Víkurfréttir - 29.07.2004, Síða 6
Hafnargatan opnuð á ný
Rúntarar og aðrir vegfar-
endur geta tekið gleði
sína á ný því Hafnargat-
an hcfur verið opnuö fyrir um-
ferð á ný.
Umferð var hleypt á kaflann
milli Skólavegar og 10-11 á
föstudaginn, en hann hefur verið
lokaður undanfarið vegna vinnu
Nesprýðismanna.
Hafnargatan mun haldast opin
fram yfir Verslunarmannahelgi.
Þá verður ráðist í lokakaflann
sem á að verða tilbúinn fyrir
Ljósanótt í september.
Bílvelta varð á Iðavöllum rétt eft-
ir miðnætti á aðfaranótt fimmtu-
dags þegar tveir bílar rákust sam-
an. Tveir menn voru í bílnum
sem valt og var ökumaður bif-
reiðarinnar færður á sjúkrahús í
Reykjavík. Einn maður var í hin-
um bilnum en hann ásamt far-
þega bílsins sem valt sakaði ekki.
STEYPUSÖGUN
KJARNABORUN
MÚRBROT
TÆKJALEIGA
Gerum föst verðtilboð
í öll verk, stór sem smá!
JÓN HELGASON
SÍMI 824 6670
Qm5Verk$(
Fagmennska í fyrirrúmi
PALLASMÍÐI, HELLULÖCN,
TRAKTORSGRAFA, MINI-VEL OG
VÖRUBÍLL MEÐ KRABBA
Sigurður Ólafsson
S: 822 3650
í)
Framkvæmdir hafnar við Reykjanesvirkjun
H" síöustu viku var fyrsta
i hraunhellan fjarlægð af
ffl þeim stað þar sem Reykja-
nesvirkjun niun rísa. Þetta var
gcrt við hátíðlcga athöfn út á
Reykjanesi. Það eru verktak-
arnir Eykt sem munu sjá um
framkvæmd verksins en heild-
arkostnaöur virkjanafram-
kvæmdanna er um 10 millj-
arðar króna. Verktími virkjun-
arinnar er mjög knappur en
samkvæmt orkusölusamning-
um verður verksmiðjan gang-
sett 1. mai arið 2006. Heildar-
raforkuframleiðsla virkjunar-
innar verður 100 megawött. Að
sögn forstjóra Hitaveitu Suður-
nesja, Júlíusar Jónssonar,
munu á biiinu 100-200 manns
starfa á svæðinu stóran hluta
framkvæmdatímans. Hann tel-
ur það einnig öruggt að heima-
menn munu koma talsvert að
verkinu, bæði hvað varðar
þjónustu og verkefni tengd
byggingunni.
Árni Sigfússon, bæjarstjóri
Reykjanesbæjar, hefúr uppi hug-
myndir um að byggja útsýnis-
skála hjá Reykjanesvita svo að
fólk geti komið og fylgst með
framkvæmdum á svæðinu.
Einnig sagði hann í samtali við
Víkurfréttir að hann gæti vel
hugsað sér að koma af stað „river
rafting” í þeirri á sem skapast
vegna útrennslis frá verksmiðj-
unni. „Ætli maður verði ekki síð-
an fyrstur niður,” sagði Árni og
hló.
Maður dæmdur í 18 mánaða fang-
elsi fyrir kynferðislega misnotkun
Rúmlega fimmtugur
karlmaður af Suður-
nesjum var í síðustu
viku dæmdur í 18 mánaða
óskilorðsbundið fangelsi í
Héraðsdómi Reykjaness fyrir
kynferðislega misnotkun
gagnvart tveimur ungum
stúikum.
Maðurinn var dæmdur fyrir að
hafa misnotað stúlkur á árununt
1999 til 2003. Önnur stúlkan
var á aldrinum 8 til 10 ára þegar
brotin voru framin og hin var á
aldrinum 13 og 14 ára. Brotin
áttu sér stað við Garðskagavita
og við Rockville á Miðnesheiði.
í dómnum kemur fram að stúlk-
urnar báðar eigi við mikla sál-
fræðilega erfiðleika að stríða
eftir brot mannsins. í dómnum
segir að eldri stúlkan sem mað-
urinn misnotaði hafi hugleitt að
taka eigið líf svo hún þyrfti eng-
um að segja frá brotum manns-
ins og svo að henni þyrfti ekki
að líða illa.
Maðurinn var dæmdur til að
greiða yngri stúlkunni 800 þús-
und krónur í bætur og eldri
stúlkunni 500 þúsund krónur.
Hann var einnig dæmdur til að
greiða helming alls sakarkostn-
aðar.
6
VfKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJU5TU FRÉTTIR DAGLECA!