Kiwanisfréttir - 01.12.1996, Blaðsíða 22
Kirkjufell ^mnAíir^ir^i
Ágætu Kiwanisfélagar
í upphafi nýs starfsárs er ekki úr
vegi að fara yfir það sem við
brölluðum á síðasta starfsári
hérna í Kirkjufelli. Þar er fyrst
að nefna götuskilti eitt stórt og
fallegt, sem loksins er nú komið
upp, og er það mikið bæjarprýði
og mjög þarft verk að hafa slíkt
skilti við hver bæjarmörk.
Kirkjufellsfélagar ákváðu á
síðasta vetri að koma þessu skilti
upp og hafa af því einhverjar
tekjur í framtíðinni, og leituðu á
náðir fyrirtækja og verslana um
auglýsingar á því, og má segja
að allflestir hafi tekið vel í það
enda galvaskir félagar á ferð. Ekki
var það nú áfallalaust að koma skilt-
inu upp, því þrátt fyrir snjóléttann
vetur var eins og alltaf þyrfti að gera
vitlaust veður í hvert sinn sem eitth-
vað átti að fara að gera, svo var frost
í jörðu og svona gekk þetta þar til
komið var ískyggilega nærri vori, þá
loks tókst að koma því upp og held
ég að það sé okkur Kirkjufellskon-
um að þakka því við mættum hress-
ar á staðinn, en hingað til höfðu kar-
larnir haft veg og vanda að þessu
skilti.
Að sjálfsögðu þurfti að afhjúpa
gripinn og höfðum við haft samband
við sveitarstjórann okkar, Björgu
Ágústdóttur og kom hún á sínum
fjallabíl og var reipi fest í bílinn og
þaðan í skiltið og svo ók hún af stað.
Nú átti skiltið að koma í ljós undan
dúknum, en hvað haldiði, þetta eru
svoddann sjómenn í Kirkjufelli að
allt sat fast og spottinn bara slitnaði.
Þetta vakti hlátur en kom ekki að
sök, skiltið var komið upp og sómir
sér bara vel við sitthvorn enda bæj-
arins. Það var að sjálfsögðu haldið
upp á þennan áfanga með kökum og
kaffi í heimahúsi á eftir og ég held
að allir viðstaddir hafi nú verið
ánægðir að þetta verk var að baki.
Hjá Kirkjufelli eru nokkrir fastir
liðir yfir veturinn og má þar nefna
að við seldum að sjálfsögðu K-lykil-
inn og gekk bara nokkuð vel, við
héldum kynningarfund, sem skilaði
2 nýjum félögum, gáfum heimilinu
Nýju félagarnir á vígslu og þorrablóti. Ólafur
Marinósson og Hrafnliildur Jónasdóttir.
á Gufuskálum ýmiskonar dót m.a.
gluggatjöld, myndir á veggina og
rimlarúm allt var þetta frá okkar
heimilum og var þetta vel þegið því
nýbúið var að opna skammtímavist-
unina þarna og ekki feitar fúlgur á
fjárlögum ríkisins frekar en vant er.
Klúbbfélagar hafa haft þá hefð að
pakka Jólapappír eitthvert kvöldið í
nóvember og sitja svo og skemmta
sér að því loknu, en það verður að
segjast að ekki var alveg nógu góð
og fengum við góðan gest Pál
Skúlason, til að vígja nýju félag-
ana, og fórst það honum vel úr
hendi. Það var svo skemmt sér
fram á rauða nótt og var stiginn
dans undir gítarspili gesta-
spilarans Ragnars. Einnig vorum
við með poppsölu á baráttudegi
verkalýðsins 1. maí fyrir unga
bíógesti, gáfum pening til Barna-
spítalans og aðstoðuðum Árna í
vali á munum á spítalann, vorum
með í J-verkefninu og svo voru
ýmis ný verkefni eins og t.d.
gáfum við öllum 6 ára börnum
hjálma í jólagjöf, vorum með
hjóladag á heilsuviku einni mik-
illi sem haldin var hér á Grundar-
firði og bjuggum við til hjólabraut
fyrir börnin og höfðu þau mikið
gaman af.
Það nýjasta sem Kirkjufell hefur
tekið að sér, er að gerast Barna-
heillavinir, það er verkefni sem allir
klúbbar á landinu ættu að kynna sér
og styrkja, því þörfin er mikil fyrir
íbúð handa foreldrum allra veikra
barna utan af landi.
Við erum bara nokkuð ánægð og
Gallvaskir klúbbfélagar. Stoltir að setja niður skiltið vœna, Margrét, Ólafur H.,
Ólafur M., Hrafnhildur, Guðbjörg og Þorsteinn.
þáttaka, en vonandi mæta bara þeim
mun fleiri í ár. Svo þarf auðvitað að
selja jólapappírinn og var fylkt liði
og var salan þokkaleg. í janúar
gáfum við ásamt fleiri félögum
öllum 7 ára börnum endurskinsvesti.
Svo á Þorra var Blót mikið og fínt
stolt yfir okkar framlagi til þjóð-
félagsins á nýliðnu starfsári og
vonum að svo sé um alla klúbba.
Verum jákvœð, verum vinir!
Kiwaniskveðja
f.h. Kirkjufells, Grundarfirði
Hrafnhildur Jóna Jónasdóttir
22
KIWANISFRÉTTIR