Fréttablaðið - 08.07.2017, Síða 58

Fréttablaðið - 08.07.2017, Síða 58
Jón Sverrir Árnason er að reima á sig hlaupaskóna og í þann veginn að taka á sprett. Hann æfir fyrir Reykjavíkurmaraþonið og ætlar að leggja þar 10 kíló- metra að baki. Hann er nýorðinn 13 ára, á afmæli 28. júní. En af hverju ætlar hann að taka þátt í Reykjavíkurmaraþoninu? Af því að mér finnst gaman að hlaupa og langaði að þakka félaginu Einstökum börnum fyrir allt sem það hefur gert fyrir mig, bróður minn og mömmu og pabba. Hefur þú tekið þátt áður? Já, nokkrum sinnum og það hefur alltaf verið jafn gaman. Ég safnaði 363.000 í fyrra fyrir félag- ið Einstök börn og núna langar mig að ná 750.000. Af hverju styrkir þú Einstök börn? Ég og bróðir minn erum með mjög sjaldgæfan, gena- tengdan og meðfæddan ónæmis- galla sem heitir CVID og ég er líka með mjög sjaldgæfan húð- sjúkdóm sem heitir EAC. En ert hlaupagikkur samt! Já, mér finnst svakalega gaman að hlaupa og get alltaf leitað í hlaupin þó ég sé búinn að vera lasinn. Setur þú þér ákveðin markmið í maraþoninu? Ég vil komast í mark á innan við klukkustund. Ætlar þú að hlusta á tónlist á leiðinni? Já, mér finnst það hjálpa mér að halda einbeitingu. Hvernig tónlist er í uppáhaldi hjá þér? Bara alls konar, ég hlusta á flest. Hvað gerir þú helst í frístund- um, annað en hlaupa? Spila körfubolta eða hjóla með vinum mínum, svo æfi ég badminton. Ætlar þú að flakka eitthvað í sumar? Ég verð nánast hverja helgi á Flúðum í sumar í útilegu. Pabbi minn og konan hans, Gerður, eru með hjólhýsi þar og amma mín og afi líka. Get alltaf leitað í hlaupin Jón Sverrir ætlar að safna fé fyrir félagið Einstök börn í Reykjavíkurmara- þoninu. FRéttablaðið/EyþóR ÁRnaSon Gulrótabóndinn Þetta er hópleikur og einn þátt- takandinn er bóndi sem ætlar að fara að taka upp gulræturnar sínar. Hinir þátttakendurnir liggja allir  á jörðinni og haldast í hendur eða krækja saman höndum. Þegar bóndinn nær að losa ein- hvern frá hringnum þannig að hann haldi ekki í neinn lengur þá breytist sá í gulrótabónda líka og fer að hjálpa til við uppskeruna. Það skal þó tekið fram að ekki má meiða neinn í þessum átökum, enda þurfa gulræturnar allar að vera heilar og fínar. Sá sem losnar síðastur byrjar sem næsti gulrótabóndi. Leikurinn Hvað er skemmtilegast við bækur? Að lesa þær! Hvaða bók lastu síðast og um hvað var hún? Ég las Lára fer í flugvél eftir Birgittu Haukdal, hún er um stelpu sem heitir Lára og fer til útlanda með flugvél. Ég las hana vegna þess að ég er sjálf að fara í flugvél eftir nokkra daga. Manstu eftir fyrstu bókinni sem var í uppáhaldi hjá þér? Já, bækurnar um Snuðru og Tuðru og svo líka Lárubækurnar. Hvernig bækur finnst þér skemmtilegastar? Mér finnst skemmtilegast að lesa ævintýra- bækur. Í hvaða skóla gengur þú? Ég er að fara að byrja í 4. bekk í Norð- lingaskóla í haust. Ferðu oft á bókasafnið? Já, mjög oft. Hver eru þín helstu áhugamál? Mér finnst skemmtilegt að leika við vinkonur mínar með bangsa og skauta á línuskautum. Svo er líka skemmtilegt að borða nammi! Lestrarhestur vikunnar Snædís Anna Heimisdóttir Að venju efna Borgarbókasafnið, Bókmenntaborgin og Forlagið til sumarlesturs meðal barna. Á bókasafninu skrifa þau nafn á áhuga- verðri bók sem þau hafa lesið á bókarkjöl ásamt nafni, aldri og síma- númeri. Í hverri viku fær einn heppinn þátttakandi bók að gjöf og í lok sumarsins er veittur einn veglegur vinningur. krakkar 8 . j ú l í 2 0 1 7 l A U G A R D A G U R Konráð á ferð og flugi og félagar Nú var illt í efni, þau voru rammvillt uppi á regin- fjöllum. „Hvar skyldum við nú vera?“ sagði Kon- ráð hugsi. „Við erum á leiðinni á Langanes og fórum norðurleiðina og núna eru bara endalaust há fjöll allt um kring og ég veit ekkert hvar við erum.“ Jafnvel fjalla- búinn Róbert þagði. „Ró- bert,“ sagði Kata lymsku- lega, en Róbert svaraði engu. „Við erum með kort, skoðum það,“ sagði Lísaloppa. „Sko,“ bætti hún við, „samkvæmt kortinu virðist þetta vera heljarmikill skagi með háum fjöllum.“ 257 Veist þú hvaða skagi þetta er? Er þetta: A. Tröllaskagi B. Reykjanesskagi D. Skipaskagi ? ? ? SVAR: A 0 8 -0 7 -2 0 1 7 0 3 :4 0 F B 0 7 2 s _ P 0 6 7 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 5 8 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D 4 8 -2 8 2 8 1 D 4 8 -2 6 E C 1 D 4 8 -2 5 B 0 1 D 4 8 -2 4 7 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 7 2 s _ 7 _ 7 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.