Fréttablaðið - 22.06.2017, Blaðsíða 64
Finnski harmóníkuleikarinn Tatu
Kantomaa setti lit á íslenskt tón-
listarlíf um tólf ára skeið fyrir 2008
en hvarf þá til nyrstu slóða Finn-
lands. Nú er hann á landinu og
spilar í Hörpu í kvöld undir merki
Arctic Concerts. „Það er eigin tón-
list sem ég ætla að leika,“ upplýsir
hann. „Ég hef samið talsvert undan-
farin ár, einkum fyrir nútímasirkus,
danssýningar og leikhús. Sumir segja
þá tónlist undir áhrifum af franskri
harmóníkutónlist og argentínskum
tangó, hún verður í fyrri hluta dag-
skrárinnar og í síðari hlutanum eru
lög sem tengjast mínu heimasvæði,
Lapplandi.“
Tatu býr í borginni Rovaniemi, rétt
norðan við heimskautsbaug. „Þetta
er jólasveinabær með í kringum
30-40 þúsund manns. Skógur alls
staðar í kring og litlir bæir líka. Ég
kenni í tónlistarskóla, spila í sirkus,
leikhúsi og víðar þar sem vantar tón-
list,“ lýsir hann glaðlega.
Tatu kom með nýjan tón í
harmóníkumenninguna á Íslandi,
hélt tónleika um allt land, lék með
íslenskum tónlistarmönnum og
kenndi í skólum. Var í hljómsveit-
inni Rússíbönum og lék í leikhúsum,
meðal annars í Sjálfstæðu fólki,
Cyrano og Édith Piaf í Þjóðleikhús-
inu. Hann talar svo góða íslensku
að maður gleymir strax að hann er
útlendingur. „Ég var rúm tólf ár á
Íslandi, svo ég hafði góðan tíma til
að læra,“ segir hann.
Hann kveðst hafa lært á harmón-
íku í tvö ár í Hannover en þá verið
búinn að læra í fimmtán ár heima.
Skyldi harmóníkan vera sterk í Finn-
landi? „Það eru margir sem spila á
harmóníku ég get samt ekki sagt að
hún sé vinsælt hljóðfæri í dag, en
hún var það, eins og á Íslandi.“ – gun
Tatu með eigin tónlist í farteskinu
Tatu hefur síðustu ár einbeitt sér að
eigin tónsmíðum.
Blessuð! Þetta er full-komin tímasetning fyrir símaviðtal. Við vorum að klára fyrstu æfingu dagsins og næsta byrjar eftir sautján mínútur.“
Þannig byrjar píanósnillingurinn
Víkingur Heiðar samtal um tónlist-
arhátíð sína Reykjavík Midsummer
Music sem hefst í kvöld og lýkur á
sunnudagskvöld. Hann er maður
sem nýtir tíma sinn vel, er nýlentur
eftir flug frá Leipzig og æfir stíft milli
þess sem hann tekur á móti erlendu
gestunum sem ætla að spila með
honum næstu kvöldin.
Á opnunartónleikunum í Hörpu
í kvöld munu litrík kammerverk
tónskáldanna Mozart, Pärt og Stra-
vinsky fléttast saman og Víkingur
Heiðar segir flytjendurna vera
heimslið strengjaleikara hans kyn-
slóðar. Hvernig fer hann að því að fá
þá hingað? „Þetta er fólk sem ég hef
unnið með erlendis. Sumt af því er að
koma í fyrsta sinn til Íslands og það
er ekki af því að það hafi ekki verið
beðið áður. „Ég þekki það allt, margt
af því er vinir innbyrðis og þar er
skemmtileg stemning. Allt stjörnur.
Hljóðfærin eru líka öll metfé en þau
eru þögul út af fyrir sig, þetta fólk er
með þau af því það hefur unnið til
þess.“
Þetta er sjötta hátíðin sem Víking-
ur Heiðar heldur og hann segir hana
þá metnaðarfyllstu til þessa. „Mér
finnst bara óraunverulegt að það sé
að gerast hér á Íslandi að átta eftir-
sóttustu einleikarar yngri kynslóð-
arinnar í klassíska heiminum séu að
koma á mína litlu hátíð í Hörpu og ég
er svo þakklátur fyrir það.“
Dagskráin er á vefnum reykja-
vikmidsummermusic.com. Hún
er litrík og er ýmist flutt í Norður-
ljósum í Hörpu eða Mengi á Óðins-
götu. Í Mengi mun lengsti strengja-
kvartett sem saminn hefur verið, 5
klukkustundir Feldmans, hljóma á
sunnudag. „Skrítnasta verkið,“ segir
Víkingur Heiðar. „Að hlusta á það
er tækifæri sem fólki býðst kannski
bara einu sinni á ævinni. Ég hef
spilað annað verk eftir Feldman og
fyrsti hálftíminn var frekar lengi að
líða, annar miklu fljótari og sá þriðji
var eins og augnablik. Það gerist eitt-
hvað inni í svona geggjuðum hljóð-
heimi. Þeir sem sitja alla tónleikana
fá verðlaun, en það má líka alveg
ganga út og inn. Þema hátíðarinnar
er frelsi. Ég bað íslenska strokkvart-
ettinn Sigga að taka verkið að sér og
hann sagði já. Hátíðin er leikvöllur
hugmyndanna og stemningin er
jákvæð.“
En sefur Víkingur Heiðar ekki
í viku eftir svona álagstíma? „Nei,
nefnilega ekki, ég missi meira að
segja af lokapartíinu því klukkan
sjö á mánudagsmorgun fer ég út til
Noregs að spila á nýrri tónlistarhá-
tíð í Vestfold með Leif Ove Andsnes,
þekktasta og flottasta píanóleikara
Norðurlanda. Þú mátt bara ekki
minna mig á hvað þetta er mikið
brjálæði, það er best að hugsa ekki
um það heldur taka það sem æfingu
í að lifa í núinu.“
Hátíðin er leikvöllur
hugmyndanna
Reykjavík Midsummer Music, hátíð
Víkings Heiðars Ólafssonar píanóleikara,
hefst í kvöld og skartar flottum lista -
mönnum og forvitnilegum verkum.
„Tíminn líður svo hratt, það er ótrúlegt að aftur séu komnar sumarsólstöður,“ segir Víkingur Heiðar.
FréTTablaðið/Eyþór
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
MéR finnst baRa
ÓRaunVeRulegt að
það sé að geRast HéR á
Íslandi að átta eftiRsÓtt-
ustu einleikaRaR yngRi
kynslÓðaRinnaR Í klassÍska
HeiMinuM séu að koMa á
MÍna litlu HátÍð Í HöRpu og
ég eR sVo þakklátuR fyRiR
það.
L-Mesitran
Náttúruleg
sáragræðsla
með hunangi
- Fæst í apótekum -
Hunangsplástur og sárakrem með
hunangi. Hentar á allar tegundir sára.
Plásturinn hentar vel á lítil yfirborðssár.
Nauðsynlegur á sára hæla eftir göngur.
www.wh.is
2 2 . j ú n í 2 0 1 7 F I M M T U D A G U R40 M e n n I n G ∙ F R É T T A B L A ð I ð
menning
2
2
-0
6
-2
0
1
7
0
4
:4
4
F
B
0
8
0
s
_
P
0
7
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
2
6
-F
9
3
0
1
D
2
6
-F
7
F
4
1
D
2
6
-F
6
B
8
1
D
2
6
-F
5
7
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
8
0
s
_
2
1
_
6
_
2
0
1
7
C
M
Y
K