Morgunblaðið - 14.01.2017, Síða 37

Morgunblaðið - 14.01.2017, Síða 37
MINNINGAR 37 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 2017 tími undir handleiðslu okkar góðu kennara. Í frítímum var margt sér til gamans gert, farið í gönguferðir, t.d. upp að trú- lofunarhríslu, skautað á ísi- lögðu vatninu og kvöldunum eytt við handavinnu eða dansað í handavinnustofunni og svo smá skrepp í „Mexicó“. Í öllu þessu tók Stína okkar fullan þátt og var hrókur alls fagn- aðar, þá var ekki amalegt að eiga hana að þegar gera átti sig sæta og fína, var hún þá með greiðuna á lofti og túberaði flesta hausa með góðum ár- angri. Þegar skóla lauk dreifð- umst við vítt og breitt um land- ið og eignuðumst börn og buru, en sambandið rofnaði aldrei og hittumst við fyrst um sinn á fimm ára fresti, ýmist á Laug- arvatni, Vestmannaeyjum, Stykkishólmi eða við fórum til Danmerkur, alltaf var Stína með og eru þetta ógleyman- legar ferðir. Stína okkar sá allt- af um myndatökur og deildi því svo á fésbókina. Síðari árin hittumst við bæði vor og haust og vináttuböndin styrkjast meir og meir og lét hún sitt ekki eft- ir liggja og kom síðastliðið vor í Grímsnesið, þá orðin mjög veik en hún kvartaði aldrei. „Ég segi allt gott“ var ávallt svarið þegar spurt var: „Hvernig hef- ur þú það í dag, Stína mín?“ Hún var ótrúleg kona, hörku- dugleg, jákvæð og sá alltaf björtu hliðarnar á öllu. Þau Siggi áttu stóran barnahóp og var hún stolt af honum og hélt vel utan um hann. Við skóla- systurnar munum sakna henn- ar Stínu okkar og með virðingu og þakklæti kveðjum við hana og vitum að hún á góða heim- komu í Sumarlandinu. Sigga, börnunum þeirra og fjölskyld- unni allri sendum við innilegar samúðarkveðjur. Guð veri með ykkur. Fyrir hönd skólasystranna á Húsó veturinn 1962-1963, Hrefna. óspart af reynslu sinni. Allt gert fumlaust og vel og á vandamálum var tekið af yf- irvegun og útsjónarsemi. Um- fram allt vandað til verka og ekki var tjaldað til einnar næt- ur, heldur hugsað til þess að klára og það stæði til fram- búðar. Sigurður hafði gaman af að rifja upp sögur frá uppvaxtar- árum sínum. Hann ólst upp í upp í stórum systkinahópi í Neshjáleigu í Loðmundarfirði, en flutti svo með fólkinu sínu í Hólaland í Borgarfirði eystra. Þar voru ræturnar grónar og það voru þær líka í Breiðdaln- um, þar sem hann bjó svo lengi. Þekkti vel sögu og staðhætti. Í Breiðdalinn fluttu einnig bræð- ur hans, Aðalsteinn, Friðjón og Davíð. Þeir voru þekktir fyrir dugnað og ósérhlífni. Eitt sinn horfði aðkomumaður á nokkra bræðurna að störfum í frysti- húsinu á Breiðdalsvík og spurði Pétur Sigurðsson, forstjóra, hvað þeir væru eiginlega marg- ir þessir Hólalandsbræður. „Ekki nógu margir,“ svaraði forstjórinn að bragði. Í Felli var hestamennska í hávegum höfð og fáir hafa kennt mér meira um hestinn og reiðmennsku, en Sigurður og Einar. Þeir þekktu þá tíma þeg- ar hesturinn var þarfasti þjón- inn og voru næmir á ungviðið og hvað í því bjó. Í umgengni við hrossin sýndu þeir ákveðni og festu, en sýndu aldrei hörku eða fóru með háreysti. Sigurður vildi hafa hrossin harðger, vel tamin, en frjáls og hafði gaman af að fara hratt yfir með mörg til reiðar. Mikið var gefandi að vera með Sigurði, njóta vináttu hans og verka. Fyrir það þakka ég innilega. Góður Guð blessi minningu Sigurðar og umvefji ástvini alla. Stefán Már Gunnlaugsson. Þegar ég var lítill dvaldi ég slíkum langdvölum hjá afa mínum og ömmu á Ártúni 17 að farið var að líta á mig sem viðbótarson heimilisins. Skv. því fékk Gunnar frændi minn hlutverk stóra bróður og dró það bróðerni mjög dám af Cartwright-bræðrum í Bonanza- þáttunum sem svo vinsælir voru um þær mundir, orðaskylmingar í hámarki, vinahót í lágmarki. Enda trúði ég því varla er Gunn- ar gaf mér Matchbox-bifreið á fimm ára afmæli mínu 1968, ein- lægur á svip. Cartwright-bræður voru víst líka meyrir inni við beinið. Þetta var á tíma „kynslóðabils- ins“ og Gunnar tileinkaði sér útlit þeirra dýrðarára. Hann var Ringo á Hvíta albúminu eða kannski George. Alltaf með dömu upp á arminn og ók um á bláum Chevrolet með innbyggðum plötuspilara. Ég geymi þó mynd af honum liggj- andi upp í rúmi í reykjarkófi með bók í hönd meðan Pioneer-hljóm- flutningstækin drundu. Hann las skemmtirit, drengjasögur, Helj- arslóðarorrustu Gröndals, Mark Twain, allt, og ræddi oft efni þeirra á eftir. Elskaði greinilega bækur en tók þó hjartanlega undir tal þorpsbúa um menntamenn og „eilífðarstúdenta“. En það bar skugga á þessi ár sem allir er til þekkja muna vel. Varla af barnsaldri hafði Gunnar kynnst Bakkusi konungi og gerð- ust þau kynni svo náin með hverju árinu að mönnum, ekki síst foreldrum hans, þótti nóg um. Framtíð hins góða drengs virtist vera í húfi ef ekkert væri að gert. Þá gerist það að einn af slark- félögum Gunnars, nýkominn úr meðferð á Staðarfelli, sem þá var nýjung, mælir eindregið með hinu sama fyrir hann. Gunnar lét tilleiðast, að því er virtist af rælni en svo gerðist undrið. Hann kom heim endurnýjaður. Ein stór breyting var sú að Gunnar sem ávallt hafði hnussað við trúarleg- um málefnum virtist nú móttæki- legur. Hann fagnaði fyrsta edrú-af- mælinu. Kraftaverk, sagði fólk. Svo öðru og þriðja. Vinurinn sem beindi honum á þessa braut var löngu fallinn, meðan Gunnar tók undir með þjóðskáldinu, – „Vilji er allt sem þarf!“ Hver var ístöðulaus núna? Á Vesturheimsárum mínum hafði ég stopult samband við frænda minn en frétti þó að um- brot eins og skilnaður og nýtt hjónaband hefðu engin áhrif á staðfestu hans. Hann hlaut að vera stjörnunemi SÁÁ, fyrr og síðar. Samt segja þeir að menn séu aldrei læknaðir. Þegar ég sneri aftur til Íslands var einn þeirra er ég mest hlakk- aði til að hitta Gunnar frændi. Tíminn á milli fundanna hvarf og það var eins og við hefðum stigið úr Bonanza yfir í Húsið á Slétt- unni. En nú var tíminn óvinur vor. Þetta hljómar e.t.v. eins og sena úr gömlum róman, en í vor bauð Gunnar mér í ökuferð um Flóann í glampandi sólskini. Við fórum um Bakkann, Stokkseyri með viðkomu á ættarjörðinni – Hurðarbaki. Margt var skrafað en þó voru orð eiginlega óþörf, þessi stóru. Vágesturinn sótti á. Von og Gunnar Þórir Þórmundsson ✝ Gunnar ÞórirÞórmundsson fæddist 28. mars 1951. Hann lést 1. janúar 2017. Útför Gunnars var gerð 12. janúar 2017. baráttuvilji vék fyr- ir ósk um að fá að „fara sáttur“ og eig- inkona hans, Sólrún gerði allt til að svo mætti vera. Hann kvaddi á nýársdag, á nýársdag er hann setti flöskuna til hliðar í síðasta sinn fyrir 36 árum. Ég held hann hefði ekki talið mánaðardag- inn tilviljun. Kristinn Jón Guðmundsson. Nýársdagur boðar alltaf nýtt upphaf, aldrei endalok. Þann dag veljum við iðulega til að setja okkur ný markmið og þann dag valdir þú til að stíga þín fyrstu skref inn í nýja tilveru. Að þú færir í þá ferð svona ungur og á undan mér hef ég aldrei leitt hug- ann að en nú þegar það blasir við vilja orðin sem mig langar að segja við þig ekki láta fanga sig á blað og þess vegna leita ég í fjár- sjóðskistu föður míns heitins. Ljóð hans sem ég set hér fyrir neðan orti hann í orðastað Gunnu systur, þá þriggja ára, til konu sem henni var kær. Þau orð geri ég nú að mínum. Væri ég skáld þá skyldi ég nú skrifa þér fallegt kvæði. Kvæði sem nægði í breiða brú, brú sem að til þín næði, svo örlítið hægara ættir þú við okkur að spjalla í næði. Kvæðið mitt verður lítið og ljótt, ég lagði á hálan ísinn. Nú skal ég reyna að hafa hljótt, ég horfi á klukkuvísinn. Ég ætla að vita í alla nótt hvort ei komi ljóðadísin. Hún vildi ekki láta heyra til sín, hart er ég leikin af svefni. Ljótt er að skimpast við ljóðin mín að loforðum þó ég stefni. En sumarkveðju ég sendi til þín og svolítið brúarefni. Elsku Sollu, Stebba, Munda, Lilju Björgu, Tinnu, Lilju Björk, Rögnu, yndislegu barnabörnun- um og öllum öðrum sem elska þig votta ég mína dýpstu samúð. En gleymum ekki að svo lengi sem þau andann draga lifir þú. Guð veri með þeim öllum, Svanheiður (Svansý). Að kvöldi nýársdags lést vinur minn eftir snarpa og hetjulega baráttu við krabbamein. Gunnar hef ég þekkt frá æskuárum en seinustu 23 ár hafa verið nánari eftir hann endurnýjaði kynnin við æskuástina sína hana Sollu vin- konu mína. Þá og sérstaklega seinustu ár- in náði ég að kynnast honum bet- ur en Gunnar var dulur og lét lítið fyrir sér fara, en traustur og hlýr þegar á reyndi . Gunnar var afar fróður og víð- lesinn einnig var hann mikill mannþekkjari og tók vel eftir öll- um töktum og háttum í fari fólks kunni ógrynni af sögum um gamla Selfyssinga og naut þess að segja frá og lék oft eftir við- komandi einstakling. Seinustu mánuði kölluðum við það sögu- stund þegar ég heimsótti þau hjón, og boðið var ýmist upp á ís- veislu eða „sýni gott“ oft enduðu þau kvöld illa hjá undirritaðri sem kunni sér ekki magamál og hafði Gunnar gaman af að gant- ast með það og spurði næst þegar ég kom eigum við kannski að hafa ís í kvöld og setti höfuðið ofan í bringu og kímdi. Gunni var stoltur og bar mikla virðingu fyrir konu sinni, færði henni blóm jafnvel þegar hann skrapp heim í mat eða kom heim eftir langan vinnudag tilefnið var alltaf hún „Solla mín á það svo skilið.“ Gaman var að sjá þennan hrjúfa mann breytast í hinn mesta ljúfling þegar börn voru annars vegar, Gunni kunni lagið á þeim hann var stríðin en aldrei svo að hann særði þau. Síðustu mánuðir voru þeim hjónum erf- iðir þegar ljóst var í hvað stefndi, en þau unnu það verkefni af mik- illi skynsemi og yfirvegun sem ég og fleiri dáðust að. Gunnar sýndi sínar fallegu tilfinningar og var opinn fyrir því að ræða það sem framundan var. Lagði mikið upp úr því að fá að vera heima hjá Sollu sinni þar til yfir lyki, þau hjónin notuðu tímann vel til að vera saman, bæði höfðu kynnst krabbameininu en Solla kláraði krabbameinsmeðferð tveimur ár- um áður en Gunni greinist. Ég vil þakka Gunna fyrir allt traust við mig og mína í gegnum árin. Megi góður Guð styrkja vin- konu mína og fjölskylduna alla á erfiðu tímum. Farðu vel inn ljósið, kæri vin- ur. Sigurbjörg Grétarsdóttir. Kær vinur okkar og félagi, Gunnar Þórmundsson, er nú fall- inn frá. Það er alltaf erfitt að horfa á eftir góðum vini en ljúfar minn- ingar um þennan einstak mann lifa. Við höfum þekkt Gunna í fjölda ára en eftir að hann tengd- ist inn í fjölskyldu okkar mynd- aðist einstök vinátta við þau hjón- in. Gunni var einstaklega barngóður, ljúfur og skemmtileg- ur maður með góðan húmor og var alltaf boðinn og búinn ef hann gat lagt okkur lið. Hann var ein- staklega barngóður og gaf sér alltaf tíma til að tala við barna- börnin og var oft gaman að fylgj- ast með þeim samræðum. Við viljum þakka allar góðu stundirnar, dýrmætar minningar lifa. Elsku Solla og aðrir aðstand- endur, innilegar samúðarkveðjur og biðjum Guð að blessa ykkur öll. „Einstakur“ er orð sem notað er þegar lýsa á því sem engu öðru er líkt, faðmlagi eða sólarlagi eða manni sem veitir ástúð með brosi eða vinsemd. „Einstakur“ lýsir fólki sem stjórnast af rödd hjarta síns og hefur í huga hjörtu annarra. „Einstakur“ á við þá sem eru dáðir og dýrmætir og hverra skarð verður aldrei fyllt. „Einstakur“ er orð sem best lýsir þér. (Terri Fernandz) Guðmundur Tyrfingsson, Sigríður Benediktsdóttir. Kveðja frá Bifreiðaklúbbi Suðurlands Okkur félagana í Bifreiða- klúbbi Suðurlands langar að minnast Gunnars Þórmundsson- ar með nokkrum orðum. Við söknum vinar og félaga, sem starfaði með okkur árum saman og sem stjórnarmaður í nokkur ár. Hann var hafsjór af fróðleik, bæði um bíla og menn, og betri og skemmtilegri sögumaður er vandfundinn. Hann kom á flesta fundi og var með í nánast öllum ferðum. Margs er að minnast. Eftirminnileg er ferðin til Vestmannaeyja á bílunum fyrir tæpum tveimur árum og síðast kom hann með í haustferðina austur að Skógum í október síð- astliðnum. Ekki má gleyma ísrúntunum á sumrin, þorrablót- unum og landsmótunum. Nú er Gunni búinn að fara í sína síðustu ferð á Lettanum sín- um. Eiginkonu og öllum ástvinum hans sendum við samúðarkveðjur og söknum vinar í stað. Fyrir hönd stjórnar klúbbsins, Guðmundur Þ. Óskarsson formaður. ✝ Nanna Sigurð-ardóttir frá Stafafelli í Lóni fæddist 23. júlí 1920. Hún lést 4. janúar á hjúkr- unardeildinni á Höfn. Hún var dóttir Sigurðar Jóns- sonar, Stafafelli, og Ragnhildar Guðmundsdóttur frá Lundum í Stafholt- stungum. Þau áttu þrjú börn. Eldri bróðir var Ásgeir, bóndi á Víghólsstöðum á Fellsströnd, en yngri bróðir var Gunnlaug- ur, skrifstofumaður á Djúpa- vogi. Nanna giftist Ólafi Berg- sveinssyni frá Gufudal í Barðastrandar- sýslu. Þau hófu búskap á Stafafelli árið 1958 og eign- uðust þrjá syni. Elstur er Sigurður á Stafafelli, síðan Bergsveinn í Reykjavík og yngstur er Gunn- laugur í Mosfells- bæ. Barnabörnin eru líka þrír strákar. Benjamín Tumi Berg- sveinsson, Ólafur Orri Gunn- laugsson og Magnús Már Gunnlaugsson. Útförin fer fram frá Hafn- arkirkju í dag, 14. janúar 2017, klukkan 13. Jarðsett verður í Stafafellskirkjugarði. Það var eftirminnileg stund að koma í Stafafell í fyrsta skipti sumarið 1966 og hitta þar fyrir frændfólk sem oft hafði verið rætt um á æskuheimili mínu á Hallormsstað, Sigurð Jónsson og dóttur hans Nönnu, sem þar stóð fyrir búi ásamt eiginmanni sínum, Ólafi Bergsveinssyni. Synir þeirra þrír voru þar einnig á vettvangi kornungir, fæddir á árunum 1958-1962. Af þeim hef ég síðar haft margvísleg og góð kynni. Faðir minn og Sigurður voru systrasynir, og við Nanna því þremenningar. Ömmur okk- ar, Margrét og Elísabet Sigurð- ardætur, skrifuðust reglulega á eftir að sú fyrrnefnda giftist séra Jóni Jónssyni og fluttist í Bjarnanes 1880 og síðar að Stafafelli. Bréf þeirra skipta mörgum tugum og varpa skýru ljósi á hugarheim þeirra systra og hugðarefni. Sigurður, faðir Nönnu, hafði einu sinni komið í Hallormsstað í mínu minni, en leiðir á milli Lóns og Héraðs höfðu í raun lengst eftir að hestaferðir lögðust að mestu af, uns stopult akvegasamband komst á um Breiðdalsheiði og Lónsheiði nálægt miðri 20. öld. Mér var strax afar vel tekið á Stafafelli og fræddist mikið af Sigurði um liðna tíð og sveitina, þar á meðal um Stafafellsfjöll og Lónsöræfi sem ég átti eftir að ferðast um árum saman í kjöl- farið. Uppskera af þeim kynnum og samráði við eigendur Brekku í Lóni birtist í stofnun friðlands á Lónsöræfum árið 1977, en það er eitt fegursta náttúruverndar- svæði hérlendis. Heima fyrir annaðist Nanna húsverk, barna- uppeldi og símavörslu á meðan Stafafell var símstöð. Hún gaf sér þó alltaf góðan tíma til að spjalla við gesti yfir kaffiveit- ingum. Ég greindi hjá henni ýmsa eiginleika og takta sem loðað hafa við föðurætt mína og hentum við stundum gaman að. Hún hafði lifandi áhuga á bók- menntum og kunni m.a. góð skil á verkum afa síns Jóns Jóns- sonar (1849-1920), sem var síð- asti prestur á Stafafelli, skáld- mæltur, mikill áhugamaður um íslensk fræði og alþingismaður Austur-Skaftfellinga um skeið. Ragnheiði, móður Nönnu, kynntist ég einnig eftir að hún háöldruð flutti á ný inn á heimili dóttur sinnar. Þar fór greind kona og gjörhugul sem lokið hafði kennaraprófi um tvítugt 1912. Hún náði því að verða hundrað ára og litlu munaði að Nanna fylgdi í fótspor hennar um langlífi. Við Kristín heim- sóttum Nönnu síðast á hjúkr- unarheimilið á Höfn fyrir tveim- ur árum. Hún naut þar góðrar umönnunar til hinstu stundar. Ólafi, sonum og öðrum aðstand- endum sendum við samúðar- kveðjur. Hjörleifur Guttormsson. Nanna Sigurðardóttir Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför míns besta vinar og ástkærs eiginmanns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, JÓNASAR ÞÓRARINSSONAR, Kirkjuvegi 1, Reykjanesbæ. Sérstakar þakkir fær starfsfólk D-deildar og heimahjúkrunar á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. . Þórunn Axelsdóttir, Magnús Rúnar Jónasson, Ágústa Ásgeirsdóttir, Þórarinn Sveinn Jónasson, Rut Jónsdóttir, Jónas Þór Jónasson, Særún Rúnarsdóttir, Sveinn Ólafur Jónasson, Herborg Hjálmarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar elskulegrar móður okkar og tengdamóður, GUÐBORGAR ELÍASDÓTTUR, dvalarheimilinu Höfða, Akranesi. Sérstakar þakkir til starfsfólks dvalarheimilisins Höfða. . Elías Jóhannesson, Dröfn Einarsdóttir, Pétur Steinar Jóhanness., Magnea G. Sigurðard., Dagbjartur Jóhannesson, Elín Gunnarsdóttir, Ómar Þór Jóhannesson, Anna Eiríksdóttir, Jóhanna G. Jóhannesd., Logi Arnar Guðjónsson, Elísabet Jóhannesdóttir, Hafsteinn Jóhannesson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.