Víkurfréttir - 29.07.2004, Qupperneq 8
■ Vi
TalsmenniougaFí
Steinþór Jónsso^Páll
taddir eru
'kurBirgisson.
;son, Sturlaugur Ólafsl
Dömur og herrar
Á lconan stórafmæli?
Er ekki uppiagt að gefa
henni Jakobspels?
JAKO(B
ELSAR
Baráttan heldur áfram!
Tvöföldun alla leið fyrir lok árs 2005!
Áhugahópur um málefni Reykjanesbrautar
Kúagerði í nóvember árið 2000
varð svo endanlega til þess að
fólki var ofboðið. Þar létust þijár
manneskjur af Suðurnesjum í
árekstri tveggja bíla og varð öll-
um ljóst að fljótt þyrfti að taka í
taumana ef ekki ætti að fara eins
fyrir fleirum.
Þann 11. desember sama ár kom
mikill liópur fólks saman og lok-
aði umferð um Reykjanesbraut
til að vekja athygli á málstaðnum
og knýja á um tvöfoldun. Upp úr
þvi var áhugahópur uni örugga
Reykjanesbraut stofnaður og hef-
ur hann síðan verið í fararbroddi
í baráttunni.
Fyrsta verk hópsins var að standa
fyrir tendrun 52 kerta við Kúa-
gerði í lok ársins 2000 sem voru
til minningar um þá einstaklinga
sem höfðu látist á brautinni frá
árinu 1963.
Loforð gefin á borgarafundi
Segja má að vatnaskipti hafi orð-
ið með velheppnuðum borgara-
fundi sem var haldinn í Stapa
þann 11. janúar 2001. Þar komu
um 1000 manns saman til fiindar
með þingmönnum kjördæmisins
og samgönguráðherra, Sturlu
Böðvarssyni, auk fleiri góðra
gesta.
Niðurstaða fundarins var sú að
þingmenn lýstu yfir pólitískum
vilja fyrir því að ráðist yrði í
framkvæmdir og þeim yrði lokið
sem fyrst. Ami Mathiesen, fyrsti
þingmaður kjördæmisins, flutti
lokaorð fundarins og sagði þing-
menn hafa fengið það verkefni
að flýta tvöfóldun frá árinu 2006,
eins og gert var ráð fyrir þá, til
2004. Hann bætti því við að þeir
myndu styðja Sturlu til að það
gæti orðið að veruleika.
I lok fundarins afhenti Steinþór
Jónsson, formarður áhugahóps-
ins, Sturlu forláta skóflu að gjöf
frá áhugahópnum, krómaða og
áritaða, sem skyldi notuð til að
taka fyrstu skóflustungu að fram-
kvæmdinni.
Nokkrum dögum síðar afhenti
áhugahópurinn ráðherrum sam-
göngumála og dómsmála bíla-
Sæn til að setja í ráðherrabilana,
en að auki var þeim dreift i nokk-
ur þúsund eintökum á brautinni.
Við það tækifæri aflientu tals-
menn áhugahópsins Sturlu undir-
skriftir 9200 manna og kvenna
seni höfðu sett nafh sitt á áskorun
til flýtingar ffamkvæmda.
Ahugahópurinn hefur allt frá
upphafi unnið með markvissum
hætti að bættri umferðarmenn-
ingu á brautinni og hafa þeir
staðið fyrir margvíslegum um-
bótum.
Tilboð 377 milljónum
undir áætlun
I mai 2002 var haldið upp á að
framkvæmd við fyrsta kafla tvö-
földunar Reykjanesbrautar var
loks boðin út. Samgönguráðherra
var viðstaddur athöfn í Hótel
Texti: Þorgils Jónsson • sport@vf.is
byrjun nóvember og var gengið
að sameiginlegu tilboði Eyktar,
Jarðvéla og Háfells sem hljóðaði
upp á 616 milljónir, eða 377
milljónum undir upprunalegri
kostnaðaráætlun.
Stóri dagurinn var svo 11. janúar
2003, nákvæmlega tveimur árum
eftir borgarafundinn i Stapa.
Samgönguráðherra tók fyrstu
skóflustunguna að breikkun
Reykjanesbrautar og notaði til
þess skófluna góðu sem hann
fékk afhenta á borgarafundinum.
Skóflan, ásamt myndum úr bar-
áttunni, er nú til sýnis í Spari-
sjóðnum í Keflavik.
Síðan þá hafa framkvæmdirnar
gengið afar hratt fyrir sig og eru,
þrátt fyrir að bætt hafi verið við
þennan fyrri áfanga, á undan
áætlun. Opnun tvöfaldrar
Reykjanesbrautar er stór áfangi í
sögu svæðisins og mun vafalaust
Keflavík að því tilefni og tók
fyrstu „skóflustunguna” í
Reykjanesbrautar-tertu með agn-
arsmárri skóflu sem hann fékk
síðar afhenta til eignar.
Tilboð í verkið voru opnuð í
Hvað sögðu þeir þá?
Þegar Steinþór Jónsson, for-
maður Áhugahópsins um ör-
ugga Reykjanesbraut, var
spurður um hvenær áhugahóp-
urinn sjái fyrir sér að tvöföldun
Reykjanesbrautar ljúki alla leið
segist hann vilja sjá yfirlýsing-
ar og loforð þingmanna svæð-
isins standa og vitnar þar til
orða þingmanna frá borgara-
fundinum 11. janúar 2001 sem
hér koma í réttri röð:
Ámi Johnsen: „Raunhæft mat
er árið 2005 sem þýðir flýtingu
um eitt ár.”
Ami Ragnar Amason: „Eg tel
raunhæft að flýta verkinu án
þess að ýta öðmm verkefnum
út. Það er hægt að ljúka þvi fyr-
ir árslok 2004”, sagði Ami R.
stuðla að fækkun slysa í umferð-
inni og bjarga mörgum mannslíf-
um. Nú ríður á að klára það verk
sem hafið er og helja vinnu við
seinni hluta framkvæmdarinnar
sem allra fyrst.
g fékk mikið lófaklapp.
Sigríður Jóhannesdóttir: „Ég
tel raunhæft að miða við vegaá-
ætlun þar sem gert er ráð fyrir
verklokum árið 2006. Ég mun
styðja ef unnt er að flýta tvö-
földun en ég vil ekki gefa fólki
falsvonir.”
Hjálmar Árnason: „Rökin eru
til staðar. Þetta er tæknilega
hægt. Pólitiskur vilji er til stað-
ar og tvöföldun verður flýtt!”
Kristján Pálsson: „Það er tví-
mælalaust hægt að ljúka verk-
inu til og með ykkar samstöðu
þá mun það takast árið 2004.”
Árni Mathiesen: „Tæknilegar
forsendur em fyrir því að verk-
inu verði lokið 2004.”
Nú er bara að sjá hvort yfirlýs-
ingar og loforð þingmanna
standi.
Idag er mikill áfangasigur
unninn í áralangri baráttu
fyrir tvöfaldri Reykjanes-
braut.
Kaflinn sem nær frá mörkum
Hafnaíjarðar og næstum inn að
Vogum er nú tilbúinn og opnar
fyrir umferð almennings síðdeg-
is.
Þessi tímamót eiga sér langan að-
draganda þar sem að Reykjanes-
brautin hefur i áraraðir verið einn
hættulegasti vegkafli landsins.
Þar hefur fjöldi fólks á öllum
aldri látið lífið og í nokkur ár
hefur verið lagt æ harðar að
stjórnvöldum að leggja sitt af
mörkum til að klára tvöföldunina
sem allra fyrst.
Margir ffumkvöðlar undirbjuggu
jarðveginn og lagði Árni R.
Árnason, þingmaður svæðisins
m.a. fram fyrstu þingsályktunar-
tillöguna til að koma hreyfingu á
málin en samtals hafa sex þings-
ályktunartillögur verið lagðar
fram. Þá hafa ljölmargir þing-
menn sem og sveitarstjórnar-
menn af svæðinu hvatt stjómvöld
dyggilega til að taka í taumana
sem fyrst til að koma í veg fyrir
fleiri alvarleg umferðaróhöpp.
Vakning í kjölfar harmleiks
Hræðilegt slys sem átti sér stað i
8
VfKURFRÉTTIRÁ NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!