Fréttablaðið - 22.06.2017, Blaðsíða 30
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um-
fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar-
efni. Blaðið fylgir fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@365.is, s. 512 5349 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@365.is,
s. 512 5367 | Sólveig Gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351 Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@365.
is, s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@365.is, s. 512 5358 | Vera Einarsdóttir, vera@365.is, s. 512 5357
Útgefandi:
365 miðlar
Ábyrgðarmaður:
Svanur Valgeirsson
Sölumenn: Atli Bergmann, atlib@365.Is, s. 512 5457 | Jóhann Waage, johannwaage@365.Is, s. 512 5439 |
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.Is, s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson, olafurh@365.Is, s. 512 5433
Þegar þjónustufyrirtækið 1819 var stofnað haustið 2014 opnaðist glænýr valkostur
fyrir þá sem leita upplýsinga um
símanúmer en áður hafði einokun
ríkt á markaðnum í tíu ár. „Það tók
okkur nokkra mánuði að komast
inn á markaðinn en eftir það hefur
leiðin legið beint upp á við,“ segir
Ágústa Finnbogadóttir, fram-
kvæmdastjóri 1819. „Fólk hefur
tekið okkur afar vel enda erum við
meira en 30 prósentum ódýrari en
samkeppnisaðilinn auk þess sem
þjónustunúmerið okkar 1819 er
opið allan sólarhringinn, 365 daga
á ári,“ lýsir Ágústa en enginn annar
býður upp á slíka þjónustu. „Fólki
þykir það stór kostur enda mikið
öryggi í því að fólk geti leitað upp-
lýsinga allan sólarhringinn.“
Ekki er aðeins spurt um síma-
númer í 1819 heldur koma fyrir-
spurnir um allt milli himins og
jarðar og oft greiða þjónustufull-
trúar 1819 úr ýmsum vandamálum.
„Sumir hringja hingað í vanlíðan
og við leiðum þá á rétta staði. Oft
koma líka upp skemmtileg símtöl
með almennum fyrirspurnum um
hvort viðkomandi myndi heldur
kjósa bernaise- eða piparsósu
með lambakjötinu og hvernig
best sé að búa til rabarbaragraut.
Eitt sinn hringdi maður sem hafði
fengið nokkur kíló af kartöflum og
vantaði uppskriftir. Við fundum
þær fyrir hann og lásum upp,“ segir
Ágústa glettin. „Sumir hringja hér
inn til að segja okkur að þeir ætli
sér að stofna nýjan stjórnmála-
flokk og oft er hringt til að tjá sig
um daginn og veginn. Hér hefur
margsinnis hringt inn fólk og spurt
hvort að það sé dagur eða nótt,
jafnvel um hábjartan dag.“ Ágústa
tekur fram að öllum þessum sím-
tölum sé svarað af kurteisi og alúð
enda sé ávallt reynt að veita þær
upplýsingar sem beðið er um.
Ókeypis aukaupplýsingar
Bæði einstaklingar og fyrirtæki
geta nýtt sér þjónustunúmer
1819 og upplýsingar á vefnum
www.1819.is. Aukalega býður
fyrirtækið einstaklingum að bæta
upplýsingum við skráningu sína í
gagnagrunninum. „Þá skráir fólk
sig inn með rafrænum skilríkjum
og breytir skráningu sinni sjálft.
Þannig getur það bætt við upp-
lýsingum á borð við netföng,
starfsheiti og fleiri símanúmerum,
endurgjaldslaust,“ upplýsir Ágústa.
Öflug fyrirtækjaþjónusta
Líkt og með einstaklinga geta
fyrirtæki skráð aukaupplýsingar í
gagnagrunninn á borð við netföng,
vefföng, tengingu við samfélags-
miðla, opnunartíma, viðbótar-
númer/útibú. Allt þetta er frítt.
Síðan geta fyrirtækin einnig keypt
sérstaka skráningu sem gerir fyrir-
tækið sýnilegra á miðlum 1819.
„Fyrirtæki geta þannig fengið það
sem við köllum vörumerkjasíðu
sem inniheldur lógó, auglýsinga-
borða, bakgrunnslit, slagorð
auk leitarorða sem skipta miklu
máli þegar viðskiptavinur leitar
upplýsinga. Þjónustuverið gefur
upplýsingar um fyrirtækið auk þess
sem gríðarlegur fjöldi uppfletta
og innlita er á netinu á hverjum
degi. Allt þetta skiptir miklu máli
og eykur líkur á að fyrirtækið lendi
ofarlega í leitarniðurstöðu þegar
leitað er eftir tiltekinni þjónustu,“
segir Ágústa og tekur fram að 1819
sé einnig margfalt ódýrara en sam-
keppnisaðilinn þegar ofangreind
fyrirtækjaþjónusta er borin saman.
Nýtt app og Díllinn
Nýja 1819 appið inniheldur síma-
skrá yfir fólk og fyrirtæki og þaðan
er hægt að hringja beint. Þar er
einnig að finna hraðvirka leið til
vegvísunar ef fólk þarf aðstoð við
að rata og svo getur fólk fengið
númerabirtingu ef það vill vita
hver er að hringja.
„Appið er frábær leið til að leita
eftir upplýsingum um þjónustu,
einstaklinga eða fyrirtæki,“ segir
Ágústa en ekkert kostar að hlaða
niður appinu. Því fylgja að auki
þó nokkur fríðindi. „Díllinn fylgir
appinu en með honum er hægt
að fá fjölmörg spennandi tilboð
með góðum afslætti. Í Dílnum geta
fyrirtækin sem eru í þjónustu hjá
1819 boðið upp á ýmis tilboð þeim
að kostnaðarlausu,“ segir Ágústa
en Díllinn hefur notið mikilla vin-
sælda meðal viðskiptavina 1819.
Markhópalistar og
úthringi verkefni
1819 býður upp á meiri þjónustu.
Til dæmis geta fyrirtæki pantað
símnúmeralista yfir tiltekna mark-
hópa. „Segjum að fyrirtæki sem
þjónustar bændur vilji komast í
samband við bændur til að gera
könnun, þá getum við safnað
slíkum lista saman úr skránni
okkar. Síðan getur fyrirtækið valið
hvort það nýti listann sjálft og
hringi út eða hvort það vilji nýta
sér þjónustu okkar hjá 1819 um að
hringja út í þá sem eru á listanum.
Þetta er mikið nýtt til að gera kann-
anir og rannsóknir,“ lýsir Ágústa.
Fyrirmyndarfyrirtæki af VR
2017
1819 var valið fyrirmyndarfyrir-
tæki VR í vor í flokki miðlungs-
stórra fyrirtækja en þetta var í
fyrsta sinn sem fyrirtækið tók þátt.
„Þetta er frábær árangur og góð
viðurkenning og sýnir þá ánægju
og þann metnað sem sem ríkir
bæði hjá stjórnendum og starfs-
fólki.“
Hluti af ánægðu starfsfólki 1819 með viðurkenningu VR.
“Fólk hefur tekið okkur afar vel enda erum við meira en 30 prósentum ódýrari en samkeppnisaðilinn,” segir Ágústa. MyND/ANToN BRINk
Framhald af forsíðu ➛
Netverslun á tiskuhus.is
Holtasmára 1
201 Kópavogur
(Hjartaverndarhúsið)
Sími 571 5464
Stærðir 38-52
25% afsláttur af öllum vörur
frá ZHENZI og ZE-ZE
Vikuna 19. - 24. júní
Leiðbeinendur eru: Halla Birgisdóttir fararstjóri, Pétur Björnsson konsúll Ítalíu á Íslandi,
Jónas Þór fararstjóri, Höskuldur Frímannsson viðskiptafræðingur, Ómar Valdimarsson blaðamaður,
Magnús Björnsson fararstjóri í Kína, Pétur Óli Pétursson fararstjóri í Rússlandi, Bjarni Randver
Sigurvinsson kennari við Guðfræðideild H.Í., Sr. Bragi Skúlason sjúkrahúsprestur.
2 kyNNINGARBLAÐ FÓLk 2 2 . j ú n Í 2 0 1 7 F I M MT U DAG U R
2
2
-0
6
-2
0
1
7
0
4
:4
4
F
B
0
8
0
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
2
7
-3
E
5
0
1
D
2
7
-3
D
1
4
1
D
2
7
-3
B
D
8
1
D
2
7
-3
A
9
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
8
0
s
_
2
1
_
6
_
2
0
1
7
C
M
Y
K