Fréttablaðið - 22.06.2017, Blaðsíða 8
Árneshreppur „Það eru engir
almannahagsmunir eftir í þess
ari fyrirhuguðu framkvæmd og
þess vegna er ekki boðlegt að fara
fram með náttúrunni með þessum
hætti,“ segir Elín Agla Briem, einn
skipuleggjandi málþings um helg
ina um framtíð mála í Árneshreppi
á Ströndum.
Búist er við að fyrirferðarmesta
umræðuefnið á málþinginu í Tré
kyllisvík verði áform einkafyrir
tækisins Vesturverks sem gert hefur
vatnsréttarsamninga við jarðeig
endur í Ófeigsfirði vegna 55 mega
vatta virkjunar í Hvalá. Innan við
fimmtíu íbúar eru skráðir í Árnes
hreppi, minnsta sveitarfélagi lands
ins. Elín Agla segir að íbúar hafi
þungar áhyggjur af því að byggð
leggist þar af innan fárra ára.
„Það eru einhverjir sem eru á
móti og það ber meira á þeim
heldur en hinum þögla meirihluta,“
segir Eva Sigurbjörnsdóttir, odd
viti í Árneshreppi og hóteleigandi
í Djúpuvík, um afstöðu íbúanna til
virkjunarinnar.
Elín Agla segir að þegar hún flutti
í Árneshrepp árið 2007 hafi hún
heyrt svo góð samfélagsleg rök fyrir
Hvalárvirkjun að hún hafi þá verið
áformunum algerlega samþykk.
Hún hafi skipt um skoðun.
„Þetta átti að bæta afhendingar
öryggi á rafmagni á Vestfjörðum
almennt, laga veginn til okkar,
hingað myndi loks koma þriggja
fasa rafmagn og hér yrðu til nokkur
störf við virkjunina. Ekkert af þessu
stendur lengur,“ fullyrðir Elín Agla
sem er hafnarstjóri hreppsins og
titlar sig þjóðmenningarbónda.
Eva segir hins vegar að virkjun
inni muni fylgja betra rafmagn og
bættar samgöngur, meðal annars
yfir Veiðileysuháls og síðan frá
Eyrarhálsi og yfir í Ingólfsfjörð og
Ófeigsfjörð. Það sé rangt hjá virkj
unarandstæðingum að ekki verði
bættar samgöngur og betra raf
magn. „Það eru notuð frekar léleg
rök fyrir því að við ættum ekki að
gera þetta.“
Að sögn Evu mun Vesturverk
í sumar gera ýmsar rannsóknir í
Ófeigsfirði. Síðan sé fyrirtækinu
ekkert að vanbúnaði og fram
kvæmdir gætu hafist strax á næsta
ári. Þær myndu taka þrjú til fjögur
ár og hafa mjög jákvæð áhrif á
verslun og þjónustu á því tímabili.
Miklar líkur séu á að þetta verði að
veruleika.
„Ég lít líka á þetta sem ágætis
tekjumöguleika fyrir sveitina,“
segir Eva. Virkjunin muni skila
Árneshreppi um 30 milljónum
króna í fasteignagjöld árlega. Það
muni um minna í sveitarfélagi þar
sem núverandi heildartekjur séu 60
milljónir, jafnvel þó að um 15 millj
óna króna framlag úr jöfnunarsjóði
sveitarfélaga falli þá brott. Eftir
stendur því að tekjurnar vaxa um
25 prósent, fara úr 60 milljónum í
75 milljónir.
„Ég lít á þessa peninga sem stór
kostlegt tækifæri til að gera eitt
hvað fyrir íbúana hérna. Til að
bæta aðstöðu gamla fólksins sem
hefur þurft að flytja unnvörpum
burt þegar það er gamalt því við
höfum ekki haft efni á að gera neitt
fyrir það,“ segir Eva.
Snorri Baldursson, formaður
Landverndar, hefur gagnrýnt
Hvalárvirkjun opinberlega, meðal
annars í tveimur greinum á Kjarn
anum í fyrrahaust. Sagði Snorri
nær að stofna þjóðgarð á svæðinu
og skoraði á heimamenn að hafna
áformunum.
„Langtímaávinningur samfélags
ins á Ströndum af þjóð garði og
þeirri atvinnu upp bygg ingu sem
gæti orðið í kring um hann á næstu
ára tugum yrði marg faldur á við
virkj un,“ skrifaði Snorri á sínum
tíma.
Eva oddviti kveðst undrandi á
því að Landvernd hafi afskipti af
málinu. „Það er eins og allir séu
búnir að gleyma því að vatnsafls
stöðvar eru vistvænar. Ég bara skil
ekki hvað Landvernd er að gera
með því að setjast á svona lítið
sveitarfélag og hindra framfarir
því,“ segir hún.
Að sögn Elínar Öglu bindur hún
vonir við að málþingið varpi betra
ljósi á áhrif Hvalárvirkjunar heldur
en hingað til hefur verið gert. Á
heimsvísu sé reynt að sporna við
ágangi á náttúruna, sérstaklega
þegar einkaaðilar eigi í hlut.
„Þarna er verið að skerða ósnort
in víðerni og samkvæmt náttúr
verndarlögum þarf að rökstyðja að
það sé til almannahagsmuna,“ segir
Elín Agla Briem. gar@frettabladid.is
Volvo Penta á Íslandi | Brimborg • Bíldshöfða 6 • Sími 515 7070 • volvopenta.is
ÞÚ ERT Í ÖRUGGUM HÖNDUM
hjá volvo penta á íslandi
Öflug Volvo Penta þjónusta
Hjá Volvo Penta á Íslandi | Brimborg starfar framúrskarandi
teymi sem samanstendur af öflugum fagmönnum
Brimborgar og samstarfsaðilum um land allt.
Komdu í dag og ræddu við ráðgjafa.
HAFÐU SAMBAND Í DAG
• Sími: 515 7067 | 869 7537 Guðmundur Gísli
• Netfang: volvopenta@brimborg.is
• Heimasíða: volvopenta.is
Kauptu bestu varahlutina
Volvo Penta á Íslandi | Brimborg er með gott úrval varahluta
á lager og á mjög hagstæðu verði. Varahlutasérfræðingar
okkar veita þér fyrirtaksþjónustu og ráðgjöf við kaup.
Volvo Penta Kubbur_10x10_20170615_Draft1.indd 1 20.6.2017 13:47:16
Landvernd sögð standa í vegi
fyrir framförum í Árneshreppi
Umdeild virkjunaráform í Hvalá í Ófeigsfirði verða rædd á málþingi í Trékyllisvík nú um helgina. Oddviti
Árneshrepps segir Landvernd hindra framfarir í minnsta sveitarfélagi landsins, þar sem innan við fimmtíu
íbúar eru skráðir. Virkjunin myndi skila Árneshreppi um 30 milljónum króna í fasteignagjöld á hverju ári.
Vesturverk hyggst reisa 55 megavatta virkjun við Hvalá og tengja við rafmagnsnet Vestfjarða. Fréttablaðið/SteFán
Það eru engir
almannahagsmunir
eftir í þessari fyrirhuguðu
framkvæmd.
Elín Agla Briem,
hafnarstjóri og
þjóðmenningar-
bóndi
Það eru einhverjir
sem eru á móti og
það ber meira á þeim heldur
en hinum þögla
meirihluta.
Eva Sigurbjörns-
dóttir, oddviti
Árneshrepps
samfélag Vanskil húsnæðislána
eru nú í sögulegu lágmarki. Til
marks um það hefur Íbúðalána
sjóður einungis tekið til sín 23
eignir á uppboði á fyrstu fimm
mánuðum ársins. Fara þarf meira
en tíu ár aftur í tímann til að
finna jafn góða stöðu húseigenda.
Ástandið hefur því gjörbreyst frá
því fyrir nokkrum árum, en til
samanburðar eignaðist Íbúðalána
sjóður 832 eignir á uppboði árið
2010.
Þetta kemur fram í tilkynningu.
Útlit er fyrir að sjóðurinn eign
ist aðeins 5060 fullnustueignir á
þessu ári en alls eru í dag 536 eignir
í eigu sjóðsins og er söluundirbún
ingur vegna þeirra langt á veg kom
inn. Markmið sjóðsins er að ljúka
við að selja stóran hluta þessara
eigna á almennum markaði fyrir
árslok og verður gert átak í sölu
þeirra á komandi hausti.
Um 60 prósent eigna Íbúðalána
sjóðs eru í útleigu en um þriðjung
ur íbúðanna er leigður fyrri eig
endum þeirra. Sjóðnum er heimilt
að leigja fólki, sem missir íbúðir
sínar í kjölfar vanskila, þær aftur
tímabundið til að gefa því ráðrúm
til að finna nýtt húsnæði. Tveir
þriðju leigjenda sjóðsins hafa verið
í þrjú ár eða lengur í íbúðunum.
Þeim stendur til boða að kaupa
eignirnar, rétt eins og öðrum.
Gerðarþolar, þ.e.a.s. þeir sem
áttu íbúðina áður, geta þó einungis
keypt með láni frá Íbúðalánasjóði
að því gefnu að þeir séu ekki í
vanskilum við sjóðinn í dag. Fast
eignasalar annast söluna og verður
hagstæðasta tilboði tekið. Allir
samningar við leigjendur íbúðanna
eru tímabundnir og hafa leigu
samningar þeirra að undanförnu
verið endurnýjaðir að hámarki til
sex mánaða í senn. – bb
Sögulega lítið um vanskil húsnæðislána
Fara þarf tíu ár aftur til að finna jafn góða stöðu húseigenda. Fréttablaðið/Valli
DanmÖrK Konum sem ákveða að
eignast barn sem rannsóknir hafa
leitt í ljós á meðgöngu að sé með
Downsheilkenni fer nú fjölgandi í
Danmörku. Frá því að fósturskimun
hófst í Danmörku 1970 og fram til
1994 fæddist ekkert barn þar í landi
með Downsheilkenni í kjölfar
slíkrar greiningar við skimun. Allar
konurnar völdu fóstureyðingu.
Á milli 2005 og 2015 hafa fæðst 38
börn með Downsheilkennið þótt
foreldrar hafi vitað af litningagall
anum þegar á meðgöngu. Af þessum
38 greindust 13 eftir 22. viku með
göngunnar. Mögulega hafa foreldr
arnir þá ekki haft val, að því er segir
í frétt Kristilega dagblaðsins. – ibs
Fleiri velja
Downs-börn
lÖgreglumÁl Eugene Imotu, þriggja
barna föður sem hefur verið hér
á landi í þrjú ár, var í gær vísað úr
landi. Eugene er frá Nígeríu og hefur
búið hér með barnsmóður sinni
Reginu.
Tvö barna Eugene og Reginu fædd
ust á Íslandi. Þau hafa fengið synjun
um hæli í tvígang. Brottvísun Reginu
og barnanna var frestað á dögunum
en sama gilti ekki um Eugene sem
var handtekinn á þriðjudag og
fluttur á lögreglustöð. Brottvísuninni
var mótmælt við lögreglustöðina á
Hverfisgötu.
Elísabet Jean Skúladóttir og Ester
Hansen hafa starfað náið með
Eugene á veitingastaðnum Sægreif
anum. „Fjölskyldan er honum allt.
Hann er duglegur og metnaðarfull
ur og það skiptir hann mestu máli
að börnin hans fái sömu tækifæri
og aðrir að læra,“ sagði Elísabet við
fréttastofu í gær. - ngy
Fjölskylduföður
vísað úr landi
betri upplýsingar eru taldar eiga
þátt í að fleiri vilja eignast börn
með Downs-heilkenni.
38
börn með Downs-heilkenni
hafa fæðst í Danmörku frá
árinu 2005 til ársins 2015.
2 2 . j ú n í 2 0 1 7 f I m m T u D a g u r8 f r é T T I r ∙ f r é T T a B l a ð I ð
2
2
-0
6
-2
0
1
7
0
4
:4
4
F
B
0
8
0
s
_
P
0
7
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
6
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
2
7
-2
0
B
0
1
D
2
7
-1
F
7
4
1
D
2
7
-1
E
3
8
1
D
2
7
-1
C
F
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
0
8
0
s
_
2
1
_
6
_
2
0
1
7
C
M
Y
K