Morgunblaðið - 14.01.2017, Síða 46

Morgunblaðið - 14.01.2017, Síða 46
46 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 2017 Söfn • Setur • Sýningar LISTASAFN ÍSLANDS T E X T I 15.9 - 16.4.2017 Valin textaverk úr safni Péturs Arasonar og Rögnu Róbertsdóttur VALTÝR PÉTURSSON 24.9 - 26.3.2017 JOAN JONAS Reanimation Detail 2010/2012 26.10 - 26.02 2017 VASULKA-STOFA Miðstöð fyrir raf- og stafræna list á Íslandi SAFNBÚÐ - Listrænar gjafavörur KAFFISTOFA - Ljúffengar veitingar Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is. Opið alla daga kl. 11-17. Lokað á mánudögum LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR SAMSKEYTINGAR 3.9. - 28.05. 2017 Lokað í desember og janúar. Opnar aftur laugardaginn 4. febrúar. Laugarnestanga 70, sími 553 2906, www.lso.is SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR ÓGNVEKJANDI NÁTTÚRA 2.10.2016 - 7.5.2017 Lokað í desember og janúar. Opnar aftur laugardaginn 4. febrúar. Bergstaðastræti 74, sími 561 9616, www.listasafn.is Sunnudaginn 15. janúar: Tveir fyrir einn af aðgangseyri Sunnudaginn 15. janúar kl. 14: Arndís S. Árnadóttir verður með leiðsögn um ljósmyndasýninguna Kaldal í tíma og rúmi. Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár grunnsýning Þjóðminjasafnsins Portrett Kaldals í Myndasal Ísland í heiminum, heimurinn í Íslandi í Bogasal Kaldal í tíma og rúmi á Vegg Safnbúð fjölbreytt úrval gjafavöru Kaffitár ljúfar veitingar í fallegu umhverfi ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200, www.thodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn Opið þriðjudaga til sunnudaga frá 10-17. Sunnudaginn 15. janúar kl. 14: Fjölskyldustund Sýningin Sjónarhorn Ferðalag um íslenskan myndheim fyrr og nú Jónsbók, kirkjulist, skjöl, samtímalist, alþýðulist, plötuumslög, ljósmyndir, landakort, vaxmynd og margt fleira Geirfugl †Pinguinus impennis Aldauði tegundar – Síðustu sýnin Fræðslurými og skemmtilegt fræðsluefni fyrir alla fjölskylduna. Safnbúð Bækur og gjafavörur í úrvali Kaffitár ljúfar veitingar í fallegu umhverfi, opið þriðjudaga til sunnudaga frá 10-17 Safnahúsið er hluti af Þjóðminjasafni Íslands Hverfisgata 15, 101 Reykjavík s: 530 2210 www.safnahusid.is - https://www.facebook.com/safnahusid/ Opið þriðjudaga til sunnudaga frá 10-17 SAFNAHÚSIÐ VIÐ HVERFISGÖTU Opnað verður fyrir umsóknir í myndlistarsjóð 16. janúar Undirbúningsstyrkir og styrkir til minni sýningarverkefna allt að 500.000 kr. Styrkir til stærri sýningarverkefna, útgáfu-/rannsóknarstyrkir og aðrir styrkir allt að 2.000.000 kr. Úthlutað verður tvisvar úr sjóðnum árið 2017M yn dl is ta rs jó ðu r Úr fyrri úthlutun verða veittir Nánari upplýsingar er að finna á vefsíðu myndlistarráðs, myndlistarsjodur.is Úthlutað verður í mars Umsóknarfrestur er til miðnættis 27. febrúar 2016 Þótt ferill Guðmundar Arn-ars Guðmundssonar, leik-stjóra Hjartasteins, sérétt að hefjast hefur hann þegar sýnt fram á að hann er mað- ur mikilla hæfileika. Árið 2013 sendi hann frá sér stuttmyndina Hvalfjörð, sem segir frá tveimur bræðrum sem búa í harðneskju- legri sveit, hinn eldri glímir við þunglyndi og sá yngri vill helst af öllu gæta bróður síns en báðir eiga þeir bágt með að tjá sig einlæglega með orðum, þráður sem einnig má greina í þessari nýju kvikmynd. Myndræn hlið Hvalfjarðar var í alla staði til fyrirmyndar og sumar sen- ur framúrskarandi fallegar. Hún vann til meira en fimmtíu verðlauna á kvikmyndahátíðum víða um lönd og hlaut þann gríðarmikla heiður að vera valin til þátttöku í að- alkeppni Cannes í flokki stutt- mynda. Hjartasteinn er fyrsta kvikmynd Guðmundar í fullri lengd. Hann er sannkallaður þúsundþjalasmiður, en hann leikstýrir, framleiðir og ritar handritið og að hans sögn hófst vinna við handritið fyrir tíu árum. Kvikmyndin gerist eitt ör- lagaríkt sumar í lífi þeirra Þórs og Kristjáns, perluvina sem búa í ægi- fögru sjávarþorpi á Íslandi. Í mögnuðu upphafsatriði mynd- arinnar sjáum við vinina tvo ásamt fleiri strákum slóra á sólbaðaðri bryggjunni. Skyndilega syndir fiskitorfa undir bryggjuna og strákarnir stökkva til og draga fram veiðarfærin. Þeir ná að draga nokkra væna fiska á land og þá breytist þessi værðarlega sumar- stund skyndilega í villimannslega slátrun þar sem strákarnir berja á spriklandi fiskunum, slá þeim utan í staura og rífa úr þeim tálknin. Kristján hrækir upp í vesælan mar- hnút sem ratað hefur á eitt færið og gerir sig reiðubúinn til að fleygja honum aftur í sjóinn en það er hiti í hinum strákunum og þeir hrifsa marhnútsgreyið, kasta því í jörðina og stappa á því af öllu afli þar til Þór skakkar leikinn. Marhnúturinn er orðinn að slímugu hrúgaldi og piltarnir sjá að nú hafa þeir gengið of langt, farið yfir mörkin. Upphafsatriðið setur tóninn fyrir þessa uppvaxtarsögu og verkar sem myndlíking fyrir söguna í heild. Þór og Kristján þreifa fyrir sér í leit að réttum félagslegum mörkum en gjarnan gera slíkar þreifingar kröfu um að fara yfir mörkin og láta á þau reyna. Ef þú stígur út af sporinu, ert öðruvísi en fólk er flest, máttu eiga á hættu að vera kraminn til dauða eins og mar- hnúturinn á bryggjunni. Persónur myndarinnar standa á tímamótum þar sem þær þurfa að kynnast nýj- um tilfinningum og í raun sjálfum sér upp á nýtt. Allt í einu getur ein athugasemd eða snerting orðið eitt- hvað annað en hún átti að vera, það sem áður hafði enga merkingu er orðið merkingarbært. Fjölskyldur drengjanna eru meingallaðar, hvor með sínu sniði. Kristján þarf að þola þrúgandi nærveru föður síns, sem er ofbeld- isfullur og drykkfelldur og stjórnar heimilinu með harðri hendi. Þór upplifir hins vegar að móðirin sé ekki nægilega til staðar fyrir hann. Fjölskylda hans nær illa inn að kjarna sinna vandamála þar sem allir á heimilinu eru með ofnæmi fyrir einlægni. Þetta sést vel í skondnu atriði þar sem Hafdís, stóra systir Þórs, les frumsamið ljóð við matarborðið og hinir fjöl- skyldumeðlimirnir hörfa sam- stundis í skotgrafir meinhæðn- innar, ófærir um að taka á flutningnum af kurteisi. Það vekur sérstaka eftirtekt hvað handritið er gott. Samtölin eru haganlega skrifuð, lágstemmd, sannfærandi og náttúruleg. Leik- ararnir gæða textann lífi, standa sig flestir prýðilega og ber helst að nefna Baldur og Blæ sem túlka þá Þór og Kristján, en þeir eru feikna- sterkir í sínum rullum. Raunar eru allir krakkarnir með eindæmum góðir og ljóst er að vel var staðið að leikaravali fyrir myndina. Persónu- sköpunin er vönduð og nær höfund- urinn fram dýpt í persónum Þórs og Kristjáns. Í upphafi er Þór óör- uggur, hann telur sig skorta lík- amlegt atgervi og lætur sig dreyma um karlmannlegri hárvöxt. Krist- ján er aftur á móti afslappaðri og áræðnari. Þegar á líður vex Þóri ás- megin en Kristján upplifir stig- magnandi óvissu og efa þegar hann áttar sig sífellt betur á að tilfinn- ingar hans í garð Þórs eru gjör- breyttar og eftir því sem heimilis- aðstæður hans versna sekkur hann dýpra og dýpra niður á við. Sam- band drengjanna kúvendist og þró- unin sem verður á sambandi þeirra og þeim sjálfum er einstaklega vel útfærð og þrælúthugsuð. Kvikmyndatakan er stórfín, sem er ekki að furða því á bak við myndavélina er hinn afbragðsgóði kvikmyndatökumaður Sturla Brandt Gøvlen, sem annaðist meðal annars kvikmyndatöku í Hrútum og í þýsku myndinni Victoria sem er tveggja tíma löng en var öll tekin í einu skoti og er eitt magnaðasta kvikmyndatökuafrek síðari tíma. Fjörur og fjallgarðar skarta sínu fegursta í stórbrotnum víðmyndum og með notkun á náttúrulýsingu, vandaðri kvikmyndatöku og klipp- ingu ná aðstandendur myndarinnar fram mikilli myndrænni fegurð. At- riðið þegar Kristján veður út í læk, dýfir höfðinu ofan í vatnið og öskr- ar af geðshræringu er dæmi um at- riði sem kitlar fegurðarskynið al- veg sérstaklega. Hjartasteinn hefur þegar sópað að sér verðlaunum á kvikmynda- hátíðum víða um lönd. Á tímum þverþjóðlegu kvikmyndarinnar, þar sem fjármagn og dreifing lista- kvikmynda einskorðast ekki við einn staðbundinn markað, er mark- miðið að gera bíómynd sem virkar í senn fyrir heimamenn og fyrir kvikmyndahátíðargesti í öðrum löndum. Því markmiði mun Hjarta- steinn vísast ná, hún hefur að minnsta kosti náð að sigra nokkur lönd og mun vafalaust renna vel of- an í íslenska sýningargesti ef eitt- hvað var að marka viðbrögðin í salnum á forsýningarkvöldinu. Í grunninn er sagan afar alþjóðleg en viss stemning í henni ætti að tala sérstaklega til íslenskra áhorfenda og vekja upp minningar frá björt- um æskusumrum, eins og þegar persónurnar ösla mýrlendið í skít- ugum strigaskóm, virða fyrir sér fuglshræ og aðra töfragripi í fjör- unni og súpa á dularfullu glundri í fyrsta sinn úr ómerktri plastflösku. Hjartasteinn fjallar um átökin milli leikgleðinnar og grimmdar- innar sem einkenna unglingsárin. Það getur tekið á að tapa sakleys- inu, að vera lítill og stór á sama tíma. Stundum vill maður vera lítill og kúra í fanginu á stóru systur, stundum þarf maður að vera stór og manna sig upp í að kyssa þann sem maður elskar eða í að lemja stærsta hrekkjusvínið í bænum í nafni vináttunnar. Uppvaxtarsagan er vissulega fastmótað frásagnar- form og geta slíkar sögur auðveld- lega orðið formúlukenndar en myndin nær að að sveigja hjá klisj- unum, sagan er sterk og marg- slungin og verður aldrei klén. Hún fjallar um ástarmál barna án þess að verða hallærisleg og nær af stakri prýði að fanga æðibunugang æskunnar, þar sem gleðivíma per- sónanna víkur jafnskjótt fyrir þrúgandi óhamingju. Áhorfendur hrífast með í þetta ferðalag þar sem þeir eitt augnablik engjast um af hlátri en það næsta finna þeir brjóstið sökkva inn á við og berjast við að kyngja kekkinum í hálsinum. Myndin er, ásamt Eldfjalli Rúnars Rúnarssonar, að mínu mati einhver besta frumraun nýs íslensks leik- stjóra. Hún er þar að auki yfirhöfuð einhver sterkasta íslenska kvik- mynd síðustu ára og algjörlega á pari með því betra sem er að gerast í evrópskri kvikmyndagerð um þessar mundir. Afbragðsleikur Baldur Einarsson og Blær Hinriksson fara með hlutverk Þórs og Kristjáns. Ber er hver að baki Háskólabíó, Laugarásbíó og Smárabíó Hjartasteinn bbbbm Leikstjórn: Guðmundur Arnar Guð- mundsson. Handrit: Guðmundur Arnar Guðmundsson. Stjórn kvikmyndatöku: Sturla Brandt Gøvlen. Klipping: Janus Billeskov Jansen og Anne Østerud. Aðalhlutverk: Baldur Einarsson, Blær Hinriksson, Diljá Valsdóttir, Jónína Þór- dís Karlsdóttir, Rán Ragnarsdóttir, Katla Njálsdóttir og Nína Dögg Filippusdóttir. 129 mín. Ísland og Danmörk 2016. BRYNJA HJÁLMSDÓTTIR KVIKMYNDIR Hallgrímur Stefán Ingólfsson opnar málverkasýninguna Ship ohoj í Mjólk- urbúðinni í Listagilinu á Akureyri í dag kl. 14. Sjórinn er honum hugleik- inn en myndefni hans eru þó fjöl- breytileg. Hallgrímur, sem er kennari við listnámsbraut VMA, hefur teiknað og málað frá barnæsku og á m.a. að baki eins árs grafíknám við Konung- lega danska listaháskólann. Hress Hallgrímur S. Ingólfsson. Ship ohoj í Mjólkurbúðinni

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.