Morgunblaðið - 14.01.2017, Síða 24

Morgunblaðið - 14.01.2017, Síða 24
FRÉTTASKÝRING Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Forsætisráðuneytið er ekkilengur ráðuneyti þjóð-menningar eins og ákveð-ið var við myndun ríkis- stjórnar Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar vorið 2013. Þegar hin nýja stjórn Bjarna Benedikts- sonar tók við í byrjun þessarar viku var gefinn út forsetaúrskurður um skiptingu verkefna milli ráðuneyta sem fól m.a. í sér að þjóðmenningin skyldi á ný heyra undir mennta- og menningarmálaráðuneytið, en þar er Kristján Þór Júlíusson nú hús- bóndi. Mennta- og menningar- málaráðherra er því aftur orðinn yf- irmaður Minjastofnunar og Þjóðminjasafnsins. Upphaflega var Stofnun Árna Magnússonar einnig flutt til forsætisráðuneytisins, en frá því var horfið stuttu seinna þar sem hún er einnig háskólastofnun. Sérstaklega var vikið að þjóð- menningu í stefnuyfirlýsingu rík- isstjórnar Sigmundar Davíðs 22. maí 2013. Þar sagði: „Íslensk þjóðmenn- ing verður í hávegum höfð, að henni hlúð og hún efld. Áhersla verður lögð á málvernd, vernd sögulegra minja og skráningu Íslandssög- unnar, auk rannsókna og fræðslu. Ríkisstjórnin mun vinna að því að auka virðingu fyrir merkri sögu landsins, menningu þess og tungu- málinu, innanlands sem utan.“ Umræður urðu um hina nýju skipan þjóðmenningarmála á Al- þingi nokkrum dögum eftir að rík- isstjórnin tók við. Katrín Jakobs- dóttir, formaður VG, sagðist sakna þess að hugtakið þjóðmenning væri skilgreint í stefnuyfirlýsingunni auk þess sem ekki væri tekið fram hvaða tilgangi flutningurinn þjónaði og að hvaða markmiðum væri stefnt með honum. Valgerður Bjarnadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, sagði ráðherra vera embættismenn sem sinna ættu embættisverkum en ekki áhugamálum sínum. Sagðist hún hafa á tilfinningunni að hér væri áhugasvið Sigmundar Davíðs að ráða för. Innan og utan þings urðu ýmsir til að vara við því að með áherslu á þjóðmenningu væri verið að hlaða undir þjóðrembing, en þá- verandi menntamálaráðherra, Illugi Gunnarsson, vísaði því á bug í um- ræðunum. Sigmundur Davíð var ekki viðstaddur umræðurnar, en Ill- ugi Gunnarsson sagði það eitt að flutningur málaflokksins milli ráðu- neyta endurspeglaði áherslur ríkis- stjórnarinnar. Sérstök skrifstofa stofnuð Eftir tilfærsluna var sett á stofn sérstök skrifstofa þjóðmenningar í forsætisráðuneytinu. Engir starfs- menn sem sinnt höfðu málum Þjóð- minjasafns og Minjastofnunar flutt- ust þangað, en Margrét Hallgríms- dóttir þjóðminjavörður var ráðin til eins árs til að móta starfsemi skrif- stofunnar og verklag. Þá var starfs- mönnum sem fyrir voru í ráðuneyt- inu falið að sinna ýmsum verkefnum skrifstofunnar. Ekki liggur fyrir hvort tilfærslan hafi orðið til sparn- aðar eða aukið útgjöld sem er þó lík- legra. Stærsta og jafnframt um- deildasta málið sem kom frá þjóðmenningarskrifstofunni var lagafrumvarp í febrúar á síðasta ári um að sameina Minjastofnun og Þjóðminjasafnið. Hörð mótmæli komu frá starfsfólki Minjastofn- unar sem taldi hugmyndina mis- ráðna og kvartaði yfir skorti á samráði. Mótmælin leiddu til þess að frumvarpið dagaði uppi í þinginu og er óvíst hvort nýr ráðherra mennta- og menn- ingarmála gerir aðra til- raun til að fá það sam- þykkt. Þjóðmenningin flyst á ný á milli ráðuneyta Ljósmynd/Af vef Þjóðminjasafns Íslands. Aftur heim Þjóðminjasafnið og Minjastofnun flytjast á ný undir forræði mennta- og menningarmálaráðuneytisins eftir 4 ár í forsætisráðuneytinu. 24 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 2017 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Trúfrelsi ergrundvallar-atriði í opnu samfélagi, réttur hvers og eins til að iðka sín trúarbrögð óáreittur og án þess að þurfa að óttast ofsóknir og ofbeldi. Sam- tökin Open Doors USA birtu í vikunni lista yfir þau lönd þar sem kristnir menn sæta mest- um ofsóknum. Á listanum eru 50 lönd og er niðurstaða hreyf- ingarinnar að þar sæti 215 milljónir kristinna „miklum, mjög miklum eða skefjalausum ofsóknum“, eins og fram kom í frétt í Morgunblaðinu í gær, og fara ofsóknirnar vaxandi. Norður-Kórea er í efsta sæti listans fimmtánda árið í röð. Sómalía er í öðru sæti listans, Afganistan því þriðja og Pak- istan í fjórða sæti. Írak og Sýrland hafa færst neðar á listanum, en það kemur ekki til af góðu. Ástæðan er ein- faldlega sú að fjöldi kristinna manna hefur lagt á flótta undan ofsóknum hryðjuverkasamtak- anna Ríkis íslams. Til marks um það er að fyrir borgara- styrjöldina í Sýrlandi voru kristnir íbúar Aleppo 400 þús- und. Nú eru þeir færri en 60 þúsund að mati Open Doors. Það færist í vöxt að öfga- menn stundi hreinsanir og reyni einfaldlega að flæma kristna menn brott frá ákveðnum svæðum með spell- virkjum á heimilum, kirkjum og heilu þorpunum. Finna megi þessu stað í Nígeríu, Sýrlandi og Írak þar sem farið hafi verið ránshendi um heimili, kirkjur eyðilagðar og vatnsból eitruð til að koma í veg fyrir að íbúarnir sneru aftur. Indland er í fimmtánda sæti listans og hefur aldrei verið jafn ofarlega. Þjóðernissinnar úr röðum hindúa hafa þar verið í far- arbroddi og ekki þurft að óttast refsingar. Eftir því sem samtökin kom- ust næst var kveikt í kirkju eða ráðist á prest að meðaltali tíu sinnum í viku á Indlandi frá 31. október 2015 til 31. október 2016. Kristnir menn eru 2% íbúa Indlands, en hindúar 80%. Bresk-indverski listamaðurinn Anish Kapoor segir að undir forustu Narendra Modi hafi verið tekið upp stjórnarfar tal- ibana í hindúaútfærslu. Ofsókn- irnar bitna ekki aðeins á kristn- um mönnum, heldur einnig múslimum og öllum öðrum sem voga sér að hreyfa mótmælum. Hrikalegt er að lesa lýsingar samtakanna á örlögum ofsóttra kristinna manna. Verst er ástandið í Mið-Austurlöndum. Greint er frá því hvernig kristnir menn flýja heimili sín þótt þeir viti að þeirra kunni að bíða að lenda í höndunum á smyglurum og glæpamönnum. Oft er þeim ekki vært í flótta- mannabúðum vegna hópa ísl- amskra öfgamanna, sem þar hafa hreiðrað um sig. Skelfilegt hefur verið að fylgjast með örlögum þeirra sem hafa flosnað upp vegna átaka í Austurlöndum. Ofsóknir á hendur minnihlutahópum eru óþolandi. Sú herferð á hendur kristnum mönnum, sem lýst er hér að ofan, er ein birtingar- mynd slíkra ofsókna þótt ekki hafi hún fengið jafn mikla at- hygli og ýmis önnur óhæfuverk. Mikið hefur verið gert til þess að vinna að sátt og samráði milli trúarbragða. Það þarf að spyrna við gegn þeim öfga- mönnum sem ala á sundrungu og ýta undir ofsóknir á borð við þær sem lýst er hér að ofan. Ofsóknir á hendur kristnum mönnum færast í aukana} Í nafni öfga Tækninni fleygirhratt fram þessa dagana. Það getur verið erfitt að fylgjast með öll- um þeim stöðugu nýjungum og um leið er mikilvægt að vera með á nótunum. Ekki virðist það þó alltaf vera í forgangi. Á fundi Sam- taka iðnaðarins um opinber innkaup gagnrýndi Ragnheiður H. Magnúsdóttir, stjórnar- formaður Samtaka upplýsinga- tæknifyrirtækja, seinagang í opinberum útboðum. „Nú erum við komin á fullt í fjórðu iðnbyltinguna, með sýndarveruleika, gervigreind og fleiru,“ sagði hún. „Hlutirnir gerast alveg gríðarlega hratt og því gengur það ekki að út- boðsferli hins opinbera taki jafnvel eitt til tvö ár að klárast, sér- staklega hvað tækniverkefni varðar. Það er komin alveg ný tækni á mark- aðinn þegar loksins er búið að ljúka ferlinu.“ Ragnheiður sagði að hafa yrði hraðar hendur til að missa ekki af fjórðu iðnbyltingunni. Innkaupaferlið væri hins vegar hægt og „lögfræðingasinnað“ og rígbundið í reglugerða- fargan. „Þetta tekur allt gríðar- legan tíma og ég er ekki viss um að við höfum þennan tíma.“ Ísland nýtur forréttinda fá- mennis. Boðleiðir geta verið stuttar og það ætti að vera hægur vandi að sneiða hjá óþarfa flækjum og íþyngjandi skriffinnsku. Komin ný tækni þeg- ar útboðsferli lýkur}Óþarfur seinagangur Einu sinni var það svo, í Banda-ríkjunum og víðar, að svokall-aðar deildaverslanir, depart-ment stores, voru flaggskiphverrar verslanamiðstöðvar. Báðir græddu á fyrirkomulaginu; deildaversl- unin hagnaðist á því að vera í besta plássinu í vel staðsettri verslanamiðstöð og versl- anamiðstöðin naut góðs af þeim mikla fjölda viðskiptavina sem deildaverslunin laðaði að. Nú er öldin önnur. Deildaverslunin á undir högg að sækja í samkeppni við net- og lág- verðsverslanir, og verslanamiðstöðvarnar sjá sér heldur hag í því að hýsa ódýrar búðir, mat- sölustaði og afþreyingarþjónustu á borð við kvikmyndahús. New York Times greindi frá því í síðustu viku að Macys hygðist fækka störfum um 10.000 en fyrirtækið hafði áður tilkynnt að 100 versl- unum yrði lokað. Sears Holding hyggst einnig hætta rekstri tuga verslana á næstu misserum, 150 allt í allt, en allar eiga þessar búðir það sameiginlegt að hagnaðurinn stendur ekki lengur undir kostnaði. Spekingar segja þessa þróun deildaverslunarinnar munu leiða til þess að ákveðnar verslanamiðstöðvar verði „úreltir“ áfanga- staðir fyrir neytendur en hjá þeim verslanamiðstöðvum sem áfram muni þrífast og dafna muni deildaversl- anirnar hafa minna og minna vægi. Hér heima má glögglega sjá sömu þróun. Í Smáralind víkur breska deildaverslunin Debenhams nú fyrir H&M, og í Kringlunni Hagkaup. H&M er raunar frábært dæmi um draumaverslun versl- anamiðstöðvareigandans; gríðarlega vinsæla lágverðsverslun sem er vís til að laða að mik- inn fjölda viðskiptavina, ekki síst til að byrja með. En þannig munu verslanamiðstöðv- arnar lifa af; með því að bjóða vinsælum verslunum pláss, og ekki skemmir fyrir ef þær eru ódýrar. Verslanamiðstöðvar á Ís- landi eru reyndar einstaklega samkeppn- isfærar vegna veðurfarsins, en það er önnur saga. Hvað deildaverslanirnar varðar virðist vænlegast til vinnings að helga eina deildina matvöru. Þá fær viðskiptavinurinn allt til alls á einum stað, sem er eftirsóknarvert á anna- sömum degi. Í amstrinu er hins vegar enn meira freistandi að sækja vörur og þjónustu gegnum netið, og það er mögulega mesta áskorunin sem „físískar“ verslanir standa frammi fyrir. Ef þær vilja vera samkeppnishæfar verða þær að bjóða upp á eitt- hvað sem netverslunin hefur ekki upp á að bjóða, t.d. persónulega þjónustu, og þá hefur aldrei verið mikilvæg- ara að selja vöruna á hagkvæmu verði. Á sama tíma og viðskiptatálmum fækkar dugir ekki lengur að vísa til óskilgreinds „aðflutningskostnaðar“ til að útskýra gríð- arlegan verðmun milli Íslands og útlanda. Nú ríður ein- faldlega á að laga sig að breyttum tímum, og gildir þá einu hvort um er að ræða deildaverslun eða aðra verslun. holmfridur@mbl.is Hólmfríður Gísladóttir Pistill Samkeppni knýr fram breytingar STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen Sigmundur Davíð gerði þjóð- menningu Íslendinga að um- ræðuefni í fyrstu þjóðhátíðar- ræðu sinni 2013 og vék þar að gagnrýni sem fram hafði komið innan þings og utan. „Að und- anförnu hefur jafnvel orðið vart viðkvæmni fyrir því að talað sé um að hlúa að íslenskri þjóð- menningu,“ sagði hann. „Þótt slík viðhorf séu ekki einkenn- andi fyrir Íslendinga hlýtur að vera áhyggjuefni að jafnvel svo verðmætur og mikilvægur hlut- ur sem sameiginleg saga og menning þjóðarinnar skuli hafður að skotspæni.“ Gagnrýnendur héldu sig við það að með of mikilli áherslu á þjóðmenningu væri gert lítið úr mik- ilvægum þjóðfélags- breytingum og stöðu fjölmenningar í ís- lensku sam- félagi. Þjóðmenning viðkvæm SKIPTAR SKOÐANIR Sigmundur Davíð Gunnlaugsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.