Víkurfréttir - 29.07.2004, Page 20
Helgi Einar Harðarson,
hjartaþegi úr Grinda-
vík, kom heim í gær
eftir stóraðgerð í Svíþjóð þar
sem skipt var um hjarta og
nýra í honum. Aðgerðin var
gerð þann 14. júní.
„Það er gott að vera kominn
heim, núna tekur við að hitta fjöl-
skyldu og vini,“ sagði Helgi í
samtali við Víkurfréttir skömmu
eftir að hann steig út úr vélinni.
Bati Helga hefur verið afar góður
þar sem hann hefur komið hreinn
út úr öllum sýnatökum sem
ákvarða hvort um höfnun sé að
ræða.
„Það er afar sterkt að fyrstu sex
sýnatökurnar séu hreinar. Um
90% allra hjartaþega fær höfhun
á fyrsta árinu, en hún er metin frá
skalanum 0 til 5. Ef mælist 1 eða
minna er ekkert gert en svo eru
gefin lyf við meiri höfnun.”
Læknar hér heima munu fýlgjast
með líðan Helga eftir heimkom-
una og gera prufur í sambandi
við höfnun.
Helgi bætti við að læknamir hans
væru hæstánægðir með árangur-
inn. „Nýmalæknirinn sagði fyrir
nokkrum vikum að hann hefði
ekkert við mig að tala því að allt
væri í góðu standi.”
Helgi segist mun hressari en áður
en hann fór í aðgerðina. „Eg get
gengið að vild alveg þangað til
fæturnir segja stopp. Vöðvarnir
eru ekki enn nógu sterkir en ég er
mun betri en áður. “
Helgi segir dvölina úti í Svíþjóð
hafa verið góða. „Þetta er búið að
vera ljómandi. Ég var á spítalan-
um í 3-4 vikur eftir aðgerðina og
hef síðan búið í íbúð sem við
erum með á leigu. Ég er úti að
rölta allan daginn og kem svo
heim á kvöldin þannig að mér
leiðist ekkert.”
> Sumarspjall:
Tölvur og teiknimyndagerð
Davíð Ingi Jóhannsson
hefur verið að vinna í
allt sumar hjá
Samhæfni tæknilausnum við
Hringbraut í Keflavík.
Víkurfréttir hittu á kappann
fyrir skemmstu og áttu stutt
sumarspjall við innipúkann
sem eins og svo margir þurfa
að kúidrast innandyra í góða
veðrinu yfir sumartímann.
Hvað hefur þú verið að gera í
sumar?
„Ég er búinn að vera að vinna í
allt sumar en fer reyndar til
Flórida núna í águst í langþráð fri
með fjölskyldunni. Svo var ég að
fjárfesta í íbúð á Mávabrautinni í
Keflavík og mitt fyrsta verk eftir
að hún verður komin í stand er
að kaupa mér grill.”
Hvert er eftirminnilegasta sumar-
ið sem þú hefur átt?
„Ætli það hafi ekki verið sumar-
ið 1994 eða 1995 þegar ég tók
þátt, ásamt nokkrum vinum
mínum, í fyrsta „Street-ball”
mótinu sem haldið var í
Laugardalnum. Það var rosalega
gott veður og við komumst í
úrslitaleikinn þar sem valtað var
yfir okkur. Engu að siður hrika-
lega gaman.”
Hvernig gleður þú maka þinn á
sumrin?
„Með því að taka þátt í barátt-
unni við að halda heimilinu til
liaga og smella léttum og góðum
kossi á kinn á hárréttum augna-
blikum.”
Hvernig eyðir þú tíma þínum
utan vinnu?
„Ég reyni að eyða eins miklum
tíma og ég get með fjölskyldu
minni ásamt því að stúdera mitt
fag sem er þrívíddar
teiknimyndagerð. Einnig hef ég
mikinn áhuga á líkamsrækt, tón-
list og körfubolta. Ég smitaðist af
golfveirunni ekki fyrir löngu en
spilamennskan er ekki upp á
marga fiska,” segir Davíð sem
getur vart beðið effir þvi að stiga
á teig á Flórída.
20
VÍKURFRÉTTIRÁ NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLECA!