Kiwanisfréttir - 01.04.1978, Page 21

Kiwanisfréttir - 01.04.1978, Page 21
K. I. Maurice Gladman, félagi í Kiwanisklúbb Santa Ana í Kaliforniuríki í Bandaríkjun- um, var kosinn forseti heimssambands Kiwanismanna 29. júní 1977 á 62. heims- þinginu í Dallas, Texas. Gladman tók við embættinu 1. október. Gladman hefur þjónað sem kjörforseti, féhirðir, varaforseti stjórnar KI og einnig sem alþjóðafulltrúi í stjórn KI í tvö ár. Hann hefur einnig verið forseti Kiwanis- klúbbs Santa Ana, svæðisstjóri og umdæm- isstjóri Kaliforníu-Nevada-Hawaii um- dæmisins innan KI. Hann hefur þjónað sem formaður nefndar um almenn við- skiptamál á alþjóðasviði, fyrir stjóm Bandaríkjanna og unnið önnur opinber störf fyrir land sitt. Gladman er aðstoðarbankastjóri og bankastjórnarformaður, einnig er hann í framkvæmdastjórn KI, formaður KI stjórnarnefndar um framtíðarskipulagningu Kiwanisstarfsins, meðlimur i þingnefnd KI og stjórnarmaður í Kiwanis International Foundation, Kiwanis stofnuninni. Glad- man hefur starfað sem Kiwanismaður í yfir 22 ár. Gladman er atkvæðamaður á mörgum sviðum, svo sem framkvæmdastjóri Sam- bands hjólbarðasala í Suður-Kaliforníu, formaður stjórnar American Bank of Or- ange. Hann er fyrrverandi forseti Lands- sambands hjólbarðasala. Hann er fyrrverandi forseti verslunarráðs Santa Ana. Gladman er fyrrverandi forseti K-FRÉTTIR Santa Ana Tustin KFUM og handhafi KFUM heiðursmerkisins fyrir störf að unglingamálum. Hann er fyrrverandi for- maður ráðgjafanefndar Hjálpræðishersins og fyrrverandi formaður stjórnar söfnunar- sjóðs St. Joseph-sjúkrahússins, starfandi enn í báðum þessum nefndum. Gladman er einnig í stjórnarnefnd Chapman mennta- skólans og meðlimur ráðgjafanefndar skátahreyfingarinnar. Hann er nýlega kominn á eftirlaun, sem ofursti í varaliði landhers Bandaríkjanna, síðasta starf hans þar var í skrifstofu að- stoðar hermálaráðherra landhersins um málefni bygginga og birgða. Gladman og kona hans Rósabclla, eiga son og dóttur. 21

x

Kiwanisfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kiwanisfréttir
https://timarit.is/publication/1265

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.