Kiwanisfréttir - 01.12.1996, Blaðsíða 19

Kiwanisfréttir - 01.12.1996, Blaðsíða 19
rottamot ta iccia y\ aðra í í Keflavík því loknu að starfið með fötluðum á þessu móti væri eitt það mest gef- andi starf sem þeir hefðu tekið þátt í á vegum Kiwanis. þátt í mótinu sem dómarar þessa tvo daga og samtals skiluðu þessir fé- lagar 393 klukkustundum í vinnu á mótinu og á námskeiðinu. Islandsmótið tókst mjög vel og margir Keilisfélagar höfðu á orði að Rúmlega 200 keppendur tóku þátt í Islandsmótinu í boccia sem haldið var í Reykjanesbœ 18. og 19. október 1996. Keilisfélagar sáu um dómgæslu Islandsmót fatlaðra í boccia einstak- lingskeppni, var haldið í íþróttahús- inu við Sunnubraut í Keflavík, dag- ana 18. og 19. október s.l. Það var Iþróttafélagið Nes, félag fatlaðra og þroskaheftra á Suðumesjum, sem sá um framkvæmd mótsins í samvinnu við íþróttasamband fatlaðra. Keppendur á mótinu voru um tvö hundruð og auk þess komu að þessu móti um 60 starfsmenn. Óskað hafði verið eftir því við Kiwanisklúbbinn Keili að hann myndi annast dóm- gæslu á mótinu auk nemenda við íþróttabraut Fjölbrautarskóla Suður- nesja. Keilir varð að sjálfsögðu við þessari ósk. Hálfum mánuði fyrir mót var haldið sérstakt dómaranámskeið sem Keilisfélagar sóttu og auk þess gafst þeim kostur á að mæta á æfingar fyrir mótið hjá félaginu á Suðurnesjum. Það þarf vart að taka það fram að allir Keilisfélagarnir stóðust dómaraprófið nteð prýði. Tuttugu og níu félagar í Keili tóku Fjáröflunarverkefni framundan Framundan er helsta fjáröflunar- verkefni klúbbsins, en það er hin ár- lega jólatréssala. Einnig selur klúbb- urinn borðskreytingar og krossa á leiði, sem Sinawikklúbburinn Vík útbýr. Allir Keilisfélagar taka þátt í jólatréssölunni sem hefst þann 8. desember og stendur fram á að- fangadag. Hver félagi mætir að meðaltali þrisvar sinnum í söluna, tvo tíma í senn. Uppskeruhátið klúbbsins verður haldin 11. janúar 1997 og er hún einskonar árshátíð klúbbsins þar sem félagar mæta með maka sína og fagna væntanlega góðum árangri í jólatréssölunni. Víðir Ingimarsson, fjölmiðlafulltrúi Andrés forseti Hjaltason, t.h., og Arni Björgvinsson, ábúðafullir við dómgœslu í góðum félagsskap. KIWANISFRÉTTIR 19

x

Kiwanisfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kiwanisfréttir
https://timarit.is/publication/1265

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.