Fréttablaðið - 08.07.2017, Síða 2

Fréttablaðið - 08.07.2017, Síða 2
Lokað yfir helgi Geirsgötu var lokað í gær og stendur lokunin fram yfir helgi. Hjáleið er um Skúlagötu, Ingólfsstræti, Hverfisgötu og Tryggvagötu á meðan. Hjáleiðin er færð svo framkvæmdir við bílakjallara Hafnartorgs geti fram haldið. Ný Geirsgata mun liggja ofan á kjallaranum. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR Veður Fremur hæg norðanátt í dag, en vestlæg átt sunnanlands. Yfirleitt bjart á suðvestanverðu landinu, en sums staðar skúrir austan til, einkum seinnipartinn. sjá síðu 32 menning „Það er aðeins of mikið framboð af of líkum viðburðum og maður finnur að það hefur áhrif. Við ákváðum því að bjóða þetta tveir fyrir einn tilboð og núna flýgur þetta út,“ sagði tónleika- haldarinn Þorsteinn Stephensen við Fréttablaðið í gær um miðasölu á tónleika rapparans Young Thug í Laugardalshöllinni sem haldnir voru í gærkvöldi. Athygli vakti þegar viðburða- fyrirtæki Þorsteins, Hr. Örlygur, tilkynnti að viðskiptavinum Nova og þeim sem nota snjallforritið Aur byðust tveir miðar á tónleikana Kronik Live, þar sem Young Thug var aðalatriðið, á verði eins. Þar komu einnig fram ellefu innlendir flytjendur, þar á meðal Emmsjé Gauti, Gísli Pálmi og rappsveitin Úlfur Úlfur, og var miðaverð 9.900 krónur. Um fjögur þúsund miðar voru í boði og þegar blaðamaður heyrði í Þorsteini fyrir hádegi í gær var búið að selja um 3.100. „Miðasalan var aðeins undir væntingum en ég var svo sem ekkert stressaður. Við erum með frábæran viðburð en vildum hafa hann vel aðgengilegan fyrir krakk- ana sem eru komnir í sumarvinn- una og verðum með stútfullt hús.“ Þorsteinn bendir á að á tónleika- hátíðinni Secret Solstice í Laugar- dalnum í júní hafi stigið á svið bæði innlendir og erlendir lista- menn hip hop senunnar og fór þar bandaríski rapparinn Rick Ross fremstur í flokki. Í næstu viku muni svo bandaríski rapparinn Post Malone halda tónleika í Hörpu og hljómsveitin Migos troða upp í Laugardalshöll um miðjan ágúst. Einnig megi sjá vinsælustu inn- lendu rapparana á Þjóðhátíð 2017 og á mörgum öðrum tónleikum í sumar. „Þetta er verkefni sem ég er að vinna með gömlum samstarfs- manni, Robba Kronik, og þetta hafði staðið lengi til. Við ákváðum að prófa og ég held að við endur- tökum þetta klárlega á næsta ári með einhverjum svipuðum hætti. Að ég verði með mikið af rappi þar inn á milli finnst mér ekki líklegt,“ sagði Þorsteinn. haraldur@frettabladid.is Offramboð á rappi heggur í miðasölu Sala á tónleika Young Thug í Laugardalshöll var undir væntingum þangað til tveir miðar fengust á verði eins. Tónleikahaldari segir stefna í offramboð á rapp- tónleikum enda séu margir innlendir og erlendir listamenn að stíga á svið. Bandaríski rapparinn Rick Ross tróð upp á Secret Solstice. FRÉTTABLAÐIÐ/AndRI Bibione Feneyjar Verona Ljubljana Bled ADRIAHAF Króatía - Porec & Umag TRIESTE Garda TRIESTE Frá kr. 39.950 báðar leiðir m/sköttum og tösku. á flugsæti FY RI R2 1 ÁÐUR KR. 79.900 NÚ KR. 39.950FL UG SÆ TI flugsæti í sólina sAmgÖnguR Landamæraeftirlit yfir ytri landamæri Schengen-svæðis- ins verður hert og mun breytingin einnig taka gildi á Íslandi. Regl- urnar tóku gildi 7. apríl. Ísland til- kynnti að sex mánaða aðlögunar- tími fyrir Keflavíkurflugvöll yrði nýttur og tekur breytingin því gildi hér á landi þann 7. október nema óskað verði eftir frekari framleng- ingu. Meginreglan verður sú að kerfis- bundið/ítarlegt eftirlit verður með öllum, að því er segir í skriflegu svari dómsmálaráðuneytisins til Fréttablaðsins. Breytingin tekur einnig gildi á Kastrup-flugvelli í Danmörku. Stjórnendur á Kastrup sögðu við danska ríkisútvarpið að búast mætti við lengri bið og seinkun á flugi til 2019 vegna aukins eftirlits. Þegar mest sé að gera megi jafnvel gera ráð fyrir að farþegar missi af tengiflugi. Ólafur Helgi Kjartansson, lög- reglustjóri á Suðurnesjum, segir í skriflegu svari til Fréttablaðs- ins að skoðað verði á næstunni hvernig staðið verði að því að mæta þessum nýju reglum. „Ekki er ljóst á þessari stundu hvort tafir verða og þá hversu miklar þær kunni að verða. Það verður að koma í ljós. Lögreglustjórinn á Suðurnesjum vinnur stöðugt að því að fylgjast með og bregðast við breytingum.“ – ibs Mögulegar tafir vegna herts eftirlits Hert eftirlit verður á Keflavíkurflug- velli í haust. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Young Thug sLYs Erlendur ferðamaður lést þegar hann féll fram af hamrabrún í Hljóðaklettum í gær. Slysið átti sér stað á fjórða tímanum í gær. Maðurinn féll um fimmtán til tuttugu metra. Nánari tildrög liggja ekki fyrir en ekki er uppi grunur um saknæmt athæfi. Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út vegna slyssins en send til baka eftir að maðurinn var úrskurðaður látinn á vettvangi. Þyrlan var einnig kölluð út eftir að kona hrapaði sextíu metra í Kirkjufelli við Grundarfjörð. Konan var í hópi fólks sem gekk óvanalega leið upp fjallið. Konan var flutt til Reykjavíkur með þyrlunni en nánari upplýsing- ar um líðan hennar lágu ekki fyrir þegar Fréttablaðið fór í prentun. Björgunarsveitarfólk aðstoðaði samferðafólk hennar af fjallinu. – jóe Banaslys í Hljóðaklettum 8 . j ú L í 2 0 1 7 L A u g A R D A g u R2 f R é t t i R ∙ f R é t t A B L A ð i ð 0 8 -0 7 -2 0 1 7 0 3 :4 0 F B 0 7 2 s _ P 0 7 1 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D 4 8 -0 0 A 8 1 D 4 7 -F F 6 C 1 D 4 7 -F E 3 0 1 D 4 7 -F C F 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 7 2 s _ 7 _ 7 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.