Fréttablaðið - 22.06.2017, Blaðsíða 40
ALLTAF
VIÐ HÖNDINA
Þú færð appið á visir.is/fbl eða beint í gegnum
... allt sem þú þarft
Þú getur lesið Fréttablaðið í heild sinni
á Vísi og í Fréttablaðs-appinu
Bókin gengur út á að upp-fræða og skemmta. Þetta er ekkert djók samt, bókin er
upplýsandi en ekki þurr fræði-
bók,“ útskýrir Heiðrún Ólafs-
dóttir, skáld og annar höfunda
nýútkominnar bókar sem kallast
Why are Icelanders so Happy?
Eða Af hverju eru Íslendingar
svona hamingjusamir?
Bókin geymir lykilinn að
íslenskri hamingju en Hrefna
Guðmundsdóttir félagssálfræð-
ingur er meðhöfundur Heið-
rúnar. Þær ætla bókina erlendum
ferðamönnum sem vilja kynn-
ast fólkinu sem byggir kalt og
hrjóstrugt land en skorar þrátt
fyrir það hátt í hamingjurann-
sóknum World Happiness report.
„Hamingjan er Hrefnu hjartans
mál og hún hefur stúderað
hamingjufræði og jákvæða sál-
fræði í mörg ár. Íslendingar eru í
þriðja sæti yfir hamingjusömustu
þjóðir heims og Hrefna sagði
eitt sinn við mig í hálfkæringi
að þeim upplýsingum þyrfti að
koma til ferðamanna. Ég greip
það á lofti en eftir að hafa unnið
í ferðaþjónustunni í mörg ár veit
ég að ferðamönnum finnst yfir-
Kenna ferðamönnum
á íslenska hamingju
Af hverju eru Íslendingar svona hamingjusamir? Þær Heiðrún
Ólafsdóttir og Hrefna Guðmundsdóttir hafa gefið út bók fyrir
ferðamenn sem geymir lykilinn að íslenskri hamingju.
Heiðrún Ólafsdóttir skáld og Hrefna Guðmundsdóttir félagssálfræðingur hafa gefið út bók fyrir erlenda ferðamenn sem geymir lykilinn að hamingju Íslend-
inga. mynd/Anton BrinK
leitt fólkið sjálft áhugaverðast við
Ísland. Þó að Gullfoss og Geysir
standi alltaf fyrir sínu þá er það
fólkið sem skorar hæst,“ segir
Heiðrún.
„Við vinnum bókina út frá
niðurstöðum hamingjurann-
sókna á vegum World Happiness
report og því hvað geri það að
verkum að Íslendingar eru svona
hamingjusamir þegar kemur að
mismunandi þáttum, eins og
peningum, náttúrunni og fleiru.
Við pælum í samfélagsgerðinni
og brjótum bókina upp með til-
vitnunum í venjulega Íslendinga
á aldrinum fjórtán og upp í
nírætt. Við köllum þá sérfræðinga
í hamingju en við fengum þau
til að svara spurningum um það
hvað geri þau hamingjusöm. Í
bókinni eru einnig hamingju-
aukandi æfingar og hægt að grípa
niður í hana hvar sem er. Þetta er
holl lesning,“ segir Heiðrún.
En hvernig stendur á þessari
hamingju smáþjóðar á úfnu skeri
norður í úthafi?
„Íslendingar virðast vera stað-
fastir í hamingjunni. Þegar fjár-
málahrunið reið yfir lækkuðum
við niður um 0,1 prósent og ég
held að við höfum aldrei farið
niður fyrir áttunda sætið yfir
hamingjusömustu þjóðir heims.
Við Hrefna veltum því upp hvort
það að búa við ótrygga náttúru og
óútreiknanlegt veður geri okkur
betur í stakk búin til að takast á
við óvænt áföll. Að það sem við
lítum alla jafna á sem neikvætt
sé jafnvel það sem geri okkur
hamingjusöm,“ segir Heiðrún.
„Þetta er skemmtilegt efni sem
alltaf verður hægt að bæta við
en svona rannsóknir eru gerðar
annað hvert ár og þá koma nýjar
upplýsingar fram. Það er mikið
að gerast í þessum fræðum. Við
höfum reyndar fengið mikil við-
brögð frá Íslendingum sem skilja
ekkert í því af hverju við gefum
bókina ekki líka út á íslensku.
Bókin virðist höfða sterkt til fólks
sem vill ekki lesa þurra fræðitexta
um hamingjuna og vill heldur
skemmtilegri sýn. Við ætlum
okkur auðvitað að sigra heiminn
með þessari bók og þýða hana á
öll helstu tungumál veraldarinn-
ar,“ segir Heiðrún. Bókin sé einn-
ig skemmtileg viðbót í ferðabóka-
flóruna. „Hún passar líka ofsalega
vel í jakkafatavasa og handtöskur
þeirra sem fara mikið á fundi í
útlöndum og er tilvalin gjöf.“
Ragnheiður
Tryggvadóttir
heida@365.is
4 KynninGArBLAÐ 2 2 . j ú n Í 2 0 1 7 F i m mt U dAG U r
2
2
-0
6
-2
0
1
7
0
4
:4
4
F
B
0
8
0
s
_
P
0
6
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
2
6
-E
A
6
0
1
D
2
6
-E
9
2
4
1
D
2
6
-E
7
E
8
1
D
2
6
-E
6
A
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
8
0
s
_
2
1
_
6
_
2
0
1
7
C
M
Y
K