Kiwanisfréttir - 01.12.1996, Side 6
í Heklu sem verður við þessa sam-
einingu annar stærsti klúbburinn í
umdæminu með 56 félaga á eftir
Helgafelli í Vestmannaeyjum sem
telur 71 félaga.
Fleiri sameiningar á
döfinni?
Kiwanisfréttir hafa hlerað það að
fleiri sameiningarhugmyndir hafi
verið reifaðar en ekkert er ákveðið í
þeim efnum enn sem komið er. Þó
að flestum sé sárt um það að sjá
klúbbinn sinn hverfa af kortinu þá er
það þó betra að hann sameinist
öðrum klúbbi en að félagarnir hætti
í Kiwanis. Með þessu vinnst tvennt,
félagar tapast ekki úr hreyfingunni
og eftir stendur einn öflugur klúbbur
sem getur tekist á við verkefni sem
smærri klúbbar ráða ekki við.
Hætt við stofnun Hvamms í
Reykjavík
Nýklúbbanefnd gerði nokkrar heið-
arlegar tilraunir til að koma á lagg-
irnir hádegisverðarklúbbi og var
kominn klúbbur í aðlögun með
nafninu Hvammur sem hélt fundi í
Kiwanishúsinu í Reykjavík. Það
tókst þó aldrei að fá nægilega marga
félaga til þess að ákveða þátttöku
svo að ekkert varð úr framhaldinu.
Nokkrir félaganna hafa gengið til
liðs við aðra klúbba í Reykjavík.
Bestir í Þórssvæðinu
A svæðisráðstefnu Þórssvæðisins
30. nóvember síðast liðinn tilkynnti
Soffía Jacobsen fráfarandi svæðis-
stjóri að Kiwanisklúbburinn Geysir
í Mosfellsbæ hefði verið valinn besti
klúbburinn í svæðinu starfsárið
1995-96. Björn Ingi Rafnsson for-
seti Geysis var valinn besti forsetinn
og Þorsteinn Sigurðsson ritari
Heklu, var valinn besti ritarinn í
svæðinu.
Lagakróku
Ný lög samþykkt á
Umdæmisþinginu
Á umdæmisþinginu í Kópavogi í
ágústmánuði s.l. voru samþykkt ný
lög umdæmisins og ný lög Kiwanis-
klúbba. Þetta var löngu orðið tíma-
bært þar sem lögin hafa ekki verið
samræmd stöðluðum lögum Al-
þjóðasambands Kiwanis í áratugi.
Eldri lög voru byggð á útgáfu frá
KIE (Evrópusambandinu) en það
hefur nú sjálft fengið nýtt nafn, KI-
EF, ný lög og nýtt hlutverk. Hin
nýju lög eru efnismeiri og ítarlegri
en hin gömlu og því ætti að vera
auðveldara að starfa eftir þeim.
Þingfulltrúar voru þó ekki sáttir við
málfarið í nýju lögunum og fóru
fram á það að það yrði lagfært.
Laganefndin bar því upp tillögu um
að íslenskufræðingur yrði látin yfir-
fara textann áður en hann yrði
prentaður, án þess að gera á þeim
efnislegar breytingar. Að þessu skil-
yrði fullnægðu samþykkti þingið
lögin, en áður höfðu verið gerðar á
þeim nokkrar lagfæringar. Islensku-
fræðingurinn Þorleifur Hauksson
tók að sér að lagfæra textann og hafa
lögin nú verið prentuð í „Félagatali
og Lögum“ umdæmisins og send út
til allra Kiwanisfélaga. Klúbbfor-
setar eru beðnir um að fjarlægja
handrit af fyrri útgáfu laganna úr
handbók fræðslunefndar. Þeir
klúbbar sem þess óska geta fengið
send hin nýju lög í A4 stærð til þess
að setja inn í fræðsluhandbókina.
Þetta verkefni laganefndar er búið
að taka þrjú ár. í laganefnd þeirri
sem þýddi og undirbjó útgáfu hinna
nýju laga voru Arnór Pálsson, Eldey
Kópavogi, Hermann Þórðarson,
Eldborg Hafnarfirði og Ingvar
Magnússon, Eldey Kópavogi.
Stofnun klúbba
Sp. Hver er munurinn á full-
gildingu og vígslu annars vegar og
„í aðlögun “ og klúbbstofnun hins
vegar og hvað réttindi veita þessi
stig nýjum klúbbi?
Sv. Það eru þrjú stig í stofhun
nýrra klúbba og miðast öll við fé-
lagafjölda. Fyrsta stigið er klúbbur í
aðlögun (in formation) eins og við
köllum það, en þýðir í raun í mótun
og hefst þegar hópurinn hefur náð
tölunni fimmtán (15). Þá er afhent
skjal um klúbb í aðlögun ((Certifi-
cate for a club in formation). Gert er
ráð fyrir því að þetta skírteini gildi í
sex mánuði. Þessu stigi fylgja engin
sérstök réttindi. Slíkur hópur má
ekki kalla sig Kiwanisklúbb. Þá
hefst undirbúningurinn að sjálfri
klúbbstofnuninni (organization) en
það gerist þegar félagarnir eru orðn-
ir tuttugu (20). Þá er afhent stofn-
skjal (Certificate of Organization).
Starfsreglur Kiwanis kveða á um að
slíkur klúbbur hafi sex mánuði til að
fjölga félögum í tuttugu og fimm
(25), en það er sú tala sem þarf til
þess að klúbbur fái fullgildingu
(charter) í Evrópu. Bandarfkjamenn
hafa þetta öðruvísi. Alþjóðasam-
bandið lítur svo á að þegar búið er
að stofna klúbbinn með tuttugu (20)
félögum sé hann orðinn fullgildur
klúbbur. Vígsluhátíðin (Charter
Night) er í þeirra augum aðeins
formsatriði. ítarlegar upplýsingar
um þetta eru í handbók fræðslu-
nefndar sem allir Kiwanisklúbbar í
umdæminu eiga í sínum fórum. En
því miður hafa hugtökin ruglast í
íslensku þýðingunni sem stuðst er
við í þeirri bók. Sú alvarlegasta er
að „organization," klúbbstofnun, er
þar kölluð fullgilding. Fullgildingin
er það sem við höfum kallað vígslu,
sem er vafasöm þýðing á orðinu
„charter“ sem þýðir í reynd að lög-
gilda. íslenska orðið vígsla er það
sem á ensku er kallað „dedication“
eða „consecration“ sem myndi m.a.
þýða helgun á okkar máli sbr. hjóna-
vígsla eða vígsla kirkju. Þegar talað
er um fullgilda klúbba, sem eru
klúbbar með öll réttindi Kiwanis-
klúbba, í enskri útgáfu umdæmis-
laganna, þá eru þeir ætið nefndir
„chartered clubs.“ Svona orðabrengl
rugla menn sjálfsagt í rýminu og
vonandi verður úr þessu bætt í næstu
útgáfu.
6
KIWANISFRÉTTIR