Fréttablaðið - 08.07.2017, Side 72
Dreifing dreifing@postdreifing.is
Ef blaðið berst ekki 800 1177
Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir
Ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja
mest lesna dagblað landsins.
ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF
FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ.
Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu.
Um árabil fylgdist þjóðin af áfergju með fréttum af danska konungsfólkinu.
Familje Journal og Hjemmet
voru vinsælustu blöð á landinu.
Þjóðhöfðingjar og annað frammá-
fólk hafa alltaf blómstrað í skini
frægðarinnar. Íslensku forsetarnir
reyndu líka að vekja athygli fyrir
að vera sem þjóðlegastir. Ásgeir
synti í gömlu sundlaugunum,
Kristján talaði við bændur, Vigdís
gróðursetti tré og Ólafur Ragnar
reið út og féll af baki að alþýðusið.
Sturla Sighvatsson frændi minn
reyndi mikið til að verða íslenskur
smákóngur á 13. öld. Hann lét
leiða sig beran að ofan milli allra
höfuðkirkna í Rómaborg þar sem
hann var hýddur fyrir syndir sínar.
Sturla hafði ekki aðgang að fjöl-
miðlum svo að þessi atburður varð
honum ekki til framdráttar í kosn-
ingabaráttu Sturlungaaldar. Hann
keppti við alla hina smákóngana á
Örlygsstöðum og tapaði stórt.
Núverandi forseti er sérlega fjöl-
miðlavænn. Hann syngur barnalög
í veislum og tekur á móti flótta-
mönnum í litskrúðugum sokkum.
Hann spjallar við Rammstein og
fyrirfólk af lítillæti og hæversku.
Nýlega birtust af honum myndir
uppi á Hvannadalshnúk í hópi
vaskra og fáklæddra fjallamanna.
Þrátt fyrir einstaka lýðhylli
hefur forsetinn þurft að sæta
gagnrýni vegna einstaka umæla
og embættisfærslna. Hann hefði
getað farið að dæmi Sturlu frænda
á jöklinum, klætt sig úr að ofan og
látið félaga sína húðstrýkja sig var-
færnislega í yfirbótarskyni fyrir
stóra „ananas á pizzur“ málið og
stóra „landsdómaramálið“. Með
þessu hefði hann slegið margar
flugur í einu höggi. Hann hefði
hlotið alþjóðlega frægð, hann
hefði einokað Facebook í eina
viku og fengið fyrirgefningu synda
sinna.
Farsæll forseti
Óttars
Guðmundssonar
BAKÞANKAR
OPIÐ ALLAN SÓLARHRINGINN
Í ICELAND ENGIHJALLA,
VESTURBERGI,
ARNARBAKKA
OG GLÆSIBÆ
SKRÁÐU ÞIG
Á 365.IS
SUMARLEIÐIN
0
8
-0
7
-2
0
1
7
0
3
:4
0
F
B
0
7
2
s
_
P
0
7
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
4
7
-F
B
B
8
1
D
4
7
-F
A
7
C
1
D
4
7
-F
9
4
0
1
D
4
7
-F
8
0
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
7
2
s
_
7
_
7
_
2
0
1
7
C
M
Y
K