Víkurfréttir - 29.07.2004, Blaðsíða 17
Sportpóstur: sport@vf.is
mánudaga-föstudaga
9-18:30
>o
Fiskbúðin
Hringbraut 92 • Sími 421 4747
Lið Keflavíkur/Njarðvfkur í 2. flokki vann 1-0 sigur a
Stjörnunni í Keflavík á mánudaginn var. Heimamenn voru
sterkari aðilinn í feiknum og það var Garðar Sigurðsson
sem skoraði eina mark leiksins eftir góða fyrirgjöf af vin-
stri kantinum. Eftir leikinn er liðið í 2. sæti B-riðils með
18 stig að loknum 9 leikjum.
Keflavíkurstúlkur með fullt hús stiga
Keflavíkurstúlkur
sigruðu Hauka 5-2 í 1.
deild kvenna á
þriðjudagskvöld í Keflavík. Lið
Keflavíkur er nú efst í sínum
riðli með fullt hús stiga, eða 27
stig eftir 9 leiki. Stelpurnar
hafa skorað 91 mark í
leikjunum níu en aðeins fengið
á sig fjögur. Ólöf Helga
Pálsdóttir var á skotskónum og
gerði þrjú mörk en Guðný
Þórðardóttir gerði hin tvö.
Nokkuð jafnræði var með
liðunum framan af leiknum en
þegar skammt var til leikhlés tók
Ólöf til sinna ráða og gerði tvö
mörk. Keflavík skoraði svo þrið-
ja markið á upphafsmínútum
seinni hálfleiks, Haukastúlkur
voru ekki af baki dottnar og
svöruðu með stuttu millibili með
tveimur mörkum. Lengra komust
þær ekki og Keflavík bætti við
tveimur mörkum og innsiglaði 5-
2 sigur sinn og þann níunda í röð
i deildinni.
Harðfiskur í
útlleguna!
Olöf Helga Pálsdóttir í kröppum dansi
irlfeo5! D H®teg[T®§§D
Frábærárangur
á REY-CUP
Keflavíkurstúlkur náðu
frábærum árangri á REY-CUP,
alþjóðlegri knattspyrnuhátíð í
Reykjavík, sem haldin var síðus-
tu helgi.
4. flokkur sigraði í keppni B-liða
og eru REYCUP meistarar 2004
og unnu auk þess hraðmót sem
var haldið í tengslum við mótið
sjálft. Þá lenti A-liðið í þriðja
sæti eftir öruggan sigur á Þrótti,
4-0.
Keflavíkurstrákar í 3. flokki lentu
í 4. sæti á REY-CUP og 4.
flokkur karla frá Njarðvik og
Grindavík stóðu sig einnig vel.
20% aukaafsláttur af allri útsöluuöru
Hafnargötu 15 • Sími 421 4440
Okkar gómsætu
GRILLPINNAR
alltaf á fimmtud. og föstudögum
Suðurnesjamenn stóðu sig með miklum ágætum á Motocross móti
sem var haldið í Álfsnesi á Kjalarnesi 10. júlí síðastliðinn.
Cylfi Freyr Guðmundsson sigraði í B flokki og er sem stendur í öðru sæti
á íslandsmótinu. Cylfi hefur verið í fremstu röð í sumar og er með þrjú
gull úr mótunum sem búin eru. Gylfi sagði í samtali við Víkurfréttir að
hann hafi stundað Motocross í þrjú ár og það sé skemmtilegasta sport
sem hann hafi komist í. „Þetta er bara: Einu sinni prófað þú getur ekki
hætt,“ sagði Cylfi að lokum. „Þetta er tímafrekt og dýrt sport sem
krefst þess að þú sért í góðu líkamlegu formi, en þetta er rosalega gam-
an!“ Aðrir keppendur af Suðurnesjum hafa líka verið að gera það gott
þar sem systkinin Aron Ómarsson og Sara Ómarsdóttir eru einnig í
fremstu röð í sínum flokkum. Aron hefur sigrað tvisvar og Sara hefur
verið á verðlaunapalli íflestum keppnum.
VÍKURFRÉTTIR I 31. TÖLUBUÐ 2004 I FIMMTUDACURINN 29.JÚLl2004 I 17