Morgunblaðið - 14.01.2017, Síða 25

Morgunblaðið - 14.01.2017, Síða 25
25 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 2017 Gönguferð Vetrarlegt var um að litast í Garðabænum síðdegis í gær, þegar sólin var að setjast og tekið að skyggja. Þá var nú hressandi að fá sér göngutúr og bara klæða sig vel. Golli Húsnæðisstefna Reykjavíkurborgar sem er frá árinu 2011 hefst á þessum orðum: „Stefna Reykjavíkur- borgar er að allir borgarbúar hafi öruggt húsnæði á við- ráðanlegu verði, hvort sem fólk þarfnast stuðnings með sín húsnæðismál eða ekki.“ Síðan eru liðin rúm fimm ár og ástandið aldrei verið verra. Dagur B. Eggertsson borg- arstjóri hefur verið duglegur að þylja upp hvað fasteignafélögin eru að gera eða hvað þau ætla að fara gera á lóðum sem eru búnar að vera í höndum þessara félaga í mörg ár. Hann er líka duglegur að yfirfæra getuleysi þessa meirihluta í húsnæðismálum yfir á ríkið. Hann hefur hins vegar ekki verið jafn duglegur við að úthluta lóðum eða framfylgja stefnum og áætlunum sem hann hefur sett. Borg- arstjóri virðist nefni- lega halda að fólk geti búið í áætlunum eða stefnum og það sé ekki hlutverk borg- arinnar að úthluta lóð- um. Þeir sem til þekkja vita hins vegar að Dagur B. Eggertsson borgarstjóri á stóran þátt í því að skapa húsnæðisvandann í borginni með ákvörðunum og athafnaleysi þessa og síðasta meirihluta. Bæði með því að úthluta fáum fjölbýlis- húsalóðum, draga það að úthluta lóðum til stúdenta en í viðtali á vis- ir.is í ágúst 2011 vegna langra bið- lista eftir stúdentaíbúðum segir framkvæmdastjóri Félagsstofnunar stúdenta að ástandið þyrfti ekki að vera svona slæmt ef Félagsstofnun stúdenta fengi lóðir til að byggja á, og með því að fjölga ekki fé- lagslegum leiguíbúðum árin eftir hrun þegar framboð á húsnæði sem hentaði vel til leigu „flæddi“ út á markaðinn og aðrir sáu kaup- tækifærin. Borgin ákvað hins vegar að draga úr fjölgun félagslegra leiguíbúða á síðasta kjörtímabili sem m.a. má rekja til vanþekkingar á framboði leiguhúsnæðis og leigu- verðs, en fljótlega eftir að borgin setti sér húsnæðisstefnuna á árinu 2011 hækkaði leiguverð og framboð minnkaði en eftir sat borgin nánast aðgerðalaus með húsnæðisstefnuna sem hefst á framangreindum upp- hafsorðum. Á árinu sem var að líða hefur borgarstjóri aðeins tekið við sér í því að úthluta lóðum m.a. til stúd- enta og gert samkomulag við ASÍ um lóðir á grundvelli samkomulags- ins sem fyrrverandi ríkisstjórn gerði við aðila vinnumarkaðarins. Það tekur hins vegar tíma að byggja og óhætt að fullyrða að ef þessi og síðasti meirihluti borg- arstjórnar hefði ekki sofnað á verð- inum væri ástandið töluvert annað. Áætlanir um að fjölga félags- legum leiguíbúðum um 100 á ári á þessu kjörtímabili hafa ekki gengið eftir, engri fjölbýlishúsalóð með fleiri en fimm íbúðum var úthlutað á árinu 2015 og nú síðast bókaði minnihlutinn í borgarstjórn vegna RÚV-lóðarinnar: „Ljóst er að það stendur ekki steinn yfir steini í áætlunum og yfirlýsingum meiri- hlutans í húsnæðismálum. Fyrst stóð til að borgin ætti 40 íbúðir sem dreifðar væru um svæðið en svo að þær væru allar í sama hús- inu og nú að það eigi að selja bygg- ingarréttinn en borgin hafi kaup- rétt á 15 íbúðum.“ Sú stefna borgarinnar að fækka félagslegum almennum leiguíbúðum á síðasta kjörtímabili hefur aukið vandann verulega, en það var fyrst í október 2015 sem Félagsbústaðir áttu jafn margar almennar félags- legar leiguíbúðir og félagið átti á árunum 2009 og 2010. Í árslok 2016 voru 893 umsækjendur á biðlista eftir almennum, félagslegum leigu- íbúðum hjá Reykjavíkurborg, þar af voru 643 metnir í mikilli þörf. Til samanburðar má geta þess að í árs- lok 2015 voru 723 umsækjendur á biðlista, þar af voru 535 metnir í mikilli þörf. Ástandið hefur því versnað verulega milli ára. Eftir Guðfinnu Jóhönnu Guðmundsdóttur » Það tekur hins vegar tíma að byggja og óhætt að fullyrða að ef þessi og síðasti meiri- hluti borgarstjórnar hefði ekki sofnað á verðinum væri ástandið töluvert annað. Guðfinna Jóhanna Guðmundsdóttir Höfundur er borgarfulltrúi Framsóknar og flugvallarvina. Fólk býr ekki í áætlunum borgarstjóra

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.