Víkurfréttir - 29.07.2004, Síða 2
H pt ik
Mikið fjölmenni var við
útfór Margeirs Jóns-
sonar, fyrrverandi út-
gerðarmanns og framkvæmda-
stjóra frá Keflavíkurkirkju ó
mánudag.
Sr. Sigfús B. Ingvason jarðsöng
og Davíð Ólafsson, söng ein-
söng. Meðal útfarargesta var for-
seti íslands, Ólafur Ragnar
Grimsson.
Margeir lést á Landsspítalanum
18. júlí sl. Hann var 88 ára,
fæddur 1916.
Margeir var 1 umsvifamiklum at-
vinnurekstri í Keflavík um langt
árabil og oft kenndur við Röst
sem var naíh fískvinnslu- og út-
gerðarfyrirtækis hans. Margeir
kom víða við í félagsmálum í
bæjarfélaginu og átti m.a. sæti í
bæjarstjóm Keflavíkur.
Hann var sæmdur riddarakrossi
hinnar íslensku fálkaorðu fyrir
störf sín.
Rekan hf. ser um gang-
stéttagerð íVogum
*
síöustu viku voru opnuð
tilboð verktaka fyrir
gangstéttargerð í Vog-
um. Fimm tilboð bárust og
var ákveðið að taka tilboöi
sem Rekan ehf. lagði fram.
Tilboð Rekunnar hljóðaði upp
á 2.160.000 kr., eða 99% af
kostnaðaráætlun sem var
2.183.000 kr. Tilboð þeirra var
það eina sem var undir kostn-
aóaráætlun.
Önnur til boð voru:
Gunnar Helgason
2.687.000 kr. 123% af
kostnaðaráætlun.
Hellusteypan JVJ ehf.
2.445.800 kr. 112% af
kostnaðaráætlun.
Nesprýði ehf.
2.520.000 kr. 115% af
kostnaðaráætlun.
Steinsteypusögun SH.ehf.
2.585.840 kr. 118% af
kostnaðaráætlun.
Framkvæmdir munu hefjast á
næstunni og á að ljúka um
miðjan september.
Granít
Luktir
og vasar
á leiði
Iðavellir 9 • Keflavfk • Sími 421 3598
> Reykjanesbraut:
Millikaflar fyrir lögreglu
mTú styttist í að tvöfóldun
Reykjanesbrautarinnar
-L mverði opnuð almenningi
og cr von til að þær
betrumbætur verði til þess að
auka öryggi vegfarenda.
Margir hafa hins vegar velt vöng-
um yfir því hvernig lögreglan
færi að því að hafa hendur í hári
ökuniðinga sem koma úr gagn-
stæðri átt. Bilið milli akbrauta er
ófært venjulegum lögreglubílum
og þyrftu þeir að keyra um langa
leið til að komast á milli með
skikkanlegum hætti.
Víkurfréttir höfðu samband við
Jónas Snæbjömsson, umdæmis-
stjóra hjá Vegagerðinni sem
sagði að hugsað hafi verið íyrir
slíku.
„Það verða kaflar með 2-3 km
millibili þar sem lögreglan getur
snúið við. Eins er þá hægt að
beina umferð á milli akbrauta ef
þarf að loka annarri vegna slyss
eða einhvers þess háttar. Ekki er
gert ráð fyrir að almenningur
notist við leiðimar, en þær verða
lokaðar nteð keðju eða álíka eins
og hefúr verið gert sums staðar í
Reykjavík.”
Jónas bætti því við að þessir kafl-
ar verði tilbúnir fyrir opnunina
þannig að ljóst er að lögbijótar
munu ekki eiga auðvelt með að
komast undan.
Sólklipping
Stelpurnar hjá Hársnyrti-
stofu Harðar tóku á það
ráð á finimtudaginn að
snyrta hár viðskiptavina sinna
utandyra. Veðurguðirnir hafa
leikið við Suðurnesjamenn síð-
ustu daga og því tilvalið að
panta sér eina „sólklippingu.”
Þær Þóranna og Halla Harðar
voru kampakátar í blíðviðrinu og
sögðust klippa úti allan daginn,
eftir því sem veður leyfði. Stöll-
umar eru ekki alls ókunnar úti-
klippingum en þær gerðu þetta
fyrst fyrir einum þremur ámm.
INNRÖMMUN
SUÐURNESJA
-LEGSTEINASALA RAGNARS
BETRIBÆR
Samtökin Betri Bær, Harpa Sjöfn, Reykjanesbær og nokkur íyrirtæki
í málningargeiranum taka höndum saman um að fegra Reykjanesbæ.
Allir sem vilja nýta sér góða afslætti/þjónustu mæta til Hörpu
Sjafnar Hafnargötu 90 og fá upplýsingar sem viðkomandi aðili
getur tekið með sér til frekari ákvarðanatöku.
Ef aðilar vilja mála sjálfir þá fá þeir tilboð í málningu með góðum
afslætti.
Ef húseigandi vill láta mála fyrir sig þá hringir hann í einhvern af
þeim málurum sem eru á skrá hjá Hörpu Sjöfn. Málarameistararnir
koma og mæla og gefa tilboð með afslætti og verkáætlun.
Hugmyndin er að hvetja alla hlutaðeigandi til að mála allar fasteignir
á Hafnargötunni báðum megin (sjávarmegin líka) á næstu 2 árum.
Allir íbúar Reykjanesbæjar geta jafnframt nýtt sér þetta, fengið
þessa afslætti og þjónustu hvort sem þeir eiga heima á Hafnargötunni
eða annars staðar.
Betri bær
REYKJANESBÆR
2
VÍKURFRÉTTIRÁ NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!