Morgunblaðið - 14.01.2017, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 2017
Hólmfríður Bjarnadóttir, eða Hófý eins
og við flest þekkjum hana, verður á
skrifstofu Bændaferða 16. - 20.
janúar milli kl. 11:00 - 16:00.
Kíktu við í kaffi og fáðu upplýsingar
um ferðir ársins frá einum vinsælasta
fararstjóra Bændaferða.
Hófý, fararstjóri Bændaferða
verður á skrifstofunni 16. - 20. janúar
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 RVK sp
ör
eh
f.
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
,,Spurningin er frekar hvernig
tryggjum við best öryggi og hags-
muni Íslands,“ segir Guðlaugur Þór
Þórðarson, utanríkisráðherra,
spurður um framgöngu Rússa og
mögulega fasta aukna viðveru
NATO og Bandaríkjanna á Íslandi.
„Öryggismál Íslands byggjast á
vestrænni samvinnu og veru okkar
í Atlantshafsbandalaginu (NATO)
en það er í samræmi við Þjóðarör-
yggisstefnu Íslands, sem mótuð var
og samþykkt á Alþingi síðasta vor.“
Eins bendir Guðlaugur á mikil-
vægi samstarfs og samskipta Ís-
lands og Bandaríkjanna og vísar
þar sérstaklega í varnarsamninginn
við Bandaríkin.
„Frá lýðveldis-
stofnun hafa
Bandaríkin verið
traustur og
mikilvægur
bandamaður
okkar. Samskipti
við Bandaríkin
hafa verið góð og
ég á ekki von á
öðru en að þau
verði það áfram.
Nokkuð er liðið síðan hér var rekin
herstöð á þeirra vegum og við verð-
um að hafa í huga að hún var undir
það síðasta arfleifð liðins tíma kalda
stríðsins. Helstu áhættuþættir og
ógnir er steðja að Íslandi í dag eru
vel skilgreindar í þjóðaröryggis-
stefnunni og þar er sett í forgang
umhverfisvá og slys á norðurslóð-
um. Næst koma netógnir og
skemmdarverk á innviðum sam-
félagsins, þ.e. hryðjuverk, og síðan
náttúruhamfarir, skipulögð glæpa-
starfsemi, farsóttir og ýmsir aðrir
áhættuþættir. Ólíklegast þykir að
sjálfstæði landsins steðji ógn af
hefðbundnum hernaði líkt og búist
var við á kaldastríðstímanum en
slík ógn er engu að síður þess eðlis
og vegur að fullveldi og sjálfstæði
landsins með þeim hætti að nauð-
synlegt er að gera nauðsynlegar
ráðstafanir – líkt og önnur ríki
gera.“
Fylgist með fríverslun Breta
„Ástandið á hinum alþjóðlega
vettvangi kallar á ríka hagsmuna-
gæslu og yfirvegun af okkar hálfu.
Það eru tækifæri fyrir Ísland og
þau eru m.a. á sviði fríverslunar,“
segir Guðlaugur og vísar til Bret-
lands.
„Theresa May forsætisráðherra
ætlar að gera Bretland að frum-
kvöðli fríverslunar í heiminum. Þar
hefur m.a. verið rædd innganga í
EFTA, fríverslunarsamningar við
gömlu Samveldislöndin og fríversl-
un við Bandaríkin. Við þurfum þá
hvort tveggja að tryggja áfram
hindrunarlítil viðskipti við Bretland
og kanna með öðrum EFTA-ríkjum
möguleika á framtíðar fríverslunar-
samningum við t.d. Bandaríkin og
önnur stór viðskiptalönd.“
Jafnframt bendir Guðlaugur á
mikilvægi Norðurskautsráðsins,
sem Ísland tekur formennsku í árið
2019 en í ráðinu sitja m.a. Banda-
ríkin og Rússland.
Tækifærin eru í fríversluninni
Utanríkisráðherra segir mikilvægt að horfa til stefnu Breta í fríverslun í kjölfar úrsagnar þeirra úr
ESB Öryggi Íslands sé best borgið með vestrænni samvinnu og aðild að Atlantshafsbandalaginu
Guðlaugur Þór
Þórðarson
Hafrannsóknaskipin Árni Friðriks-
son og Bjarni Sæmundsson eru við
loðnuleit út af Vestfjörðum og græn-
lenska skipið Polar Amaroq er í
sömu erindagjörðum út af Langa-
nesi.
Rannsóknaskipin komu á leitar-
svæðin í fyrradag og Polar Amaroq í
gær. Þorsteinn Sigurðsson, sviðs-
stjóri nytjastofnasviðs Hafrann-
sóknastofnunar, segir að sem fyrr
stjórnist leitin af aðstæðum og ár-
angri. Hafrannsóknaskipin hafi
byrjað á því að vinna saman í Græn-
landssundinu til að reyna að ljúka
vestasta hluta leitarsvæðisins fyrir
fyrirsjáanlega brælu á morgun. Pol-
ar Amaroq vinni á móti þeim og von-
ast sé til þess að einhver mynd liggi
fyrir af stöðunni um helgina.
Þrjú skip í loðnuleit út af
Vestfjörðum og Langanesi
Vonast til að
staðan skýrist
um helgina
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Hafrannsóknaskip Bjarni Sæmundsson við bryggju í Reykjavíkurhöfn.
Matsfyrirtækið Standard & Poor’s
hefur hækkað lánshæfismat rík-
issjóðs í A- úr BBB+ og horfur eru
metnar stöðugar. Sterkari ytri
staða er sögð meginástæða hækk-
unarinnar.
Fyrirtækið hækkaði síðast láns-
hæfismat ríkissjóðs í janúar 2016.
Er ríkið nú metið í A-flokki hjá
bæði Moody’s og S&P en síðast var
ríkissjóður metinn í A-flokki hjá
S&P í þeim örlagaríka mánuði
október 2008.
Þá birti matsfyrirtækið Fitch
einnig nýtt lánshæfismat fyrir rík-
issjóð í gær. Lánshæfiseinkunnir
eru óbreyttar í BBB+ en Fitch
breytir horfum fyrir ríkissjóð úr
stöðugum í jákvæðar. Að mati Fitch
hefur dregið verulega úr veikleika
gagnvart ytri áföllum með styrk-
ingu krónunnar og uppbyggingu
óskuldsetts gjaldeyrisforða Seðla-
bankans.
Ríkið ekki verið í
A-flokki síðan 2008
Stúlkan sem lést í bílslysi á Grinda-
víkurvegi á fimmtudagsmorgun hét
Alma Þöll Ólafsdóttir, 18 ára, til
heimilis að Mánagötu 25 í Grinda-
vík.
Slysið varð skömmu fyrir níu að
morgni norðan við afleggjarann að
Bláa Lóninu. Alma Þöll var ein í
bílnum en í hinum bílnum voru
tveir Kínverjar. Annar þeirra slas-
aðist alvarlega, en ekki fengust
upplýsingar um líðan hans. Lög-
reglan á Suðurnesjum rannsakar
tildrög slyssins. sbs@mbl.is
Lést í bílslysi á
Grindavíkurvegi
Bretland stefnir á útgöngu
úr Evrópusambandinu og
mun að sögn Guðlaugs Þórs
Þórðarsonar utanríkis-
ráðherra horfa til fríversl-
unar við gömlu samveld-
islöndin, Bandaríkin, Kína og
EFTA-ríkin. Ísland verður að
hans sögn að tryggja samn-
ing um fríverslun við Bret-
land.
Fríverslunar-
samningar
BRETLAND KVEÐUR ESB
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Við seljum langmest af bílum sem eru í hinum
svokallaða milliverðflokki, þ.e. bílum sem kosta
frá um 4,5 milljónum króna og upp í 5,5 milljónir,“
segir Loftur Ágústsson , markaðsstjóri BL, en
þar, líkt og hjá flest öllum bílaumboðum landsins,
hafa verðlækkanir átt sér stað á ökutækjum að
undanförnu sökum hagstæðs gengis krónu gagn-
vart öðrum gjaldmiðlum.
Loftur segir algengustu gerðir bíla hafa lækk-
að um 8-10% að meðaltali í fyrra, en mesta lækk-
un er hins vegar 14,9%. „Þetta er auðvitað nokk-
uð mismunandi eftir bílum, en í sumum tilfellum
hefur bæst við búnaður í bílana og þá hefur ekki
verið hægt að lækka þá alveg jafn mikið. Við höf-
um hins vegar haft þá stefnu að reyna að fylgja
styrkingu krónu eins og kostur er,“ segir Loftur
og bætir við að gengissveiflur, hvort sem um ræð-
ir styrkingu eða veikingu krónu, séu ekki ákjós-
anlegar og til þess fallnar að rugla markaðinn.
Þá segir hann BL hafa að jafnaði birgðir til 3-4
mánaða sem seinkar verðbreytingum þegar gengi
styrkist eða veikist. „En það er mikil samkeppni á
bílamarkaði og við höfum það viðhorf að það komi
okkur til góðs að skila verðbreytingum til við-
skiptavina eins og frekast er kostur og við finnum
fyrir því að viðskiptavinir kunna að meta það.“
Reikna með meiri sölu í ár en í fyrra
Páll Þorsteinsson, upplýsingafulltrúi Toyota á
Íslandi, segir Toyota-umboðið hafa lækkað bíla
sína á síðasta ári um 10-16%.
„Síðustu 18 mánuðir voru mjög góðir hjá okk-
ur. Einstaklingar og fyrirtæki eru að endurnýja
bílana sína og eigum við von á að salan í ár verði
ívið meiri en í fyrra,“ segir hann.
Þegar litið er á núgildandi verðlista BL og
hann borinn saman við verðlista janúar 2016 má
m.a. sjá að sá bíll sem mest hefur lækkað á tíma-
bilinu er BMW 118i. Sá kostar nú 3.990.000, en
kostaði áður 4.690.000. Hefur hann því lækkað um
14,9%.
HSE-útfærsla af Land Rover Discovery, al-
gengri jeppategund hér á landi, hefur lækkað um
13,2% og kostar nú 7.890.000 krónur í stað
9.090.000. Þá má einnig nefna að jepplingurinn
Nissan Qashqai, í útfærslunni Acenta 4x4, hefur
lækkað um 8%. Verð á honum var áður 4.990.000
krónur, en er nú 4.590.000 krónur.
Þegar litið er á verðlista Toyota fyrir sama
tímabil má m.a. sjá að fólksbíll af gerðinni Avens-
is Sedan Live hefur lækkað úr 3.890.000 krónum í
3.320.000 krónur, eða um 14,6%. Þá hefur jeppinn
Toyota Land Cruiser 150 einnig lækkað nokkuð,
en hann hefur nú farið úr 8.820.000 krónum í
8.110.000 krónur. Er það 8% verðlækkun.
Nýir bílar lækka talsvert
Hagstætt gengi krónu gagnvart öðrum gjaldmiðlum að undanförnu hefur
skilað verðlækkunum á bílum Algengt að bílar hafi lækkað um 10 prósent
Morgunblaðið/Ómar
Til sölu Verð á nýjum bifreiðum lækkaði nokkuð nýliðið ár og er búist við góðri sölu á þessu ári.