Víkurfréttir - 29.07.2004, Page 23
í skýjunum eftir fslandsmótið
Hestamannafélagið
Máni stóð fyrir glæsi-
legu íslandsmóti í
hestamannaíþróttum á Mána-
grund um síðustu helgi. Mótið
þótti fara sérlega vel fram og er
Margeir Þorgeirsson, formaður
félagsins í skýjunum með út-
komuna.
Hvernig var á mótinu?
í einu orði sagt tókst þetta stór-
kostlega. Þetta var virkilega gott
mót. Allir voru ánægðir
með aðstöðuna og hvemig
við stóðum að málunum.
Þar ber að þakka þeim sem
studdu okkur í þessu, fyrir-
tækjum og stofnunum og
svo náttúrulega öllum þeim
félögum sem lögðu vinnu
sína í þetta verkefni.
Þannig varð þetta eins
glæsilegt og við höfðum
best vonast til.
Var þetta ekki mikil
vinna?
Við vomm að vinna í þessu síðan
í vetur. Við gáfum okkur lengri
tíma í þetta þannig að við gátum
dreift þessu svolítið. En það er nú
alltaf svoleiðis með þessi stórmót
að maður þarf að taka vel á því
síðustu vikurnar. Það var samt
virkilega garnan að standa í
þessu og allir vom mjög jákvæð-
ir sem komu að.
Er mótið lýsandi fyrir itppgang-
inn sem hefur verið í liesta-
mennskunni á svœðinu undan-
farið?
Já, mér fannst þetta vera í takt
við það. Þetta heldur áfram þessi
uppgangur í hestamannafélaginu
eins og menn sáu á íslandsmóti
barna og unglinga og svo áfram
núna. Það var gaman að við
skildum eignast einn íslands-
meistara i tölti í opnum flokki.
Þannig að það lýsir andanum í
þessu. Þetta eru metnaðarfullir
unglingar og fullorðnir sem eru
að taka þátt í þessu.
Hvað þýóirþað fyrir hestaíþrótt-
irnar hér á svceðinu að lialda
þetta mót?
Það þýðir það að við byggjum
upp okkar aðstöðu eins og best
verður á kosið í sambandi við
keppnir og annað í kringum það
og fáum önnur félög til að virða
okkar starf. Þeir vita það þá að ef
Mánamenn taka eitthvað að sér
þá eru þeir ekki að klúðra því.
Við erum að stimpla okkur inn
og erum mjög kátir með það.
Eru fleiri mót á döftnni hjáykk-
ur?
Það er ekkert ákveðið fyrr en
þessi heföbundnu mót á næsta ári
og svo verður íslandsmótió í
barna- og unglingaflokki hjá
okkur á næsta ári. Síðan höf-
um við hug á því að óska
eftir því að fá að vera með
heimsmeistaraúrtökuna
héma. Við ætlum okkur að
reyna að nýta þessa aðstöðu
sem við emm búnir að byg-
gja upp.
Vorum við að sjá eitthvaó
nýtt á þessu móti livaó
varðar afrek eða aðstöðu til
keppnishalds?
Hestakosturinn var einstak-
lega góður þannig að menn
vom mjög ánægðir með hann og
menn voru líka ánægðir með
vellina hjá okkur, bæði skeið-
brautina og hringvöllinn. Svo var
það rúsínan í pylsuendanum að
fólk skyldi geta horft á keppnina
á bílastæðinu á tveimur hæðunt í
samræmi við íslenskar aðstæður.
Það vakti mikla lukku.
Margeir ásamt Skúla Skúlasyni frá Samkaupum, einum
stærsta styrktaraðila íslandsmótsins.
FJÓLBRAUTASKÓLI SUÐURNESjA
VIRDING - SAMVINNA - ÁRANGJR
Símasambandslaust verður við
Fjölbrautaskóla Suðurnesja
fimmtudag og föstudag vegna
tenginga við nýbyggingu.
Vinsamlegast hafið samband við
skrifstofu eftir 4. ágúst.
Fjölbrautaskóli Suöurnesja
Skrifstofur okkar verða lokaðar vegna sumarleyfa
frá og með30.júlí.
Opnum aftur mánudaginn 9. ágúst.
Góða verslunarmannahelgi - komið heil heim.
/
Fasteignasala Q.O.
Suðurgata 29 • 230 Keflavík
Sími 421 4142 ♦ Fax 421 4x72
EIGNAMIÐLUN SUÐURNESJA
Sigurður Ragnarsson, fasteignasali-Böóvar Jónsson, sölumaður
Jón Gunnarsson, löggiltur fasteigna- og skipasali
Sölumenn: Þröstur Ástþórsson og Þórunn Einarsdóttir
STUÐLABERG
FASTEIGNASALA
GUÐLAUGUR H. GUÐLAUGSSON LÖGGILTUR FASTEIGNASALI
HALLDÓR MAGNÚSSON SÖLUMAÐUR
VlKURFRÉTTIR I 31.TÖLUBLAÐ2004 I FIMMTUDAGURINN 29.JÚLf2004 I 23