Víkurfréttir - 29.07.2004, Side 4
Ástþór Sindri Baldursson:
Langflottasti kúrekinn í Keflavík
Allir Góðir vinir, Antonú Mist, Ægir Þór
og Auður Erla. Vinirá Vesturbergi.
Rúnar Júlíusson er efnilegur
íboltanum elnsogafinn.
Alþingismenn óska Árna bata
egar þingi var frestað á
fimmtudag færði Mar-
grét Frímannsdóttir
Davíð Oddssyni, forsætisráð-
herra, og Árna R. Árnasyni,
þingmanni Suðurkjördæmis,
óskir um bata fyrir hönd allra
þingmanna.
Eins og margir vita hefur Árni
glímt við erfið veikindi undan-
farin misseri þannig að hann hef-
ur ekki getað sinnt þingstörfum.
Hann hefur setið á Alþingi íýrir
Sjálfstæðisflokkinn frá árinu
1991 fyrst í Reykjaneskjördæmi
og síðar í Suðurkjördæmi.
Stöðvaður með
falsað vegabréf
Albani var stöðvaður
með falsað vegabréf í
Leifsstöð seinni part-
inn á fimmtudag. Samkvæmt
upplýsingum frá sýslu-
mannscmbættinu á Keflavík-
urflugvelli er yfirheyrslum
yfir manninum nýlokið.
Samkvæmt heimiidum
Morgunbiaðsins er viðbúið
að hann verði kærður fyrir
skjalafals en mál hans var
tekið fyrir í héraðsdónti
Reykjaness um klukkan hálf
þrjú í dag.
Mbl.is hefur eftir Eyjólft Krist-
jánssyni, fulltrúa sýslumanns,
að maðurinn, sem er 22 ára,
hafi komið ffá París og hugðist
einungis millilenda hér á leið
sinni til Kanada. Eyjólfur segir
að við hefðbundið eftirlit hafi
vaknað grunsemdir um að ekki
væri í lagi með vegabréfið. Við
nánari skoðun kom í ljós að
skipt hafði verið um mynd í
því.
Fjöldi smáskjálfta á Reykjanesi
Hrina minniháttar jarð-
skjálfta var við Fagra-
dalsfjall á Reykjanesi
allt frá því á miðvikudegi fram
á fimmtudag. Hrinan náði há-
marki milli 14 og 16 á mið-
vikudeginum og gekk þá niður.
Hún tók sig aftur upp um kl.
21 um kvöldið og náði aftur
hámarki á þriðja tímanum að-
faranótt fimmtudags.
Samkvæmt mbl.is mældist
stærsti skjálftinn 2,5 á
Richterskalanum.
Hrinan bendir til þess að spenna
sé i jarðskorpunni og mögulegt
sé að orsökin liggi í kvikuhreyf-
ingu í neðri lögum jarðskorpunn-
ar.
Líkur eru á aðeins stærri skjálfta
en ekkert bendir til þess að kvika
sé á leið til yfirborðs.
Troðfullt TVF í
næstu verslu
> Fuglaskoðarar á Garðskaga:
Reykjanesið spennandi staður fyrir fuglaskoðara
Reykjanesið er vinsæll
staður hjá fuglaskoður-
um. Sérstaldega eru
Garðskagi og Sandgerði vin-
sælir staðir og eru erlendir
fuglaskoðarar tíðir gestir á
þessum stöðum þar sem þeir
liggja með myndavélar og sjón-
auka og fylgjast með fuglalíf-
inu. I vikunni voru nokkrir
fuglaskoðarar á Garðskaga og
fylgdust þeir spenntir með
fuglalífinu.
Björn Arnarson fuglaskoðari á
Höfn í Hornafirði segir að
Reykjanesið sé mjög spennandi
staður íyrir fuglaskoðara. „Það er
mjög mikið fuglalíf í Sandgerði
og við Garðskagavita. I Sand-
gerði eru mjög góðar tjarnir og
góðar sjávarleirur og þar er
fuglalífið sérstaklega fjölbreytt,"
segir Björn en nýlega fannst í
Sandgerði kvöldlóa og er það í
fyrsta sinn sem verður vart við
hana á íslandi. „Við Garðskaga
er einnig mjög gott að skoða sjó-
fugla og við fuglaskoðarar rek-
umst oft á sjaldgæfa fugla á þess-
um stöðum. Fyrir um átta árunt
sá ég i fyrsta sinn á Islandi amer-
iskan spörfugl sem nefhdur hefur
verið grímuskrikja," segir Bjöm
en hann var við fuglaskoðun á
Reykjanesi fyrir um 10 dögum
síðan og heimsótti hann þá Sand-
gerði, Garðskagavita og Reykja-
nesvita. Björn segir fáa fugla-
skoðara á Reykjanesi. „Ja, við
vitum um nokkra sem eru að
skoða fiigla en við auglýsum eftir
ofvirkum fuglaskoðara á Reykja-
nesi,“ sagði Bjöm í samtali við
Víkurfréttir. Björn er einn af að-
standendum vefsíðu fúglaáhuga-
ntanna á slóðinni www.fligiar.is
Fuglaskoðarar höfðu komið sér
uel fyrir við Garðskagavita.
4
VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!