Víkurfréttir - 29.07.2004, Blaðsíða 16
. .'' > A-'V.
UNCLINGAMEISTARAMOT ISLANpS IGOLFI ,>
stendurnúyfiráWólmsvelli íLeidirkeppni hpfstj
á þriðjudagog lýkur í kvöld. ÞátHakendúr éru
nær tvöhundruð á aldrinum 12-18 ára og leika
54. holu höggleik. í þessum hópi eru efnilegustu
kylfingar landsins og það er því vel þess virði að
skella sér í Leiruna í dag og sjá þá bestu berjast
við hvíta boltann á Hólmsvelli.
laukurörn
Rautt jafntefli
Fylkir og Grindavík skildu jöfii
í Árbænum 1-1 á mánudaginn
var i Landsbankadeild karla.
Kristinn Jakobsson, dómari
leiksins, hafði í nógu að snúast
og veifaði rauða spjaldinu í tví-
gang.
Grindvíkingar voru mun
sterkari aðilinn i fyrri hálfleik
og eftir góða sendingu frá Paul
McShane á 6. minútu skoraði
Grétar Hjartarson fyrir
Grindavík. Skömmu seinna
bauðst Grétari að auka muninn
í 0-2 en þá hafnaði skot hans i
stönginni. Fylkismenn tóku
lítið eitt við sér en máttu sín
lítils gegn stifri pressu
Grindvíkinga.
Kúvending varð á leiknum eftir
hlé þar sem Fylkismenn réðu
lögum og lofum og náðu að
jafna metin, markið skoraði
Björgólfur Takefusa eftir skot
Ólafs Snorrasonar sem Albert í
markinu náði ekki að halda.
Þórhallur Dan Jóhannsson fékk
svo að líta rauða spjaldið fyrir
að hrinda Eysteini Haukssyni í
jörðina, glórulaust brot hjá svo
reyndum leikmanni og vænleg
staða Fylkis í leiknum fyrir bý.
Einum færri linnti Fylkir ekki
látum en sigu þó hægt og róle-
ga aftar á völlinn og Grindavík
komst á ný inn í leikinn. Alfreð
Jóhannsson, sem kom inn á
fyrir Óskar Hauksson i liði
Gríndavíkur, fékk að líta tvö
gul spjöld með 5 mínútna mil-
libili og gerði því stuttan stans
á vellinum í þetta skipti. Aftur
á ný jafnt í Iiðum og skiptust
bæði lið á þvi að sækja það
sem eftir lifði leiks en rautt
jafhtefli var það. Grindvíkingar
geta, eins og öll lið, vel við
unað að sækja stig í Árbæinn.
„Deildin er mjög jöfn og
leikirnir líka sem gerir hver
einustu mistök dýrkeyptari
fyrir vikið,” segir Eysteinn
Hauksson, miðvallarleikmaður
Grindavíkur í samtali við
Víkurfréttir. „Næstu leikir
verða mjög erfiðir hjá öllum
liðum og mikilvægur tími er
framundan.”
• Jafntefli á Njarðvíkurvelli
Njarðvík og Stjaman skildu jöfn
síðasta fimmtudag 2-2 á
Njarðvíkurvelli í 1. deild karla.
Eyþór Guðnason gerði bæði
mörk Njarðvíkinga. Þá tapaði
Njarðvík fyrir Fjölni á þriðjudag
4-2 þar sem Snorri Már Jónsson
og Guðni Erlendsson skoruðu
mörkin. Njarðvík er nú í 6. sæti
fyrstu deildar karla.
• Sigurganga Reynis heldur
áfram
I síðustu viku mættust toppliðin
Reynir og IH í 3. deild karla í
knattspyrnu. Reynismenn
sigruðu í leiknum 2-3 og voru
það Hafsteinn I. Rúnarsson með
tvö mörk og Georg Birgisson eitt
sem innsigluðu rafmagnaðan
sigur Reynis.
• Fjórði tapleikurinn í röð
Víðismenn töpuðu á heimavelli
síðastliðinn fimmtudag 0-4 gegn
toppliði Leiknis í 2. deild karla í
knattspyrnu. Eftir þennan íjórða
tapleik í röð voru Garðbúar í
áttunda sæti 2. deildar með 11
stig.
• Njarðvík á hraðmóti
Njarðvíkingar tóku þátt í
hraðmóti IR í körfubolta í síðus-
tu viku og töpuðu þar gegn Kr og
Fjölni en sigruðu IR. Einar Ámi
Jóhannsson, þjálfari
Njarðvíkinga, sagði mótið vera
finan vettvang fyrir ungu
strákana til að sýna sig og bæta í
reynslubankann. Egill Jónasson
stóð sig vel í mótinu og varði
óhemju mikið af skotum and-
stæðinganna.
Sigurganga Keflavíkur heldur
áfram
sérstaklega milli vamar og miðju,
ekki svipur hjá sjón. Þeir voru
engu að síður sterkari aðilinn í
leiknum lengst af i fyrri hálfleik.
FH átti hins vegar öll hættulegu
færin i leiknum og hefðu hægle-
ga getað bætt mörkum við.
Heimamenn voru alls ekki á
skotskónum og náðu ekki að
ógna FH verulega þar sem
Hafnfirðingar pressuðu vel og
lokuðu á spil Keflvíkinga.
„Markið í byrjun ruglaði öllu
sem vió höfðum lagt upp með
fyrir leikinn”, sagði Milan
Jankovic, þjálfari Keflavíkur i
leikslok. „Það er ekki tilviljun að
þeir em efstir. Þeir eru með rnjög
gott lið og stoppuðu spilið hjá
okkur. Baráttan hjá okkur var þó
til staðar og það er gott.”
LEIÐRÉTTING
í síðasta tölublaði Víkurfrétta
urðu þau leiðu mistök að rangt
var farið með nöfh sigurvegara á
Meistaramóti Golfklúbbs
Vatnsleysustrandar.
Réttur sigurvegari í unglin-
gaflokki var Sverrir Birgisson.
Þá er Gunnar Hallgrímsson
meistari öldunga faðir Ragn-
heiðar Gunnarsdóttur sem er hins
vegar móðir Ragnars Davíðs
Riordan. Viðkomandi aðilar eru
beðnir innilega afsökunar á
rangfærslunum.
Örn Ævar í þriðja sæti
á íslandsmótinu í golfi
••
Orn Ævar Hjartarson,
kylfingur úr GS, lenti í
þriðja sæti á
íslandsmótinu í höggleik sem
fór fram á Garðavelli á
Akranesi um helgina.
Öm var í öðm sæti eftir tvo hrin-
gi en endaði í því þriðja á 291
höggi eða þremur yfir pari.
Birgir Leifur Hafsteinsson varði
titil sinn frá því í fyrra og var
fimm höggum undir pari, en
Björgvin Sigurgeirsson var í öðm
sæti á pari.
Öm Ævar lék vel en hafði ekki
heppnina með sér í púttunum á
siðustu hringjunum. Árangurinn
er þrátt fyrir það rnjög góður þar
sem Birgir og Björgvin em báðir
atvinnumenn í íþróttinni.
Þess má einnig geta að Rúnar Óli
Einarsson, hinn bráðefnilegi
kylfingur úr GS, náði afar
góðum árangri á mótinu og haf-
naði í 7. sæti.
24 TÍMA FRÉTTAVAKT
899 2225
FH sigraði Keflavík í
Landsbankadeild karla
á sunnudagskvöld, 0-1.
Þcir halda því toppsætinu, en
heimamenn í Keflavík féllu
niður i það sjötta.
Allan Borgvardt, Daninn knái í
liði Hafnfirðinga, skoraði eina
mark leiksins úr aukaspyrnu af
25m færi á 3. mínútu leiksins.
FH fengu aukaspyrnu út frá
hægra vítateigshorni og tók
Borgvardt fasta spyrnu. Ólafur
Gottskálksson í marki
Keflvíkinga hafði hönd á
boltanum en hann fór í stöngina
og þaðan í netið, 0-1.
Eftir markið riðlaðist leikur
Keflavíkur. Þeir söknuðu greini-
lega Stefáns Gíslasonar sem var í
leikbanni og var spil þeirra,
16
VfKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!