Víkurfréttir - 29.07.2004, Blaðsíða 13
Ljósmynd: Oddgeir Karlsson
Umhverfisverðlaun
Reykjanesbæjar afhent
Umhverfis- og skipulags-
svið Reykjanesbæjar
afhenti í síðustu viku
umhverfisverólaun Reykjanes-
bæjar fyrir árið 2004.
Viðar Már Aðalsteinsson, for-
stöðumaður umhverfis- og
skipuiagssviðs Reykjanesbæjar,
sagði að valið hafi verið erfitt.
„Það er alltaf þannig, en við höf-
um verið með sérfræðinga til að
hjálpa okkur að velja undanfarin
ár. Okkur berast margar ábend-
ingar frá fólkinu í bænum og
hópurinn sem við veljum úr
stækkar ár frá ári.”
Viðar segir að auki að umhverf-
is- og frágangsmál hafi tekið
miklum stakkaskiptum á síðustu
árum þar sem fólk er orðið dug-
iegra við að snyrta í kringum sig.
En eru verðlaun sem þessi mikil-
væg? „Alveg tvímælalaust. Þetta
hvetur fólk til að hugsa um garð-
ana og húsin sin og svo ýta þau
líka undir að bæjarbúar hugsi al-
mennt um umhverfismál.”
Afhendingin fór fram i bátasafhi
Gríms í Duushúsum og voru við-
urkenningar veittar fyrir snyrtileg
hús og garða.
Viðurkenningar hlutu:
Sóltún 11
Viðurkenning fyrir vel við haldið
hús og garð til margra ára.
Eigendur: Margrét Gunnlaugs-
dóttir og Virgar Wardum.
Oðinsvellir 6
Viðurkenning fyrir snyrtilegan
og fallegan frágang á húsi og lóð.
Eigendur: Bryndís Sævarsdóttir
og Einar Þórarinn Magnússon
Grænás III
Viðurkenning fyrir snyrtilegt hús
og fallega og vel hirta lóð.
FINNSSON l
I %
1SUMAR
Eggjalausar og fituskertar
sósur, frábærar með
grillmatnum
Vogaídýfur,
ómissandi í parfíið!
VOGABÆR
VfKURFRÉTTIR I 31. TÖLUBLAÐ2004 I FIMMTUDAGURINN 29.JÚLi2004 I 13
Ljósmynd: Oddgeir Karlsson