Kiwanisfréttir - 01.04.1978, Side 8
fær móðurklúbburinn 10 stig og 2 stig að
auki fyrir hvern meðlim yfir 20. Ef fleiri
klúbbar standa að klúbbstofnuninni, skipt-
ast stigin jafnt á milli móðurklúbbanna.
8. Auglýsing á Kiwanisstarfinu. Fyrir
hverja frétt af starfi klúbbs, sem birt er í
hljóðvarpi, sjónvarpi, dagblaði eða öðrum
fréttamiðlum eru veitt 5 stig.
9. Mœting á þingum og sérstökum
fundum. Fyrir hvern fulltrúa klúbbsins,
sem mætir á svæðisráðsfundi, skal veita 1
stig. Fyrir hvern fulltrúa klúbbsins, sem
mætir á svæðisráðstefnu, skulu veitt 2 stig.
Fyrir hvern fulltrúa klúbbsins á umdæm-
8
isþingi, skulu veitt 5 stig (mest 15 stig).
Fyrir hvern fulltrúa klúbbsins á Fvrópu-
þingi Kiwanis skulu veitt 10 stig (mest 30
stig).
10. Greiðsluskil. Fyrir gjöld til umdæmis-
ins greidd innan 60 daga frá gjalddaga
(þ. e. fyrir 1. desember og 1. júní) skal
veita 5 stig fyrir hvorn gjalddaga. Fyrir
gjöld greidd til Fvrópustjórnar fyrir sömu
gjalddaga skal einnig veita 5 stig fyrir
hvorn. Fngin stig eru veitt, ef gjöldin eru
eigi innt af höndum fyrir ofangreinda
daga.
Þorbjörn Karlsson, kjörumdœmisstjóri.
K-FRÉTTIR