Fréttablaðið - 08.07.2017, Side 22

Fréttablaðið - 08.07.2017, Side 22
8 . j ú l í 2 0 1 7 l A U G A R D A G U R22 H e l G i n ∙ F R É T T A B l A ð i ð Guðbjörg Gunnarsdóttir Staða: Markvörður Félagslið: Djurgården í Svíþjóð Fædd: 1985 Landsleikir (mörk): 51 (0) Treyjunúmer: 1 Markvörðurinn magnaði þurfti lengi að standa í skugganum af Þóru Björgu Helgadóttur en fékk tækifærið á EM fyrir fjórum árum og hefur ekki litið um öxl síðan. Meistari á Íslandi, meistari í Noregi, bara algjör meistari sem er eins mikill lykilmaður í íslenska liðinu og þeir gerast. Dagný Brynjarsdóttir Staða: Miðjumaður Félagslið: Portland Thorns í BNA Fædd: 1992 Landsleikir (mörk): 70 (19) Treyjunúmer: 10 Einn allra mikilvægasti leikmaður íslenska liðsins. Rangæingurinn hefur allt til brunns að bera en hún er stór, kraftmikil, góð á boltann og skorar mörk. Dagný hefur verið mikið meidd og spilað lítið í nýju leikkerfi landsliðsins en það eina sem skiptir máli er að hún sé heil og geti spilað alla leiki íslenska liðsins. Hún er rétt á eftir Söru Björk sé liðið sett upp á styrkleikalista leikmann fyrir leikmann og svona gæði þarf að hafa inni á vellinum. Harpa Þorsteinsdóttir Staða: Framherji Félagslið: Stjarnan Fædd: 1986 Landsleikir (mörk): 61 (18) Treyjunúmer: 16 Harpa „Marka“ Þorsteins- dóttir var lengi í gang fyrir íslenska landsliðið en þegar stíflan brast gerðist það með látum. Þessi markheppni og öflugi framherji var markahæst í undan- keppni EM en eignaðist svo barn og var óvíst hvort hún færi með til Hollands. Hún gerði nóg til að heilla Frey á lokametr- unum, meðal annars með góðu samtali. Hún er síðan í síðustu leikjum í Pepsi-deild- inni byrjuð að skora aftur að vild. Það eru einhver ánægju- legustu tíðindi sem íslenska liðið gat fengið. Freyr talaði um að hún yrði í minna hlutverki en áður en ef hún er að skora eins og hún á að sér verður erfitt fyrir hann að halda Hörpu fyrir utan byrjunarliðið í fyrsta leik. Agla María Albertsdóttir Staða: Framherji Félagslið: Stjarnan Fædd: 1999 Landsleikir (mörk): 4 (0) Treyjunúmer: 17 Annar EM-nýliði sem stal farseðli á lokametrunum. Kópavogsstúlkan sem yfirgaf Breiðablik, fór í Val en fann sig svo í Stjörnunni er aðeins 17 ára gömul en virðist vera, eins og svo margir aðrir ungir leikmenn, klár í slaginn. Gríðarlega kraftmikill leikmaður sem byrjaði síðustu tvo leiki Íslands. Anna Björk Kristjánsdóttir Staða: Varnarmaður Félagslið: LB07 Fædd: 1989 Landsleikir (mörk): 31 (0) Treyjunúmer: 19 Stjörnukonan var búin að festa sér sæti við hlið Glódísar Perlu í byrjun- arliðinu en síðan kom Sif Atladóttir á fullu til baka og nýtti sér meiðsli Önnu eins og Anna gerði þegar Sif var frá. Núna geta þær allar spilað saman í þriggja manna miðvarða- kerfinu. Ekki slæmt þríeyki það með Glódísi Perlu. Arna Sif Ásgrímsdóttir Staða: Varnarmaður Félagslið: Valur Fædd: 1992 Landsleikir (mörk): 12 (1) Treyjunúmer: 21 Önnur frá Norðurlandi sem hefur staðið sig vel í þeim landsleikjum sem hún hefur spilað. Komst út í atvinnumennsku en kom heim til Vals þar sem hún spilar núna. Mið- vörður sem gefur ekkert eftir en spurning er hvort hún komi mikið við sögu á mótinu. PANTAÐU FRÍAN TÍMA Í SKOÐUN STRAX Í SÍMA 893-0098 HÁRÆÐASLIT Í ANDLITINU ? ÞAÐ ER TIL LAUSN - VIÐ FJARLÆGJUM HÁRÆÐASLIT ENDANLEGA Í ANDLITI Hraunbæ 102 • Reykjavík • S. 893 0098 • snyrtistofanhafblik@gmail.com Snyrtistofan Hafblik Fyrir Eftir Þetta eru stelpurnar Glódís Perla Viggósdóttir Staða: Varnarmaður Félagslið: Eskilstuna í Svíþjóð Fædd: 1995 Landsleikir (mörk): 54 (2) Treyjunúmer: 4 Fyrir fjórum árum var Glódís Perla efnilegasti varnar- maður íslenska landsliðsins, að- eins 17 ára gömul. Hún var valin í lokahópinn fyrir EM 2013 eftir að spila fyrsta landsleikinn sinn árinu áður. Nú er Glódís Perla besti varnarmaður íslenska liðsins og algjör lykilmaður. Glódís er hugsandi varnarmaður sem staðsetur sig frábærlega og er ótrúlega góð á boltann. Það gerist varla að sendingar frá henni út úr vörninni rati ekki á samherja. Hún er búin að spila 54 landsleiki þrátt fyrir að vera aðeins 22 ára gömul. Sara Björk Gunnarsdóttir Staða: Miðjumaður Félagslið: WfL Wolfsburg í Þýskalandi Fædd: 1990 Landsleikir (mörk): 106 (18) Treyjunúmer: 7 Heill sé þér, fyrirliði góður. Sara Björk er besta fótboltakona sem Ísland á í dag og það styttist í að talað verði um hana sem þá bestu allra tíma. Engin hefur náð jafn langt og það er ekki að ástæðulausu. Óþreytandi baráttujaxl sem hefur lagt ævintýralega mikið á sig til að komast í eitt besta fé- lagslið heims. Sara Björk er jafn mikilvæg fyrir kvennalands- liðið og Gylfi Þór er fyrir karlaliðið. Það er ekkert að því að vera með einn besta miðjumann Evrópu í sínu liði. Hún tók við fyrirliðabandinu af Margréti Láru eftir að hún meiddist. okkar 0 8 -0 7 -2 0 1 7 0 3 :4 0 F B 0 7 2 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D 4 8 -1 E 4 8 1 D 4 8 -1 D 0 C 1 D 4 8 -1 B D 0 1 D 4 8 -1 A 9 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 7 2 s _ 7 _ 7 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.