Morgunblaðið - 14.01.2017, Síða 23
þyrftu að virða hann. „Ég tel að þetta
sé ófullkominn afvopnunarsamning-
ur. Þetta er ekki vináttusamningur,“
sagði hann. „En þegar Bandaríkin
gefa loforð þurfum við að standa við
þau og vinna með bandamönnum
okkar.“
Mattis bætti við að Bandaríkja-
menn þyrftu að auka eftirlitið með
því að Íranar virtu samninginn.
Stofna þyrfti sérstaka eftirlitsnefnd
á þinginu og sjá til þess að leyniþjón-
ustustofnanir hefðu nægan mannafla
til að fylgjast með framkvæmd
samningsins.
Hershöfðinginn fyrrverandi virt-
ist ekki vera hlynntur því loforði
Trumps að flytja bandaríska sendi-
ráðið í Ísrael frá Tel Aviv til Jerúsal-
em og viðurkenna borgina helgu sem
höfuðborg landsins. „Hver er höfuð-
borg Ísraels?“ spurði einn þing-
mannanna. „Höfuðborg Ísraels, sem
ég myndi fara til, er Tel Avív,“ svar-
aði þá Mattis. Hann kvaðst einnig
vera hlynntur tveggja ríkja lausninni
svonefndu í deilum Palestínumanna
og Ísraela, þ.e. að samið yrði um
stofnun Palestínuríkis.
Tillerson gagnrýndi hins vegar
ályktunina sem öryggisráð Samein-
uðu þjóðanna samþykkti 23. desem-
ber. Ráðið fordæmdi þar landtöku
gyðinga á svæðum Palestínumanna
og krafðist þess að byggingarfram-
kvæmdir þeirra yrðu stöðvaðar.
Stjórn Obama beitti ekki neitunar-
valdi sínu til að hindra ályktunina.
Hlýnun ekki blekking
Trump sagði eftir kosningarnar í
nóvember að eitt af fyrstu verkum
sínum eftir að hann tæki við embætt-
inu á föstudaginn kemur yrði að til-
kynna þann ásetning að draga landið
út úr fríverslunarsamningi landsins
við ellefu Kyrrahafsríki (e. Trans-
Pacific Partnership, TPP). Tillerson
sagði hins vegar við þingmennina að
hann væri hlynntur samningnum.
Forstjórinn fyrrverandi sagði
einnig að hann vildi ekki að Suður-
Kórea, Japan og Sádi-Arabía eign-
uðust kjarnavopn. Í kosningabarátt-
unni hvatti Trump til þess að sam-
starfsríki Bandaríkjanna yrðu sér
úti um eigin kjarnavopn og sú tillaga
var í andstöðu við þá stefnu repúblik-
ana og demókrata síðustu áratugi að
berjast gegn útbreiðslu kjarnavopna
í heiminum. Tillerson kvaðst ætla að
sjá til þess að Bandaríkin héldu þess-
ari stefnu og beittu sér fyrir fækkun
kjarnavopna í heiminum.
Tillerson virðist ekki vera þeirrar
skoðunar að viðvaranir um hlýnun
jarðar séu blekking. „Hættan á lofts-
lagsbreytingum er raunveruleg og
afleiðingarnar eru nógu alvarlegar
til að grípa þurfi til aðgerða,“ sagði
hann við þingmennina. „Ég tel að
það sé mikilvægt að Bandaríkin sitji
áfram við borðið í viðræðunum um
hvernig taka eigi á hættunni á lofts-
lagsbreytingum.“
Trump sagði í kosningabaráttunni
að hann hygðist rifta Parísarsamn-
ingnum um aðgerðir gegn loftslags-
breytingum en léði máls á því að
hætta við það í viðtali við The New
York Times í nóvember. „Ég er að
skoða þetta mjög vandlega. Ég geri
það með opnum huga,“ hafði blaðið
eftir honum.
AFP
FRÉTTIR 23Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 2017
Fjölmiðlar í
Kína hafa
mótmælt
ummælum
Rex Till-
ersons,
utanríkis-
ráðherra-
efnis
Trumps, um
að hann vilji
hindra að Kínverjar hafi aðgang
að manngerðum eyjum sem þeir
hafa byggt upp á umdeildu
svæði í Suður-Kínahafi. Í yfir-
heyrslu á þinginu líkti Tillerson
framkvæmdum Kínverja á
svæðinu við innlimun Krím-
skaga í Rússland. Nokkur
grannríki Kína hafa gert tilkall
til hafsvæðisins, þeirra á meðal
Filippseyjar og Víetnam.
Dagblaðið China Daily, sem
er gefið út á ensku, sagði að ef
Bandaríkjamenn reyndu að
hindra aðgang Kínverja að eyj-
unum gæti það leitt til stríðs og
minnti á að Kína er kjarn-
orkuveldi.
Kínverjar
vara við stríði
UMMÆLUM MÓTMÆLT
Rex Tillerson
Hindúar úr röðum helgra manna,
sem nefnast Naga Sadhus, í skýli á
leið sinni til Sagar-eyju, um 100 km
sunnan við Kalkútta. Þar ætla þeir
að taka þátt í árlegri trúarhátíð
sem nefnist Makar Sankranti og
verður haldin um helgina. Hundruð
þúsunda hindúa baða sig í Ganges-
fljóti á hátíðinni. Þeir telja að baðið
veiti þeim aflausn frá syndum og
leysi þá undan hringrás endur-
fæðinga. Hefð er fyrir því að þús-
undir Naga Sadhus-manna fari fyr-
ir hindúunum, hlaupi naktir í kalt
vatnið og veifi lurkum og sverðum.
AFP
Beðið eftir baði í heilögu vatni
Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is
Gámaleiga
Er gámur lausnin fyrir þig?
Við getum líka geymt gáminn fyrir þig
568 0100
stolpigamar.is
HAFÐU
SAMBAND
Búslóðageymsla z Árstíðabundinn lager z Lager z Sumar-/vetrarvörur
Frystigeymsla z Kæligeymsla z Leiga til skemmri eða lengri tíma