Víkurfréttir - 29.07.2004, Page 22
Fríður hópur meistaraknapa
með sigurlaunin
Glæsilegt íslandsmót í
hestaíþróttum á Mánagrund
r
EYKT
TRESMIÐIR OSKAST
vegna mikilla verkefna á Suðurnesjum
og höfuðborgarsvæðinu. Nánari upplýsingar
á skrifstofu Eyktar í síma 595 4400.
sími 595 4400 ■ eykt@eykt.is ■ www.eykt.is
Islandsmót fulloröinna í
hestaíþróttum var haldið á
Mánagrund í Reykjanes-
bæ um síðustu helgi.
Mótið hófst snemma á fostudag
og lauk síðdegis á sunnudag.
Þrátt fyrir slæma veðurspá þá lék
veðrið við mótsgesti með þeirri
undantekningu að það hellirigndi
á fostudagskvöld.
Mikil þátttaka var í mótinu og
voru skráningar 340 og keppend-
ur yfir 200 manns.
Mótið tókst vel mikil stemmning
var á meðal mótsgesta og má
segja að mótið hafi heppnast vel
í alla staði.Bæði var hestakostur
góður og aðstaða góð og eins
tókst framkvæmd mótsins mjög
vel.
Mikil kátína var á meðal heima-
manna í Mána þegar Jón B. 01-
sen varð íslandsmeistari i tölti í
opnum flokki og myndaðist
geysileg stemmning þegar kapp-
inn reið sigurhringinn.
Undirbúningur Mánamanna fyr-
ir mótið hefur staðið i allan vetur
og gekk allt mjög vel fyrir sig.
Mótsgestir voru sérstaklega
hrifnir af bílastæðunum en þau
eru á tveimur hæðum þannig að
fjöldi manns getur horfl á keppn-
ina úr bíl sínum og er það hent-
ugt þegar veður eru válynd.
Á sunnudeginum var sjónvarpað
beint í tvo klukkutíma þegar hel-
stu úrslitin fóru fram. Þótti sýnt
að mikill áhugi var fyrir þessu
sjónvarpsefni og er það mikil og
góð kynning fyrir íþróttina.
A næsta ári verður íslandsmót
barna, unglinga og ungmenna
haldið á Mánagrund og þá fagn-
ar Máni jafhframt 40 ára affnæli.
Forsvarsmenn hestamannafélags-
ins lofa þvi að þá verði mikið urn
dýrðir og er stefnt að því að
halda sérstakan Mánadag í
Reykjanesbæ þar sem bæjarbú-
um verður boðið í heimsókn á
Mánagrund.
Að lokum vilja forráðamenn
Mána koma á framfæri þakklæti
til Reykjanesbæjar, Grindavíkur-
bæjar og allra fyrirtækja og
stofnana sem gerðu Mána kleift
að halda íslandsmótið með þeim
glæsibrag sem varð.
Sameinaðu allar tryggingar
á einfaldan hátt í
TM-Öryggi
TRYGGINGAMIÐSTÖÐIN www.tmhf.is
22
VÍKURFRÉTTIRÁ NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLECA!