Fréttablaðið - 08.07.2017, Page 47

Fréttablaðið - 08.07.2017, Page 47
Draumurinn um stórt hús í úthverfi hefur lengi fylgt Bandaríkjunum, því stærra því betra. Draumurinn verður þó æ fjarlægari eftir því sem húsaverð og kostnaður hækkar. Því hefur það gerst hægt og rólega að hugmyndir ungra Bandaríkja- manna eru að breytast. Þannig hafa til að mynda orðið til heilu samfélögin og hverfin þar sem lögð er áhersla á lítil heimili þar sem hagkvæmni og nægjusemi er látin ráða. Hér eru nokkur dæmi um slík samfélög: Bestie Row Fern vinahjón ákváðu einn daginn að segja skilið við gamlan lífsstíl sinn og byggja í sameiningu lítil umhverfis- væn hús í Llano í Texas. Hver fjölskylda hefur yfir að ráða um 40 fm húsi en sameigin- legt 140 fm útisvæði er notað til að elda saman og halda veislur. Dignity Village Vandi heimilislausra fer sífellt stækkandi. Dignity Village í Portland var í upp- hafi tjaldborg sem var reist til að vekja athygli á slæmri meðferð á heimilislausum í borginni. Árið 2003 voru reist lítil hús í stað tjaldanna þar sem heimilislausir gátu átt sitt heimili. Orlando Lakefront Orlando Lakefront er svæði með litlum húsum og hús- bílum. Í samfélaginu eru 13 smáhýsi og 50 pláss undir húsbíla. Bestie Row. Samfélög í smáhýsum Þegar innrétta á litla sumarbústaði er eitt og annað sem gott er að hafa í huga. Góð hugmynd er að hafa hurðir með gleri í staðinn fyrir þær hefðbundnu, það stækkar rýmið og hleypir birtunni inn. Annað gott ráð til að stækka rýmið er að hafa stóran spegil, til dæmis sem stendur á gólfinu og nær upp eftir veggnum. Rýmið stækkar til muna við þessa litlu breytingu. Sólin lýsir upp umhverfi og stækkar það um leið. Þess vegna ættu að vera stórir gluggar á sumarbústöðum, sérstaklega út á veröndina. Gluggatjöld ættu að vera óþörf. Áríðandi er að velja ekki of stór húsgögn í lítið rými. Sófasett ætti til dæmis ekki að vera mjög þung- lamalegt, betra er að velja léttari húsgögn, til dæmis í skandinavísk- um stíl. Ef hægt er að koma því við er betra að hafa húsgögn frístand- andi heldur en upp við vegg. Veggi ætti að mála í ljósum litum. Það er allt í góðu lagi að mála einn og einn vegg í lit en ljósari litir stækka rýmið. Ágætt er að nýta lofthæðina og setja hillur og skápa ofarlega á vegginn til að geyma hluti sem annars eru lítið notaðir, sérstaklega í svefnher- berginu. Lítil rými geta verið stærri Bandaríski arkitektinn Luke Clark Tyler vakti athygli fyrir nokkru á YouTube fyrir að hafa komið sér vel fyrir í einungis 7,2 fermetra íbúð á Manhattan. Með útsjónar- semi og mímímalískan lífsstíl að leiðarljósi innréttaði hann íbúðina og kom fyrir rúmi, sófa skrifborði, hirslum og ísskáp. Vatn þurfti hann að sækja á baðher- bergi frammi á gangi. Þetta var þó ekki hans fyrsta smáíbúð, hann bjó áður í heilum 9 fermetrum og hafði því minnkað talsvert við sig. 9 fermetra íbúðin var innréttuð á svipaðan máta, einbreitt rúmið féll niður úr veggnum eins og hilla og undir því var þriggja sæta sófi. Miðsætinu í sófanum mátti snúa við og breyta í lítið borð. Á vegg kom hann fyrir hillum og skrif- borði og í öðrum enda íbúðarinnar var pínulítill vaskur og ísskápur, ofan á ísskápnum voru eldavéla- hellur og yfir þeim vinnuborð á hjólum sem hann dró fram til að elda. Myndir af íbúðinni má sjá á www.villagevoice.com. Útsjónarsamur mínímalisti FÓLK KYNNINGARBLAÐ 9 L AU G A R DAG U R 8 . j ú l í 2 0 1 7 0 8 -0 7 -2 0 1 7 0 3 :4 0 F B 0 7 2 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D 4 8 -4 5 C 8 1 D 4 8 -4 4 8 C 1 D 4 8 -4 3 5 0 1 D 4 8 -4 2 1 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 B F B 0 7 2 s _ 7 _ 7 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.