra áfram nútímalegt og blómlegt samfélag, byggt á nýsköpun og grænum atvinnuháttum (í anda atvinnustefnu Vinstri grænna frá því fyrir um áratug). En það verður ekki bæði sleppt og haldið. Nýsköpun kemur ekki upp úr engu. Sprotar fæðast ekki í fjár- sveltu menntakerfi. Ferðaþjónusta þrífst illa á holóttum malarvegum, einfasa rafmagni og ótraustu netsam- bandi. Þessir breyttu atvinnuhættir og sá veruleiki sem við stöndum frammi fyrir útheimtir einfaldlega veru- lega öflugri innviði og sterkari samrekstur. Það er bleikur fíll í þessu líka. Það er engin alvöru pen- ingastefna til að jarðtengja fjármálaáætlunina. Engin sátt um það hvernig skuli ná stjórn á ofrisi krónunnar. Það er svo komið að við Íslendingar erum orðin vön því að hugsa og reka okkur sjálf eins og vogunarsjóðir. Þeir þrífast líka á áhættu og óvissu. Kjarni vandans birtist svo þegar þessir stóru gallar fjármálaáætlunarinnar leggjast allir saman á eitt; það myndast olía á eld ójöfnuðar. Óstöðugleiki og veik sam- neysla eykur ójöfnuð. Og það er ójöfnuðurinn sem er mesta áhyggjuefni stjórnmálanna um allan heim. Með breikkandi bilinu fjölgar reiðum á öðrum endanum og firrtum á hinum endanum. Verst af öllu er svo að á endanum geta jaðrarnir náð saman, þannig að réttlát reiði þeirra sem of lítið hafa umbreytist í byr í segl þeirra firrtu. Og þá geta myndast kjöraðstæður til að rækta pólitísk skrímsli í skápum, sem hafa alltof víða verið að láta á sér kræla í alþjóð- legum stjórnmálum. Það vill held ég ekkert okkar fara þangað. En við verðum þá að taka beygjuna þegar kemur að næstu gatnamótum. Olía á eld ójöfnuðar Óli Halldórsson varaþingmaður VG Það er bleikur fíll í þessu líka. Það er engin alvöru pen- ingastefna til að jarðtengja fjármála- áætlunina. Slíkir aug- ljósir veik- leikar í efna- hagsmálum þjóðarinnar hverfa ekki við það eitt að breytt sé um gjaldmið- ilsstefnu. L innulaus gengishækkun krónunnar er flóknasta viðfangsefni Seðlabankans og stjórnvalda um þessar mundir. Gengið hefur hækkað um meira en 20 prósent á einu ári, sem er mesta styrking á jafn skömmum tíma frá því í byrjun sjöunda áratugarins, og samtímis fer samkeppnishæfni þjóðar- búsins hratt þverrandi. Stjórnvöld hafa meðal annars brugðist við þessari stöðu með skipun verkefnisstjórn- ar sem á að koma með tillögur í haust um endurmat á forsendum peninga- og gjaldmiðlastefnu Íslands. Ljóst er hins vegar að forystumenn ríkisstjórnarinn- ar eru ekki sammála um áfangastaðinn í þeirri vinnu. Formaður Framsóknarflokksins, benti – réttilega – á það stefnuleysi sem virðist ríkja í þessum efnum í eld- húsdagsumræðum á Alþingi í vikunni. Á sama tíma og forsætisráðherra segir að krónan sé framtíðargjald- miðill þjóðarinnar talar fjármálaráðherra hins vegar krónuna „niður hvenær sem færi gefst“ og reynir eftir „fremsta megni að koma hér á myntráði sem líklega á að ljúka með upptöku evru“. Þetta er undarleg staða sem er uppi innan ríkisstjórnarinnar. Það vill stundum gleymast þegar rætt er um stefnu í gjaldmiðlamálum að valið snýst öðrum þræði um mismunandi slæma valkosti. Fjármálaráðherra hefur ekki farið leynt með þá skoðun sína að festa eigi gengi krónunnar, þar sem einkum er horft til evrunnar, með svonefndu myntráði. Það má efast stórkostlega um að slíkt fyrirkomulag þjóni hagsmunum Íslands. Eigi fast- gengisstefna í gegnum myntráð að vera farsæl til lengri tíma litið er lykilatriði að það séu náin tengsl við hag- sveiflu þess myntsvæðis sem gengið er fest við. Fyrir liggur að svo er alls ekki í tilfelli evrusvæðisins þar sem Ísland hefur lítil sem engin tengsl við hagsveifluna í kjarnaríkjum myntbandalagsins. Hagsaga Íslands, hvort sem litið er til ríkisfjármála eða vinnumarkaðar- ins, gefur að sama skapi ekki tilefni til að ætla að stjórnvöld og atvinnulífið hafi þann aga sem til þarf til að framfylgja trúverðugri fastgengisstefnu. Slíkir aug- ljósir veikleikar í efnahagsmálum þjóðarinnar hverfa ekki við það eitt að breytt sé um gjaldmiðilsstefnu. Myntráðsleið myndi jafnframt útheimta gríðarlega gjaldeyrisforðasöfnun af hálfu Seðlabankans með tilheyrandi auknum vaxtakostnaði. Þótt bankinn hafi byggt upp forða sem nemur þriðjungi af landsfram- leiðslu þá þyrfti hann að vera margfalt stærri. Ófull- nægjandi gjaldeyrisvarasjóður myndi að öðrum kosti auka stórlega líkur á áhlaupi á bankakerfið og gjald- miðilinn um leið og fastgengið væri hætt að endur- spegla undirliggjandi efnahagsstærðir í hagkerfinu. Vogunarsjóði George Soros tókst eftirminnilega að fella breska pundið árið 1992 og það má efast um að 800 milljarða forði Seðlabankans yrði mikil fyrirstaða ef sambærilegir sjóðir myndu sjá tækifæri í því að láta reyna á fastgengisstefnu Benedikts Jóhannessonar. Það er áhyggjuefni að engin samstaða er á meðal helstu leiðtoga ríkisstjórnarinnar í mikilvægasta verk- efni núverandi stjórnvalda – endurskoðun peninga- stefnunnar. Og á meðan svo er má tæplega ætla að sú vinna eigi eftir að skila nokkrum árangri. Stefnuleysi Minna fúsk Afstaða Bjartrar framtíðar í umræðum á Alþingi í gær, um þá ákvörðun dómsmálaráðherra að hræra í lista hæfustu umsækj- enda um dómarastöðu í Lands- rétti, kom nokkuð á óvart. Björt framtíð gerði það að kosninga- loforði sínu að minnka fúsk og í ræðu á Alþingi 26. september síðastliðinn sagði Óttarr: „Við þurfum að snúa frá óreiðustjórn- málum og lausatökum síðustu ára. Handarbaksvinnubrögð og fúsk eiga ekki rétt á sér. Það þarf að vanda sig. Það er kallað eftir meiri heiðarleika í stjórnmálum og meiri sanngirni í samfélaginu.“ En afstaða Bjartrar framtíðar á þingi einkenndist frekar af ræðu Óttars frá nýliðnum eldhúsdegi: „Við erum ekki í stjórnmálum til að keppast um vinsældir.“ Guli takkinn Það munar einum manni á stjórn og stjórnarandstöðu á þessu kjörtímabili. Eftir sjö tíma heitar umræður á Alþingi um réttmæti ákvörðunar dómsmálaráðherra valdi Framsóknarflokkurinn gula takkann í þingsal. Þegar málið verður gert upp, jafnvel vegna mögulegs misbrests á trausti í garð dómstólsins, verður eftir því tekið að þingflokkurinn valdi að greiða ekki atkvæði. Á kjörtíma- bili þegar stjórnarandstaðan hefur raunveruleg tækifæri til að fá sitt fram. Það hefði kannski verið heiðarlegra að ýta bara á Framsóknargræna takkann. snaeros@frettabladid.is 2 . j ú n í 2 0 1 7 F Ö S T U D A G U R12 S k o ð U n ∙ F R É T T A B L A ð i ð SKOÐUN 0 2 -0 6 -2 0 1 7 0 4 :3 7 F B 0 4 8 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C F E -4 F B 4 1 C F E -4 E 7 8 1 C F E -4 D 3 C 1 C F E -4 C 0 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 4 8 s _ 1 _ 6 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.