Kiwanisfréttir - 01.04.1978, Page 9

Kiwanisfréttir - 01.04.1978, Page 9
Avarp Evrópuforseta fyrir árið 1977 - 78 Takið ábyrgð. Þetta verða einkunnarorð fyrir komandi Kiwanisár, markmiðin beinast að því, að laka ábyrgð, — sem einstaklingur, — sem Kiwanismaður, — á störfum klúbbs þíns, — á vexti Kiwanishreyfingarinnar. Ég ætla mér ekki að kynna einkunnar- orðin og markmiðin til þessarar heiðruðu samkomu með því, að nota svokallaða ný- tísku list og tækni. í fyrsta lagi eru eink- unnarorðin og markmiðin svo mikilvæg, að þau gefa mér varla tækifæri til þess, að reyna á ófundna hæfileika mína sem kvik- myndatökustjóri. Ennfremur er ég þeirrar skoðunar, að talað mál gefi okkur næga möguleika tii þess, að ræða þetta efni stutt- lega og hjálpa okkur til þess, að skilja mein- ingu þessarra einkunnarorða og takmarka að fullu. Samkvæmt grein VII, kafla fjögur í stofnlögum okkar, skulu virkir meðlimir Kiwanisklúbbs vera menn, sem meðal ann- ars hafa sýnt vilja og hæfileika til ábyrgðar hver á sínu sviði. Hin sex markmið Kiw- anis eru sett fram, til þess að ná eftirfarandi markmiðum: — Að leggja höfuðáherslu á mannleg og andleg verðmæti, frekar en veraldleg lífsgæði. K-FRÉTTIR — Að hafa í heiðri hina gullnu reglu. — Að stuðla að meiri gæðum á öllum svið- um lífsins. — Að kenna öðrum þessi lífsgæði, með góðu fordæmi. — Að efla vináttu og þróa betra samfélag með starfi Kiwanisklúbba. — Að vinna saman að myndun heilbrigðs almenningsálits, sem byggt er góðvilja, réttsýni og skyldurækni. Við erum samankomnir hér í dag vegna þess, að við höfum sýnt, sem leiðandi á okk- ar starfssviði, að við viljum og höfum hæfi- leika til þess að taka ábyrgð til að ná þess- um sex markmiðum með starfi í Kiwanis- hreyfingunni. Ég vil joó leggja áherslu á, að viljinn og hæfileikinn til þess að taka ábyrgð krefst ekki endilega sönnunar úr for- tíðinni, að þessi vilji og þessir hæfileikar búi i hverjum okkar í dag og í framtíðinni. Ég hefi stuttlega reynt að skýra hvað við Kiwanismenn erum og einnig markmið okkar til þess að gefa ykkur hugmynd um aflið, sem býr í samfélögum okkar. Ég sagði „býr“ af ásettu ráði, ekki „ætti að búa“ vegna þess, að þetta afl býr í Kiw- anishreyfingunni, svo sem hreyfingin hefur sannað með miklum afrekum sínum. Þrátt fyrir þetta vildi ég bera fram spurn- ingu um, hvort unnin afrek eru í réttu hlutfalli við það afl, sem við búum yfir. 9

x

Kiwanisfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kiwanisfréttir
https://timarit.is/publication/1265

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.