Morgunblaðið - 14.01.2017, Page 6

Morgunblaðið - 14.01.2017, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 2017 Fararstjóri: Guðrún Bergmann Bókaðu núna á baendaferdir.is Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 RVK Á InkaslóðumíPerú Í þessari ævintýraferð munum við fræðast um hina fornu Inkamenningu Perú og heimsækja Cusco höfuðborg Inkaveldisins, skoða minjar frá nýlendutímanum, hrífast af yfirgefnu borginni Machu Picchu og hinu stórbrotna Titicaca vatni. Dásamleg ferð sem gerir menningu og mannlífi Perú góð skil. Allir velkomnir á kynningarfund 16. janúar kl. 20:00 hjá Bændaferðum í Síðumúla 2, 2. hæð. sp ör eh f. 1. - 16. október Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is „Núna verður hægt að aka á raf- bílnum alla leið frá Ísafirði og til Reykjavíkur,“ segir Ingibjörg Birna Erlingsdóttir, sveitarstjóri Reykhólahrepps. „Stefnt er að því að setja upp þrjár rafhleðslustöðvar í hreppnum á næstu misserum og því ættu íbú- ar og gestir ekki að eiga í neinum vandræðum með að hlaða rafbílinn sinn.“ Reykhólahreppur er ekki fjöl- mennur en mjög stór. Ingibjörg er því ánægð með öfluga uppbyggingu hleðslustöðva í hreppnum. „Aukinn áhugi á rafbílum kall- ar á fjölgun hleðslustöðva, sér- staklega á landsbyggðinni. Reyk- hólahreppur er ekki mjög stórt samfélag en gífurlega stór hreppur. Þetta er því ansi gott framlag hér í hreppnum.“ Einkaaðilar setja upp stöð Tveimur af þremur hleðslu- stöðvum sem settar verða upp hef- ur ekki verið fundinn staður í sveit- arfélaginu en ein stöð verður við Hótel Bjarkalund. „Eigendur staðarins eru að setja upp sína eigin hleðslustöð. Ég veit ekki hvort það er venjuleg stöð eða hraðhleðslustöð en hún á að vera komin upp fyrir sumarið, skilst mér,“ segir Ingibjörg og bætir því við að önnur af þeim tveim hleðslustöðvum sem sveit- arstjórnin setur upp verði hrað- hleðslustöð. „Við fengum eina venjulega hleðslustöð frá Orkusölunni, sem vinnur að því að koma upp hleðslu- stöðvum um allt land, og styrk frá Orkusjóði til uppsetningar á hrað- hleðslustöð. Við erum nýlega búin að fá svar frá Orkusjóði um styrk- inn og því liggur ekki fyrir sem stendur hvar og hvernig sú hrað- hleðslustöð verður sett upp.“ Ingibjörg telur líklegast að hleðslustöðvarnar sem hreppurinn setur sjálfur upp verði fyrir utan söfn eða aðra þjónustu í hreppnum. Hvar sem stöðvarnar verða settar upp er ljóst að það verður ekkert mál að aka á rafbíl um Reykhólahrepp næsta sumar. Þrjár hleðslustöðvar í Reykhólahreppi í sumar Morgunblaðið/Hallur Már Rafmagn Eigendur rafbíla geta farið á rúntinn um Reykhólahrepp næsta sumar en setja á upp þrjár rafhleðslustöðvar í hreppnum.  Ein stöð við Hótel Bjarkalund „Hreinsigetan hér heima þegar kem- ur að örplasti er um 0% þannig að u.þ.b allt örplast skolast út í sjó. Á meðan lönd eins og Svíþjóð og Finn- land hreinsa um 99,7% af örplasti úr fráveituvatni áður en það rennur út í sjó eða á.“ segir Stefán Gíslason, stofnandi og eigandi UMÍS ehf. En- vironice, ráðgjafarfyrirtæks á sviði umhverfismála, en hann kynnti minnisblað sitt um örplast í fráveitu- vatni á síðasta fundi umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur. Ástæð- an er sú að skólphreinsistöðvar á höfuðborgarsvæðinu stöðva ekki að örplast komist út í hafið „Skólphreinsistöðvarnar við Klettagarða og Ánanaust taka við næstum öllu fráveituvatni á höfuð- borgarsvæðinu, en það er ekkert hreinsikerfi þar, einungis ristar og 3 mm síur sem vatnið fer í gegnum áð- ur en það fer úti sjó,“ segir Stefán. Örðugt að ná örplasti úr sjónum Hrönn Ólína Jörundsdóttir, sviðs- stjóri hjá Matís og doktor í umhverf- isefnafræði, tók í fyrra þátt í sam- norrænni rannsókn um hvort skólphreinsistöðvar væru gátt fyrir örplast út í hafið. Segir hún örplast í raun vera meira vandamál en stórt plast, þar sem ómögulegt er að veiða örplast úr sjónum. „Vísindamenn eru farnir að hafa meiri og meiri áhyggjur af örplasti. Það virðist sem vandamálið með plast stækki eftir því sem plastið sjálft minnkar. Það er bara ekki hægt að hreinsa upp ör- plastið úr umhverfinu.“ Eygerður Margrétardóttir, deild- arstjóri umhverfis- og úrgangs- stjórnunar Reykjavíkurborgar, seg- ir þau meðvituð um vandamálið og að það kalli á samsettar aðgerðir. „Við vitum að þetta er stórt vandamál, við höfum verið í samtali við Veitur um þá kosti sem eru í stöðunni en það þarf samsettar aðgerðir. Stór hluti af örplasti sem berst í hafið kemur einnig með ofanvatni eða af landi. Það þarf einnig að horfa til fyrir- byggjandi aðgerða.“ Málið er til vinnslu hjá umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkur og var kynningarfundurinn frá Environice liður í þeirri vinnu. mhj@mbl.is Skoða aðgerðir gegn örplasti í frárennsli  Örplast rennur til sjávar  Minnisblað Environice kynnt Plast Það telst nánast ómögulegt að veiða örplast úr sjónum ólíkt stærra plasti sem finnst í hafinu. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Innanríkisráðuneytið hefur ekki sett gjaldskrá um þóknun og dagpeninga fanga eftir gildistöku nýrra laga um fullnustu refsinga. Umboðsmaður Alþingis telur að setning hennar hafi dregist úr hófi og í áliti sem hann gekk frá á Þorláksmessu beindi hann þeim tilmælum til ráðuneytis- ins að setja gjaldskrá án frekari tafa. Fangelsismálastofnun greiðir föng- um eftir eldri gjaldskrá sem ráðu- neytið og umboðsmaður telja úr gildi fallna. Umboðsmaður Alþingis hefur fengið athugasemdir í kvörtun frá Afstöðu – trúnaðarráði fanga og í öðrum kvörtunum og ábendingum þess efnis að fjárhæðir greiðslna til fanga dugi ekki fyrir þeim nauðsynj- um sem þær eru ætlaðar fyrir. Líta sjaldan glaðan dag Fangelsisstofnun greiðir föngum fyrir vinnu og nám samkvæmt reglu- gerð sem sett var 2014, og dagpen- inga til þeirra sem ekki vinna eða stunda nám. Samkvæmt lögunum eiga dagpeningarnir að duga fyrir brýnustu nauðsynjum til persónu- legrar umhirðu. Umboðsmaður telur að greiðslurnar séu liður í því að tryggja fanga viðunandi skilyrði í fangavistinni í samræmi við mann- réttindareglur og alþjóðleg viðmið um aðbúnað fanga. Greiddar eru 335 til 415 kr. á klukkustund fyrir vinnu við ræsting- ar, brettasmíði og ýmis störf, svo og skólasókn. Dagpeningarnir eru 630 krónur á dag, virka daga, sem gera að jafnaði 13-14 þúsund kr. á mánuði. Í umsögn formanns Afstöðu frá því í haust um frumvarp til breyt- ingar á almannatryggingalögum er bent á að þar sé gert ráð fyrir 58 þús- undum kr. í ráðstöfnunartekjur á mánuði en dagpeningar fanga séu um 12.500 kr. og hafi ekki breyst frá árinu 2006. „Þeir fangar sem eru duglegir, kannski í vinnu inni í fang- elsi og námi, fá þóknun og hafa í sig en varla á og þá sitja þeir eftir sem þiggja eingöngu dagpeninga. Þeir líta sjaldan glaðan dag,“ segir þar. Í lögum um fullnustu refsinga sem tók gildi í lok mars á síðasta ári er gert ráð fyrir því að ákvörðun um þóknanir og dagpeninga færist til innanríkisráðuneytis. Í svörum ráðuneytisins við fyrirspurn um- boðsmanns kom fram að unnið væri að gerð gjaldskrár í samvinnu við Fangelsismálastofnun og gert væri ráð fyrir henni fyrir lok nýliðins árs. Aðspurt taldi ráðuneytið að gjald- skrá sem sett var af Fangelsismála- stofnun og birt í Stjórnartíðindum á árinu 2011 væri ekki lengur í gildi og því væri brýnt að setja nýja gjald- skrá hið fyrsta. Umboðsmaður tekur undir það álit ráðuneytisins að gjald- skráin sé ekki lengur í gildi. Raunar vinnur Fangelsismála- stofnun samkvæmt gjaldskrá sem hún gaf út 2014 en er efnislega sam- hljóða löglega settri gjaldskrá frá árinu 2011. Umboðsmaður telur að gjaldskrá sem gefin er út af Fangels- ismálastofnun geti ekki komið í stað stjórnvaldsákvarðana sem ráðherra gefur út samkvæmt lögum . Gjaldskrá er talin ógild  Innanríkisráðuneyti hefur ekki sett reglugerð um greiðslur til fanga Morgunblaðið/Sigurður Bogi Fangelsi Fangar hafa kvartað und- an gjaldskrá fyrir dagpeninga.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.