Fréttablaðið - 02.06.2017, Page 20
Við Vilborg mælum okkur mót á heimili hennar í miðbæ Reykjavíkur. Hún býr
ásamt fjölskyldu sinni í fallegu bak-
húsi í grennd við einn helsta ferða-
mannastað höfuðborgarinnar.
Gatan er þó sérlega friðsæl og ekki
laust við að umhverfið minni eilítið
á útlönd.
Vilborg er með mörg járn í
eldinum þessa dagana og líf hennar
snýst aðallega um leiklist og leið-
sögn. „Ég er að leika í sjónvarps-
þáttaröð um Stellu Blómkvist, sem
Saga Film framleiðir. Mér sýnist
allt stefna í að þetta verði mjög
gott og spennandi sjónvarpsefni,
en þættirnir verða sýndir á næsta
ári. Heiða Reed leikur Stellu en
sjálf leik ég Láru sem er ráðuneytis-
stjóri í innanríkisráðuneytinu. Mér
finnst þetta afskaplega skemmti-
legt, enda er mitt mottó að geta
sagt að ég elski starfið mitt,“ segir
Vilborg brosandi.
Hún tekur daginn snemma því
klukkan sjö þarf hún að vera mætt
í smink. „Svo mæti ég á tökustað
og er tilbúin fyrir tökur. Ég er svo
heppin að vera í hópi með æðislega
hæfileikaríku fólki. Í gegnum tíðina
hef ég leikið meira í sjónvarpi en
í kvikmyndum en þó mest á sviði.
Ég lék í kvikmynd árið 2002 og svo
í Hross í oss árið 2012 og á þessum
tíma hafa orðið gríðarlegar fram-
farir í kvikmyndagerð hérlendis.“
Konum troðið í búning
Vilborg hefur alltaf haft sterkar
taugar til leikhússins og mun stíga
á svið í Iðnó á sjálfan þjóðhátíðar-
daginn. „Ég er líka í stórskemmti-
legu verkefni með leikhúslista-
konum í Iðnó. Við erum að búa
til sýningu sem heitir Konur og
krínólín þar sem farið er yfir bún-
ingasögu kvenna og öll þau form
sem konum hefur verið troðið í í
gegnum tíðina. Við tökum tíma-
bilið frá 1890-1990 með húmorinn
að vopni. Edda Björgvins er hand-
ritshöfundur og sögumaður og það
verður geggjuð tónlist í sýning-
unni. Áður en sýningin hefst munu
reiðkonur úr Fáki ríða á hestum í
kringum Tjörnina, að sjálfsögðu í
fallegum og kvenlegum búningum.
Þetta verður mikil gleði,“ segir
Vilborg, sem skorar á fólk að láta
Konur og krínólín þann 17. júní
sem verður sýnt kl. 16.00 ekki fram
hjá sér fara en aðgangur er ókeypis.
„Svo er ég að skrifa kvikmynda-
handrit upp úr mjög spennandi
bók. Ég vil að svo komnu máli
ekki gefa upp hvaða bók þetta er,
en þetta er mjög áhugavert efni,“
segir Vilborg leyndardómsfull en
hún hefur áður skrifað leikrit um
landnámsmanninn Gauk á Stöng.
Leikritið var sett upp í Árnesi en
„Ég er í stórskemmtilegu verkefni
með leikhúslistakonum í Iðnó. Við
erum að búa til sýningu sem heitir
Konur og krínólín þar sem farið er
yfir búningasögu kvenna og öll þau
form sem konum hefur verið troðið í
í gegnum tíðina.“
Á toppi Agung fjalls á Balí sem er
3.142 metrar á hæð, ásamt leiðsögu-
manni. Þetta er brattasta fjall sem
Vilborg hefur klifið. Í haust ætlar Vilborg að fara til Balí með hóp Íslendinga og kynna fyrir þeim dásemdir eyjarinnar.
Sigríður Inga
Sigurðardóttir
sigriduringa@365.is
„Ég er að leika í sjón-
varpsþáttaröð um
Stellu Blómkvist,
sem Saga Film
framleiðir. Mér
sýnist allt
stefna í að
þetta verði
mjög gott og
spennandi
sjónvarps-
efni.“
MYND/STEFÁN
Vilborg leikstýrði því og sá auk
þess um svið og búninga. „Þetta
var ótrúlega gaman og gefandi.
Þegar maður hefur lært leiklist
hefur maður hana alltaf hjá sér.
Mig langar að halda áfram að vinna
með Gauk á Stöng og draumurinn
er að setja leikritið upp í þjóð-
veldisbænum Stöng í Þjórsárdal
yfir sumartímann.“
Of fá kvenhlutverk
Mikil umræða hefur verið um
konur í leiklist og að hlutverk séu
almennt of fá og fari fækkandi eftir
því sem leikkonur eldast. Vilborg
tekur undir þetta og þegar hún er
spurð hvort hún finni fyrir þessu á
eigin skinni segist hún að sjálf-
sögðu gera það. „Sem betur fer
er þó að verða vitundarvakning í
þessum efnum. Konur verða bara
að taka þetta í sínar hendur og
skrifa ný hlutverk fyrir sig, skapa
sér verkefni og koma þeim á kopp-
inn. Það er ekki spurning hvort eða
hvenær þær þurfa að gera. Þetta
þarf að gerast núna. Kvenleikinn
er líka alls konar. Við þurfum líka
öll að vera meðvituð um hlutverk
kvenna, t.d. í kvikmyndum. Eru
þær bara til skrauts? Hafa þær
eitthvað merkilegt að segja eða
eru þær bara að tala um karlana
í myndinni? Hugsaðu þér að það
bráðvanti barnasögur þar sem
aðalsöguhetjan er stúlka en ekki
prinsessa.“
Á leiðinni til Balí síðan ’78
Vilborg hefur aldrei verið hrædd
við að takast á við ný verkefni. Auk
leiklistarinnar hefur hún um árabil
starfað við leiðsögn og sýnt Ítölum
náttúru Íslands. Í haust ætlar
hún að söðla um og fara með hóp
Íslendinga til Balí og sýna þeim
dásemdir eyjarinnar. „Ferðin til
Balí er hluti af því að gera bara það
sem mér finnst skemmtilegt. Ég er í
samstarfi við Farvel og þetta verður
ævintýraleg ferð því við munum
gista á fjórum mismunandi
stöðum. Við förum m.a. út í eyju
sem heitir Gili og er paradís líkust
og þar munum við gista á hóteli
sem samanstendur af strákofum.
Ströndin þarna er guðdómleg og
sjórinn sá hreinasti sem ég hef
verið í. Þetta er ekki jógaferð heldur
er tilgangurinn að vera til og njóta
lífsins. Fólk getur gengið
á fjöll, hjólað eða
slakað á. Það er
ástæða fyrir því
að fólk leitar
til Balí, fólk
finnur hvað
þetta er heil-
agur staður.
Eyjan er eins
og stöðug
veisla fyrir
augað,“ segir
Vilborg glað-
lega en hún
hefur kynnst Balí
ágætlega og dvalið
þar nokkrum sinnum.
„Segja má að ég hafi verið
á leiðinni þangað síðan árið 1978
þegar ég samdi textann við lagið
Mér finnst rigningin góð með
Grafík.“
Syngur á Lögbergi
Vilborg segist hafa verið plötuð út
í leiðsögn fyrir tuttugu árum því
hún tali ítölsku. „Það var áskorun
fyrir mig en þannig viðheld
ég tungumálinu. Ég elska Ítali,
hvernig þeir eru, hvað þeir hafa
góðan húmor fyrir sjálfum sér og
eru mikil náttúrubörn. Ítalir eru
mjög hrifnir af íslenskri náttúru.
Þeir eiga það sameiginlegt með
okkur Íslendingum að hafa barns-
legt hjarta. Þeir hafa kennt mér
ótrúlega margt, og ég þeim.“
Leiklistin hefur komið sér vel
í starfi leiðsögumannsins og Vil-
borg segist nýlega hafa gert sér
grein fyrir því að hún hafi í raun
staðið á sviði í tuttugu ár. „Ég er
alltaf fyrir framan hóp af fólki.
Á Þingvöllum nota ég Lögberg
sem svið og syng fyrir ferðamenn,
og ekki bara mína. Ég syng mjög
oft lagið hans
Áskels Mássonar
sem er við texta
Halldórs Laxness
„Þegar danski fáninn var
týndur við Öxará“ en hann lætur
ljóðið gerast þar.“
Íslensk náttúra er Vilborgu hug-
leikin og hún hefur ákveðnar skoð-
anir á því hvernig stjórnvöld halda
á ferðamálum. „Ég hef skrifað
margar greinar til varnar íslenskri
náttúru og hef skoðanir á alls
konar hlutum. Það er margt sem
ég er ekki sátt við en ég get ekki
dvalið í ósættinu og verið sífellt
neikvæð. Ég vil vera sólarmegin í
lífinu. Ég vona að okkur beri gæfa
til að hafa rammann þannig að
ferðamennskan sé í jafnvægi við
lífið í landinu, eins mér finnst hafa
tekist á Balí. Þar eru t.d. reglur um
hvar megi byggja hótel og hvar
ekki og það er bannað að byggja
háa hótelturna yfir lágreista byggð
eyjarinnar. Við getum tekið okkur
margt þaðan til fyrirmyndar. Við
Íslendingar viljum vera svo mikið í
nútímanum að við gleymum hvar
ræturnar okkar liggja. Það eru þær
sem eru aðalaðdráttaraflið fyrir þá
gesti sem sækja landið heim,“ segir
hún að lokum.
MENNTASKÓLINN Í KÓPAVOGI
HÓTEL- OG MATVÆLASKÓLINN | FERÐAMÁLASKÓLINN | LEIÐSÖGUSKÓLINN
Þekking - Þroski - Þróun - Þátttaka
STÚDENTSNÁM:
• Alþjóðabraut
• Félagsgreinabraut
• Raungreinabraut
• Viðskiptabraut
• Opin braut
• Framhaldsskólabraut
KYNNTU ÞÉR MÁLIÐ Á WWW.MK.IS OG Á FACEBOOK SÍÐU SKÓLANS
GRUNNDEILD MATVÆLA OG FERÐAGREINA:
• Bakari
• Framreiðslumaður (þjónn)
• Kjötiðnaðarmaður
• Matreiðslumaður (kokkur)
eða starfa í ferðaþjónustu
Sími: 594 4000
Menntaskó l inn í Kópavog i - #mk l í f ið
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 . j ú n í 2 0 1 7 F Ö S T U DAG U R
0
2
-0
6
-2
0
1
7
0
4
:3
7
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
F
E
-8
1
1
4
1
C
F
E
-7
F
D
8
1
C
F
E
-7
E
9
C
1
C
F
E
-7
D
6
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
4
8
s
_
1
_
6
_
2
0
1
7
C
M
Y
K