Fréttablaðið - 22.06.2017, Blaðsíða 76
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is,
Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI
512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG
SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Mundir þú eftir að
bursta og skola í morgun?
GUM eru hágæða tannvörur
tannlæk
nar
mæla m
eð
GUM
tannvör
um
... fæst í næsta apóteki
og helstu stórmörkuðum
allar upplýsingar
á www.icecare.is
Urðarhvarfi 4 / 203 Kópavogi
Sími 557 4848 / www.nitro.is
RAFMAGNSVESPUR
Þarf ekki próf, tryggja eða skrá!
149.900,-
Svört, rauð eða hvít
Þarf ekki próf,
tryggja eða skrá!
ára
Starfsmanna-
og munaskápar
www.rymi.is
MERKIÐ
MITT
Skoðaðu litríkt úrval á bros.is
Bros auglýsingavörur,
Norðlingabraut 14.
Bros auglýsingavörur með þínu merki
Það fylgdust margir með Kolbrúnu Söru Larsen í fyrra í þáttunum Leitin að upprunanum, þegar hún hafði uppi á líffræði-
legri fjölskyldu sinni í Tyrklandi, en
Kolbrún var ættleidd til Íslands sem
barn.
„Lífið hefur breyst að mörgu leyti
eftir fjölskyldufundinn og þættina.
Núna er ég í sambandi við fólkið
mitt í Tyrklandi. Svo er það bara
spurning um tíma og peninga hve-
nær við förum, öll fjölskyldan, út og
hittum þau. Börnin eru að minnsta
kosti ofurspennt.
Breytingin fyrir mig felst aðallega
í því að núna veit ég hver staðan
var hjá foreldrum mínum og hvað
gerðist í raun. Það er það sem leitin
mín snerist um frá upphafi, að fá að
vita að ég hafi ekki verið yfirgefin.
Sú fullvissa er ómetanleg,“ segir Kol-
brún sem er nýflutt aftur til Íslands
eftir að hafa búið í Danmörku
ásamt fjölskyldu sinni í tæp fjögur
ár. Þegar hún flutti aftur til Íslands
varð hún vör við það hversu margir
landsmenn fylgdust spenntir með
ferðalagi hennar til Tyrklands.
„Við fengum gríðarlega jákvæð
viðbrögð. Fólk er forvitið og fylgdist
greinilega vel með og er óhrætt við
að spyrja mig. Það að ég hafi verið
ættleidd er ekkert leyndarmál og
hefur aldrei verið. Hjá sumum er
þetta feimnismál. Stundum, þegar
fólk spurði mig hér áður fyrr hvaðan
ég væri, þá að sjálfsögðu svaraði ég
hreint út að ég væri ættleidd. Þá var
stundum eins og fólki þætti það
óþægilegt. Sumir báðust meira að
segja fyrirgefningar á því að tala um
þetta,“ segir Kolbrún og hlær.
Vildi vera nær
fjölskyldunni
Spurð út í af hverju
hún og fjölskylda
h e n n a r á k v a ð
að flytja aftur til
Íslands frá Dan-
mörku segir hún:
„Okkur leið rosalega
vel úti en okkur fannst
bara orðið svolítið langt í
fjölskylduna. Og það
gekk ýmislegt á
síðastliðið ár,
bæði gleðilegt
og sorglegt,
sem við vild-
um taka þátt
í. Ég held
að það hafi
verið jákvætt
fyrir alla að
komast heim
og börnin-
blómstra í
öllu frelsinu
sem fæst með
því að flytja til
Íslands og út á
land,“ segir Kol-
brún sem á tvö
börn.
Kolbrún sneri
til baka til Húsa-
víkur, þar sem
hún ólst upp.
„Það er minn
heimabær og
ég var búin að
fá loforð um vinnu á spítalanum á
Húsavík áður en við tókum endan-
lega ákvörðunina,“ útskýrir Kol-
brún sem er hjúkrunarfræðingur.
Fjölskyldan er nú á höttunum
eftir húsnæði á Húsavík. „Við búum
inni á foreldrum því þó svo að það
sé næg vinna á Húsavík þá er vönt-
un á húsnæði hérna og við eigum
enn þá eftir að selja fallega húsið
okkar í Danmörku. Við erum búin
að vera með húsið á sölu í fjóra
mánuði, það þykir langur tími
á íslenskan mælikvarða en svo
sem ekkert langur tími miðað
við danskan. Við erum bara svo
óþolinmóð, enda Íslendingar að
upplagi,“ segir hún og hlær.
Google translate til bjargar
Aðspurð hvernig gangi svo að eiga
í samskiptum við fjölskyldu sína
í Tyrklandi kveðst Kolbrún vera
þakklát fyrir tæknina. „Ég get skrif-
að á ensku til sumra en svo skrifa
þau til mín á tyrknesku og þá nota
ég Google translate. Guði sé lof fyrir
tæknina,“ segir Kolbrún.
„Svo tölum við stundum saman á
Skype og þá sýni ég þeim hvað við
erum að gera eða hvar við erum. Þá
náum við að heyra rödd hvert ann-
ars og mamma sendir mér fingur-
kossa, það er frábært,“ segir Kol-
brún sem er farin að læra svolítið í
tyrknesku.
Spurð út í hvað sé svo fram undan
segist Kolbrún hafa áhuga á að segja
nánar frá sögu sinni. „Mig langar að
gefa út bók. Ég þarf bara að finna
einhvern með mér í lið, því ég er
enginn rithöfundur. Mig langar til
að gera sögu minni betri skil. Það
var svo mikið sem kom í ljós þegar
ég hafði uppi á fjölskyldunni minni
úti, meira en mig hefði nokkurn
tímann grunað. Og það var ýmis-
legt sem komst ekki að í þáttunum
þannig að þarna er mikil saga sem
þarf að skrásetja nákvæmar. Mig
langar að kafa í allar hliðar málsins.
Það eru nefnilega alltaf nokkrar
hliðar á hverju máli.“
gudnyhronn@365.is
Flutt aftur til Íslands
og íhugar bókarskrif
Kolbrún Sara Larsen, sem margir kannast við úr þáttunum Leitin
að upprunanum, er flutt aftur til Íslands eftir að hafa búið í Dan-
mörku í nokkur ár. Kolbrún segir lífið svolítið breytt eftir að þætt-
irnir komu út og íhugar nú að kafa dýpra í sögu sína og gefa út bók.
Kolbrún er
snúin aftur
til Húsavíkur.
FRÉTTABLAÐIÐ/
STEFÁN
Kolbrún og fjölskylda höfðu búið í Danmörku í næstum fjögur ár.
Mig Langar tiL að
gera Sögu Minni
betri SKiL. Það var Svo MiKið
SeM KoM Í LjóS Þegar ég
haFði uppi á FjöLSKyLdunni
Minni úti.
2 2 . j ú n í 2 0 1 7 F I M M T U D A G U R52 l í F I ð ∙ F R É T T A B l A ð I ð
2
2
-0
6
-2
0
1
7
0
4
:4
4
F
B
0
8
0
s
_
P
0
7
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
6
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
2
7
-0
8
0
0
1
D
2
7
-0
6
C
4
1
D
2
7
-0
5
8
8
1
D
2
7
-0
4
4
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
8
0
s
_
2
1
_
6
_
2
0
1
7
C
M
Y
K