Morgunblaðið - 14.01.2017, Side 48

Morgunblaðið - 14.01.2017, Side 48
48 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 2017 Tvær fyrstu sýningar ársins verða opnaðar í dag kl. 15 í Listasafninu á Akureyri, Ketilhúsi; yfirlitssýning á verkum Nínu Tryggvadóttur sem nefnist Litir, form og fólk og sýning Freyju Reynisdóttur, Sögur. Nína var meðal frjóustu og framsæknustu myndlistarmanna sinnar kynslóðar og þátttakandi í formbyltingunni í íslenskri mynd- list á 5. og 6. ára- tugnum, eins og því er lýst í tilkynn- ingu frá safninu, vann verk sín aðallega með olíu á striga en er einn- ig þekkt fyrir pappírsverk, verk úr steindu gleri, mósaíkverk og barna- bækur og var einn af brautryðj- endum ljóðrænnar abstraktlistar. Sýningin er unnin í samvinnu við Listasafn Íslands og er að hluta byggð á sýningunni Ljóðvarp sem sett var upp í því safni árið 2015. Mikilvæg blanda Sýningarstjóri Lita, forma og fólks er safnstjóri Listasafnsins á Akureyri, Hlynur Hallsson, og segir hann þónokkuð hafa verið um yfir- litssýningar í safninu hin síðustu ár. Til stendur að stækka safnið og breyta því og verða sýningar settar upp í Ketilhúsinu þar til fram- kvæmdum lýkur en stefnt er að því að opna hið betrumbætta safn um mitt ár 2018. „Þá höfum við meiri möguleika á því að vera með fjöl- breyttari sýningar í gangi í einu og yfirlitssýningar lykillistamanna í menningarlegu samhengi. Mér finnst mjög mikilvægt að blanda þessu saman, að það séu klassískar sýningar og líka sýningar með ung- um, núlifandi listamönnum,“ segir Hlynur. Sýningin fyrir norðan er minni en sú sem var í Listasafni Ís- lands, að sögn Hlyns, þar sem Ketil- húsið er minna, en þó eru þar sýnd 45 verk. „Þau eru að langmestu leyti byggð á listaverkaeign Listasafns Íslands, það á rúmlega 80 verk eftir Nínu en sýningin Ljóðvarp var mik- ið úr einkaeign og þá sérstaklega frá Unu Dóru, dóttur Nínu, en flest þau verk eru aftur komin til New York þannig að það var ekki auðvelt að nálgast þau. Þessi sýning er minni en gefur gott yfirlit yfir verk henn- ar, þetta eru allt frá skólaverkum frá því hún var í námi í Kaupmannahöfn fyrst og síðan í París og New York. Við skiptum henni dálítið þannig upp, þarna eru verk frá abstrakttím- anum, slatti af portrettverkum eftir hana og við sýnum margar bækur sem hún gerði sjálf og líka bækur sem hún myndskreytti. Að stofn- inum til eru þetta verk frá Listasafni Íslands en svo fengum við líka hell- ing lánaðan frá Amtsbókasafninu,“ segir Hlynur. Áður ósýnd verk -Eru verk á sýningunni sem hafa ekki verið sýnd opinberlega áður? „Já, þau eru nokkur og líka nokk- ur í einkaeigu. Við auglýstum eftir verkum og það gáfu sig ekki margir fram en sem betur fer nokkrir. Þannig að við fengum nokkur verk, skissu af glerverki m.a. og verk sem hefur aldrei verið sýnt áður,“ svarar Hlynur. Spurður að því hvort eitt- hvað eigi eftir að koma fólki á óvart í sýningunni hvað varðar listsköpun Nínu segist Hlynur viss um það. Upphenging verkanna sé líka óvenjuleg, „Pétursborgar- upphenging“ eins og Hlynur kallar hana þar sem verkum sé staflað upp, svo að segja. „Það verða örugglega einhverjir hissa á því en það er skemmtilegt að prófa það,“ segir hann sposkur. Sameiginlegir þræðir Freyja Reynisdóttir sýnir á efri hæð Ketilhússins. Hún er fædd árið 1989, útskrifaðist úr Myndlistaskól- anum á Akureyri árið 2014 og hefur starfað og sýnt á Íslandi, Danmörku, Spáni, Þýskalandi og í Bandaríkj- unum og vinnur verk sín í ólíka miðla. Þau fjalla mörg hver um þá þráhyggju mannsins að skilgreina allt og alla en einnig um þræðina sem við eigum sameiginlega, s.s. upplifanir, minni og samskipti, skv. tilkynningu. Sýningu Freyju lýkur 26. janúar en sýningunni á verkum Nínu 26. febrúar. helgisnaer@mbl.is Merkur brautryðj- andi abstraktlistar Að störfum Nína Tryggvadóttir á vinnustofu sinni um miðja síðustu öld.  Sýning á verkum Nínu Tryggvadótt- ur opnuð í Listasafninu á Akureyri Hlynur Hallsson Bíó Paradís hóf í gær sýningar á kvikmyndinni Graduation eftir rúmenska leikstjórann Cristian Mungiu. Í henni segir af lækni sem beitir öllum ráðum til þess að koma dóttur sinni í gegnum lokaprófin og fjallar Mungiu um óheilbrigt sam- félag Rúmeníu á nýjan leik, en hann er þekktastur fyrir kvikmynd sína 4 Months, 3 Weeks and 2 Days, að því er fram kemur á vef kvik- myndahússins. Graduation keppti um Palme d’Or, aðalverðlaun kvik- myndahátíðarinnar í Cannes, í fyrra og hlaut Mungiu verðlaun fyrir bestu leikstjórn. Með aðal- hlutverk fara Adrian Titieni, Maria-Victoria Dragus, Rares Andrici. Bíó Paradís stendur svo á morgun kl. 16 fyrir fjöl- skyldusýningu á kvikmyndinni Labirynth til að heiðra minningu Davids Bowie sem fer með eitt af aðalhlutverkum hennar. Frekari upplýsingar má finna á biop- aradis.is. Völundarhús og útskrift í Bíó Paradís David Bowie Myndin gerist á bannárunum í Bandaríkjunum, nánar tiltekið í Boston árið 1926, og fjallar um hóp einstaklinga sem lifir og hrærist í heimi skipulagðrar glæpastarfsemi. Metacritic 51/1010 IMDb 7,2/10 Sambíóin Álfabakka 17.15, 20.00, 22.50 Sambíóin Egilshöll 17.20, 20.00, 22.40 Sambíóin Kringlunni 17.00, 20.00, 22.20, 22.50 Sambíóin Akureyri 20.00, 22.50 Sambíóin Keflavík 20.00 Live By Night Rogue One: A Star Wars Story 12 Uppreisnarmenn fara í leið- angur til að stela teikning- unum af Helstirninu. Metacritic 66/100 IMDb 8,3/10 Laugarásbíó 14.00, 22.25 Sambíóin Álfabakka 14.00, 17.00, 20.00, 22.20, 22.50 Sambíóin Egilshöll 15.00, 17.10, 20.00, 22.45 Sambíóin Kringlunni 14.00, 17.00, 20.00, 22.50 Sambíóin Akureyri 17.00, 20.00, 22.50 Sambíóin Keflavík 17.10 Passengers 12 Aurora og Jim eru farþegar um borð í geimskipi sem er að flytja þau til annarra plánetu þar sem þau munu hefja nýtt líf. Skyndilega vakna þau í svefnhylkjunum, 90 árum á undan áætlun. Metacritic 41/100 IMDb 6,8/10 Smárabíó 17.00, 19.30, 22.30 Háskólabíó 15.30, 18.10, 20.50 Borgarbíó Akureyri 17.50 The Great Wall 16 Hann er einn af mögnuðustu afrekum mannkynsins. Það tók 1.700 ár að byggja þenn- an 8.800 km langa múr. Metacritic 36/100 IMDb 6,0/10 Laugarásbíó 20.00, 22.15 Sambíóin Keflavík 22.45 Smárabíó 19.50, 22.45 Borgarbíó Akureyri 22.20 Assassin’s Creed 16 Callum Lynch grípur inn í sögulega atburði á tímum spænska rannsóknarrétt- arins. Hann er afkomandi hins vígfima Aguilar sem ásamt félögum sínum barð- ist gegn óréttlæti. Metacritic 36/100 IMDb 6,7/10 Sambíóin Keflavík 22.45 Smárabíó 19.50, 22.10 Háskólabíó 21.10 Borgarbíó Akureyri 22.20 Monster Trucks 12 Tripp, miðskólanemi, dreym- ir um að komast í burtu úr bænum sem hann ólst upp í. Hann byggir sér Ofur Jeppa úr ýmsum dóti og gömlum bílum. Metacritic 37/100 IMDb 5,6/10 Sambíóin Álfabakka 13.00, 15.20, 17.40 Sambíóin Egilshöll 15.00, 17.40, 22.10 Sambíóin Kringlunni 15.20 Sambíóin Akureyri 14.00, 17.40 Sambíóin Keflavík 17.30 Fantastic Beasts and Where to Find Them Ævintýri Newt Scamander í leynilegu samfélagi norna og galdramanna í New York. Bönnuð yngri en 9 ára. Metacritic 66/100 IMDb 7,7/10 Sambíóin Álfabakka 20.00 Sambíóin Egilshöll 20.00 Office Christmas Party 12 Metacritic 42/100 IMDb 5,7/10 Sambíóin Kringlunni 20.00 Allied Metacritic 60/100 IMDb 7,2/10 Sambíóin Álfabakka 20.00, 22.50 Patriot’s Day 16 Metacritic 70/100 IMDb 7/10 Myndin segir frá yfirlög- regluþjóni Boston í kring um sprengjutilræðið í Boston Maraþoninu. Laugarásbíó 20.00, 22.40 Sambíóin Keflavík 20.00 Háskólabíó 18.00, 21.00 Borgarbíó Akureyri 20.00 Hjartasteinn Þetta er örlagarík þroska- saga sem fjallar um sterka vináttu tveggja drengja sem eru að taka sín fyrstu skref inn í unglingsárin og upp- götva ástina. Bannað yngri en 9 ára Laugarásbíó 17.00 Smárabíó 13.30, 14.00, 16.30, 16.40, 20.00, 22.10 Háskólabíó 15.00, 18.00, 21.00 Borgarbíó Akureyri 20.00 Why Him? 12 Metacritic 38/100 IMDb 6,5/10 Smárabíó 13.00, 17.30, 20.00, 22.30 Collateral Beauty Metacritic 24/100 IMDb 6,2/10 Sambíóin Álfabakka 20.00, 22.50 Sambíóin Egilshöll 20.00, 22.40 Sambíóin Kringlunni 17.40 Syngdu Kóalabjörninn Buster hefur mikið verið að spreyta sig í skemmtanageiranum. Metacritic 60/100 IMDb 7,3/10 Laugarásbíó 14.00, 17.00, 17.00, 20.00 Sambíóin Álfabakka 12.30, 14.30, 15.00, 17.30 Sambíóin Keflavík 15.00 Smárabíó 13.30, 15.10, 17.35 Háskólabíó 15.10 Borgarbíó Akureyri 13.30, 17.50 Vaiana Metacritic 81/100 IMDb 8,3/10 Sambíóin Álfabakka 12.30, 15.00, 17.30 Sambíóin Egilshöll 15.00, 17.40 Sambíóin Kringlunni 13.00, 14.00 Sambíóin Akureyri 14.00 Sambíóin Keflavík 14.50 Tröll Metacritic 45/100 IMDb 6,8/10 Smárabíó 13.00, 15.30 Sjöundi dvergurinn Sambíóin Álfabakka 12.30 Embrace of The Serpent Metacritic 82/100 IMDb 8,0/10 Bíó Paradís 22.30 Lion Metacritic 68/100 IMDb 7,9/10 Háskólabíó 15.00, 18.10 Bíó Paradís 22.30 Eiðurinn 12 Morgunblaðið bbbbb IMDb 7,7/10 Bíó Paradís 17.45 Captain Fantastic Metacritic 72/100 IMDb 8,1/10 Bíó Paradís 20.00 Graduation Bíó Paradís 17.30, 20.00 Klám í Reykjavík Bíó Paradís 18.00 The Threepenny Opera Bíó Paradís 20.00 Kvikmyndir bíóhúsannambl.is/bio Nánari upplýsingar um sýningar og sali má finna á heimasíðum kvikmyndahúsanna

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.