Morgunblaðið - 14.01.2017, Side 25
25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 2017
Gönguferð Vetrarlegt var um að litast í Garðabænum síðdegis í gær, þegar sólin var að setjast og tekið að skyggja. Þá var nú hressandi að fá sér göngutúr og bara klæða sig vel.
Golli
Húsnæðisstefna
Reykjavíkurborgar
sem er frá árinu 2011
hefst á þessum orðum:
„Stefna Reykjavíkur-
borgar er að allir
borgarbúar hafi
öruggt húsnæði á við-
ráðanlegu verði, hvort
sem fólk þarfnast
stuðnings með sín
húsnæðismál eða
ekki.“ Síðan eru liðin rúm fimm ár
og ástandið aldrei verið verra.
Dagur B. Eggertsson borg-
arstjóri hefur verið duglegur að
þylja upp hvað fasteignafélögin eru
að gera eða hvað þau ætla að fara
gera á lóðum sem eru búnar að
vera í höndum þessara félaga í
mörg ár. Hann er líka duglegur að
yfirfæra getuleysi þessa meirihluta
í húsnæðismálum yfir á ríkið. Hann
hefur hins vegar ekki
verið jafn duglegur við
að úthluta lóðum eða
framfylgja stefnum og
áætlunum sem hann
hefur sett. Borg-
arstjóri virðist nefni-
lega halda að fólk geti
búið í áætlunum eða
stefnum og það sé
ekki hlutverk borg-
arinnar að úthluta lóð-
um.
Þeir sem til þekkja
vita hins vegar að
Dagur B. Eggertsson
borgarstjóri á stóran þátt í því að
skapa húsnæðisvandann í borginni
með ákvörðunum og athafnaleysi
þessa og síðasta meirihluta. Bæði
með því að úthluta fáum fjölbýlis-
húsalóðum, draga það að úthluta
lóðum til stúdenta en í viðtali á vis-
ir.is í ágúst 2011 vegna langra bið-
lista eftir stúdentaíbúðum segir
framkvæmdastjóri Félagsstofnunar
stúdenta að ástandið þyrfti ekki að
vera svona slæmt ef Félagsstofnun
stúdenta fengi lóðir til að byggja á,
og með því að fjölga ekki fé-
lagslegum leiguíbúðum árin eftir
hrun þegar framboð á húsnæði sem
hentaði vel til leigu „flæddi“ út á
markaðinn og aðrir sáu kaup-
tækifærin. Borgin ákvað hins vegar
að draga úr fjölgun félagslegra
leiguíbúða á síðasta kjörtímabili
sem m.a. má rekja til vanþekkingar
á framboði leiguhúsnæðis og leigu-
verðs, en fljótlega eftir að borgin
setti sér húsnæðisstefnuna á árinu
2011 hækkaði leiguverð og framboð
minnkaði en eftir sat borgin nánast
aðgerðalaus með húsnæðisstefnuna
sem hefst á framangreindum upp-
hafsorðum.
Á árinu sem var að líða hefur
borgarstjóri aðeins tekið við sér í
því að úthluta lóðum m.a. til stúd-
enta og gert samkomulag við ASÍ
um lóðir á grundvelli samkomulags-
ins sem fyrrverandi ríkisstjórn
gerði við aðila vinnumarkaðarins.
Það tekur hins vegar tíma að
byggja og óhætt að fullyrða að ef
þessi og síðasti meirihluti borg-
arstjórnar hefði ekki sofnað á verð-
inum væri ástandið töluvert annað.
Áætlanir um að fjölga félags-
legum leiguíbúðum um 100 á ári á
þessu kjörtímabili hafa ekki gengið
eftir, engri fjölbýlishúsalóð með
fleiri en fimm íbúðum var úthlutað
á árinu 2015 og nú síðast bókaði
minnihlutinn í borgarstjórn vegna
RÚV-lóðarinnar: „Ljóst er að það
stendur ekki steinn yfir steini í
áætlunum og yfirlýsingum meiri-
hlutans í húsnæðismálum. Fyrst
stóð til að borgin ætti 40 íbúðir
sem dreifðar væru um svæðið en
svo að þær væru allar í sama hús-
inu og nú að það eigi að selja bygg-
ingarréttinn en borgin hafi kaup-
rétt á 15 íbúðum.“
Sú stefna borgarinnar að fækka
félagslegum almennum leiguíbúðum
á síðasta kjörtímabili hefur aukið
vandann verulega, en það var fyrst
í október 2015 sem Félagsbústaðir
áttu jafn margar almennar félags-
legar leiguíbúðir og félagið átti á
árunum 2009 og 2010. Í árslok 2016
voru 893 umsækjendur á biðlista
eftir almennum, félagslegum leigu-
íbúðum hjá Reykjavíkurborg, þar
af voru 643 metnir í mikilli þörf. Til
samanburðar má geta þess að í árs-
lok 2015 voru 723 umsækjendur á
biðlista, þar af voru 535 metnir í
mikilli þörf. Ástandið hefur því
versnað verulega milli ára.
Eftir Guðfinnu
Jóhönnu
Guðmundsdóttur
» Það tekur hins vegar
tíma að byggja og
óhætt að fullyrða að ef
þessi og síðasti meiri-
hluti borgarstjórnar
hefði ekki sofnað á
verðinum væri ástandið
töluvert annað.
Guðfinna Jóhanna
Guðmundsdóttir
Höfundur er borgarfulltrúi
Framsóknar og flugvallarvina.
Fólk býr ekki í áætlunum borgarstjóra