Víkurfréttir - 29.07.2004, Blaðsíða 10
Útgefandi:
Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319
Afgreiðsla, ritstjórn og auglýsingar:
Grundarvegi 23,
260 Njarðvík,
Sími 4210000 Fax 4210020
Ritstjóriogábm.:
Páll Ketilsson,
sími 4210007, pket@vf.is
Fréttastjóri:
Hilmar Bragi Bárðarson,
sími 4210002, hilmar@vf.is
Blaðamenn:
Jóhannes Kr. Kristjánsson,
simi 4210004, johannes@vf.is
Þorgils Jónsson (iþróttafréttir),
sími 868 7712, sport@vf.is
Sölu-ogmarkaðsstjóri:
Jónas Franz Sigurjónsson,
sími 4210001,jonas@vf.is
Auglýsingadeild:
Jófríður Leifsdóttir,
simi 4210008, jofridur@vf.is
Útlit, umbrot og
prentvistun:
Víkurfréttirehf.
Prentvinnsla:
Prentsmiðjan Oddi hf.
Dagleg stafræn útgáfa:
www.vf.is og vikurfrettir.is
Auglýsingasími
Víkurfrétta er
Göngum nú hægt um
gleðinnar dyr sama
hvort þær eru einfaldar
eða tvöfaldar.
Tvöföld Reykjanesbraut opnar í dag
Fimmtudaginn 29 júlí nk.
kl. 15:00 mun sam-
gönguráðherra opna
nýjan kafla tvöfaldrar Reykja-
nesbrautar á Strandarheiði
fyrir umferð. Athöfnin fer
fram við vesturenda fram-
kvæmdarinnar sem er um 3
km austan afleggjara að Vog-
um.
Þessi fyrsti áfangi breikkunar
Reykjanesbrautar nær frá mörk-
um Hafnarfjarðar og Vatnsleysu-
strandarhrepps og endar um 3
km austan við afleggjarann að
Vogum. Nýja brautin er samtals
12,1 km og er þar meðtalin flét-
tukafli við báða enda.
Framkvæmdin felur í sér gerð
nýrrar tveggja alcreina akbrautar,
tvennra mislægra gatnamóta,
færslu á Vatnsleysustrandavegi,
gerð um 1 km malarvegar í átt að
Höskuldarvöllum auk þess sem
öryggissvæði með núverandi ak-
braut eru lagfærð.
Þessi framkvæmd er fyrsti áfangi
breikkunar Reykjanesbrautar
milli Hafnaríjarðar og Reykja-
nesbæjar og eru mörk verkfram-
kvæmdar annars vegar við mörk
Hafnarfjarðar og Vatnsleysu-
strandarhrepps og hins vegar um
3 km austan Vogavegar. Samtals
er nýja brautin 12,1 km þar með
talinn fléttukafli við báða enda.
Mislægu gatnamótin eru svoköll-
uð tígulgatnamót þar sern hring-
torg sitt hvoru megin Reykjanes-
brautar tengja saman að- og frá-
reinar annars vegar og þverveg
undir brautina hins vegar. Byggð
er ein brú í hvorri akbraut, þ.e.
tvær á hvorum gatnamótum.
Verktakamir Háfell ehf., Jarðvél-
ar ehf. og Eykt ehf. áttu lægsta
tilboð í verkið og hófust handa
þann 11. janúar 2003.1 útboðinu
var gert ráð fyrir 8,6 km kafla, en
vegna hagstæðs tilboðs og hag-
stæðra aðstæðna við efnisvinnslu
var ákveðið að semja við verk-
takana um 3,5 km viðbót.
Aætlaður kostnaður við tvöföld-
unina á þessum kafla er 1.127
milljónir kr. og er þar einnig inni-
falinn kostnaður við hönnun og
umhverfismat alla leið út að
Reykjanesbæ.
Vegfarendur fagna eflaust þess-
um merka áfanga í samgöngu-
málum svæðisins en þó er beðið í
ofvæni eftir yfirlýsingu frá Sturlu
Böðvarssyni, samgöngumálaráð-
herra, varðandi framhaldið. Sam-
kvæmt núverandi áætlunum er
ekki gert ráð fyrir að fram-
kvæmdir heflist við lokakaflann
fyrr en árið 2006, en vonast er til
að þeim verði flýtt.
Steinþór Jónsson, formaður
Ahugahóps um örugga Reykja-
nesbraut, segist ástæðu fyrir alla
Reyknesinga að gleðjast yfir
þessum stóra áfanga. „Við mun-
um gera okkur glaðan dag og
skjóta upp flugeldum, en munum
byija baráttuna fyrir loka áfang-
anum áður en prikin lenda.”
Göngum hægt um gleðinnar dyr!
TVÖFÖLD REYKJANESBRAUT opnar í dag og gæti
kallinn ekki verið sáttari. Tími til kominn ogvonandi
að við fáum að sjá vinnunni framhaldið sem allra
allra fyrst.
KALLINN kíkti á hestamannamótið um helgina og
fannst Mánamönnum takast alveg dæmalaust vel
upp. Knapar og fákar þeirra stóðu sig með stakri
prýði og var ekki verra að sjá einn heimamann næla
sér í gullverðlaun.
FARIÐ NÚ VARLEGA um helgina hvert sem förinni
er heitið. Kallinn fer nú varla á útihátíð þar sem þeir
Kall
3Ki
mn
assan
tímar eru löngu liðnir, en það er aldrei að vita nema
maður kiki út á land með betri helmingnum ef viðrar
vel. Maður verður nú að nota fellihýsið fyrst maður
er búinn að kaupa það.
Enn i iífshættu eftir
slys á Krýsuvíkurvegi
jóðverji um fimmtugt,
sem slasaðist í bílveltu á
Krýsuvíkurvegi á laugar-
dagskvöld, er enn talinn í lífs-
hættu og er haldið sofandi í
öndunarvél.
Maðurinn ók bíl af gerðinni
Mitsubishi L300 sem er fram-
byggður og fjórhjóladrifinn.
Fjórir aðrir menn voru I bílnum
og voru þeir einnig þýskir. Við
veltuna kastaðist ökumaðurinn út
úr bílnum. Bíllinn valt nokkrar
veltur og hafnaði að hluta til ofan
á manninum. Hann er grunaður
um ölvun.
Mennirnir starfa sem iðnaðar-
menn hér á landi. Þeir voru í
grillveislu við Kleifarvatn fýrr
um kvöldið. Talið er að ökumað-
ur hafi misst stjóm á bílnum efst
I brekkunni um Vatnsskarð. Bíll-
inn valt nokkrar veltur á veginum
sem er maiarvegur.
Málið er enn I rannsókn lögreglu
1' M£‘. 1 •T- r1 £L)Í
f r é 11 i r
Á176 km
hraða
Um eittleytið á aðfararnótt
laugardags stöðvaði lögregl-
an karlmann á þrítugsaldri á
176 km hraða á Reykjanes-
braut. Maðurinn var að taka
ffam úr öðrum bíl þegar hann
mældist á þessum hraða.
Hann má eiga von á hárri
sekt og kæru í kjölfar akst-
urslagsins.
Torkennilegir
kassará
Hringbraut
Torkennilegir kassar sáust á
Hringbrautinni á föstudags-
kvöld. Þegar ljósmyndari Vík-
urfrétta varð kassana var þá
tóku þeir að hreyfast. í ljós
kom að tveir ungir drengir
léku sér að þvi að bregða öku-
mönnum og gangandi vegfar-
endum. Ljósmyndara Víkur-
frétta var heldur brugðið en
náði þó að halda sér á vegin-
um. Þó svo að svona leikur sé
bara til gamans gerður þá er
aldrei að vita nema að ein-
hveijum bregði um of.
10
VlKURFRÉTTIRÁ NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DACLEGA!