Kiwanisfréttir - 01.04.1978, Blaðsíða 12

Kiwanisfréttir - 01.04.1978, Blaðsíða 12
innan Kiwanishreyfingarinnar, ekki sem keppinaut. Hefur Jdú nokkurn tíman athug- að kort og séð, hve margir staðir eru án Kiwanisklúbbs? Enginn getur í raun og veru trúað Jrví, að ekki finnist 25 góðir menn á hverjum þessara staða. Settu markið við að stofna, með klúbb þínum, að minnsta kosti einn nýjan klúbb á starfsárinu 1977 til 1978. Til andsvars kenningunni, að gæði skuli koma á undan magni, sem oft er borin fram í þessu sambandi, vil ég bera fram eftirfarandi spurningar: — Hver þurfti að bera ábyrgð á þér, sem Kiwanismanni, áður en þú hafðir tæki- færi til að sanna hæfileika þína sjálfur? Gefðu öðrum mönnum, sem hafa sömu verðleika, tækifæri eins og þú fékkst. — Er það gæðamerki fyrir klúbb, að ræða sífellt eigin gæoi og halda í þau ár eftir ár? Sérhver klúbbur á að sanna gæði sín, með því að gefa af þeim til nýs klúbbs. TAKIÐ ÁBYRGÐ, því ábyrgð er mik- ilvægur hluti einkunnarorða okkar, „við byggjum“. Ég óska ykkur þess, að þið munið finna mikla ánægju og gleði í Jreirri ábyrgð, sem þið munið taka á ykkar herðar á næsta starfsári, sem einstaklingar og sem Kiwanis- menn. Walter Fruh forseti KIE. Eftirtaldir aðilar og auglýsendur hafa styrkt útgáfu þessa blaðs; Byggingavörur Gamla Kompaníið Ræsir Félagsbókbandið Skúlason & Jónsson Jarðýtan Pennaviðgerðir Panelofnar Málning Goddi hf. Vatnsvirkinn hf. Almennar tryggingar Embla, Hafnarfirði Háberg hf. John Lindsay Heildverslunin Engey Hjólbarðasalan Bræðurnir Ormsson hf. Natan & Olsen Verkpallar hf. Útgarður hf. Vatns og hitalagnir hf. Bifreiðaverkstæði Guðvarðar Elíassonar, Hafnarfirði 12 K-FRÉTTIR

x

Kiwanisfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kiwanisfréttir
https://timarit.is/publication/1265

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.