Kiwanisfréttir - 01.04.1978, Blaðsíða 24
K I WA NIS-FRÉTTIR
Útgefandi: Kiwanisumdæmið á íslandi
Apríl 1978.
Ritnefnd:
Bjami Magnússon,
Eyjólfur Sigurðsson,
Guðmundur Óli Ólafsson,
Ingvar Magnússon,
Jón K. Ólafsson.
Setning og Prentun:
HAGPRENT HF.
Öskjufélagar að starfi.
stutt okkur. Á svona tímamótum verður fé-
lögum kannski á að hugsa. Hvað er ég að
gera í svona félagsskap? Niðurstaðan verð-
ur oftast sú, ég er Kiwanismaður og ég
verð Kiwanismaður. Við álítum, að þrir
sem hafa verið Kiwanismenn verði alltaf
Kiwanismenn.
Með Kiwaniskveðju Askjiu
24
Frá Landssambandi
SINAWIK
Kæru Sinawik-konur!
Af störfum stjórnar landssambandsins er
það að frétta, að unnið er að undirbún-
ingi fréttabréfs Sinawik og áætlum við að
það verði tilbúið í aprílmánuði. Viljum við
eindregið hvetja konur til þess að skrifa
okkur hafi þær í huga efni í blaðið okkar.
Pósthólf landssambandsins er nr. 341
(101) Reykjavík.
Einn Sinawik-klúbbur hefur bætzt í
hópinn, en 7. des. sl. var stofnaður Sina-
wik-klúbbur á Hvolsvelli og formaður hans
er María Gröndal. Þær hafa ekki óskað
eftir inngöngu í landssambandið ennþá;
ætla að athuga sinn gang svona fyrst um
sinn.
Sinawik-klúbburinn á Siglufirði hefur
óskað eftir inngöngu í landssambandið okk-
ur til mikillar ánægju og verður formlega
gengið frá inngöngu þeirra á ársþingi okk-
ar.
Og þá snúum við okkur að ársþinginu,
en samkv. 6. gr. laga landssambandsins,
skal árlegt starfsþing sambandsins haldið
ár hvert og þá í sambandi við umdæmis-
þing Kiwanis og mun ársþing okkar því
verða haldið 18., 19. og 20. ágúst að Laug-
um. Nánari fréttir af þingundirbúningi
munu berast síðar.
Af bréfum að dæma frá klúbbunum á
Akureyri, Akranesi, Dalvík, Hafnarfirði,
Siglufirði, Vestmannaeyjum og Reykjavík
er starfsemi klúbbanna alls staðar með
miklum blóma.
Með Sinawik-kveðju,
Formaður Landssambands SINAWIK,
Þórunn Gestsdóttir.
K-FRÉTTIR