Víkurfréttir - 28.10.2004, Blaðsíða 2
stuttar
f r é t t i r
Komu Hollendingum
til hjálpar
■ Björgunarsveitin Þorbjöm
frá Grindavík kom hópi hol-
lenskra ferðamanna til hjálpar
í síðustu viku.
Höfðu þeir fest
jeppabifreið sína á
vegsióða við
Krísuvíkurbjarg.
Greiðlega gekk að
losa bifi-eiðina, en hjólbarðar
hennar höföu farið niður i
gegnum ísilagðan drullupytt.
Innbrotið í FS
upplýst
■ Lögreglan í Keflavík
handtók nokkra aðila í síðustu
viku í tengslum við innbrot og
Sþjófhaði sem hafa
átt sér stað í
Reykjanesbæ á
síðustu dögum.
Við húsleitir á
heimilum aóil-
anna, sem eru á aldrinum 16
ára til 41 árs, fannst nokkurt
magn ætlaðs þýfis. Þar máti
sjá nokkrar fartölvur sem
stolið var í innbroti í Fjöl-
brautaskóla Suðumesja um
s.l. helgi og skotfæri sem
stolið var í innbroti í geymslu
Ijölbýlishúss í Keflavík fýrir
stuttu. Rannsókn þessara mála
er langt komin.
Veikur sjómaður
sóttur ítogara
■ BjörgunarskipiðOddurV
Gíslason í Grindavík var á
mánudag kallað út vegna
veiks sjómanns um
borð í togaranum
Oddgeir EA-600.
Var togarinn þá
staddur í svokall-
aðri röst við
Reykjanestá.
Maðurinn var ekki lífshættu-
lega veikur og var hann fluttur
til skoðunar á heilsugæslu-
stöðinni í Grindavík. Björgun-
arskipið Oddur V Gislason
var kominn til hafhar um
klukkan 15 og gekk leiðang-
urinn vel.
Rauður sími
&9Ö 2222
beint samband við
blaðamann og
Ijósmyndana allan
sólarhringinn!
> Spjöll unnin á yfir 20 leiðum í gamla kirkjugarðinum við Aðalgötu í Keflavík:
NÍDINGSVERK í KIRKJUGARÐI
Gmnur leikur á því að tveir eða
fleiri drengir um 12 ára gamlir
beri ábyrgð á skemmdarverkun-
um sem voru unnin í Keflavíkur-
kirkjugarði í síðustu viku. Hrika-
leg aðkorna blasti við þeim sem
lögðu leið sína um kirkjugarðinn
sl. fimmtudag þar sem spjöll
höfðu verið unnin um allan
garð.Um 20 legsteinunr hafði
verið velt við, krossar af leiðum
rifiiir upp og skildir með nöfhum
og grafskrift þeirra sem hvíla þar
brotnir í mél. Þá lá ýmislegt smá-
legt eins og blómaker, lugtir og
annað skraut eins og hráviði urn
allan garð.
Lögreglan hvetur foreldra til að
ræða við böm sín um ferðir þeir-
ra mánudags- til nriðvikudags-
kvöld. Þá em þeir sem hafa ein-
hveija vitneskju um málið beðnir
að hafa sanrband við lögregluna í
Keflavík í síma 420-2400.
> Hraðfiskibáturinn Ósk KE varð eldi að bráð norður af Garðskaga:
Skipverjar brugðust rétt við eldinum
Eldur kom upp í línubátnum Ósk
KE-5 uni fjögurleytið á mánudag
þar sem hann var staddur um 15
sjómílur norður af Garðskaga. Þrír menn
eru í áhöfn bátsins og þá sakaði ekki. Bát-
urinn sendi út neyðarkall og var Happadís
KE-83 þá stödd nálægt og tók Óskina í tog.
Að sögn Gunnars Magnússonar skipverja á
Ósk KE urðu þeir varir við mikinn reyk í stýr-
ishúsi bátsins en sáu ekki eld. „Við lokuðum
hurðinni og höfum sjálfsagt kæft eldinn,”
sagði Gunnar í samtali við Víkurfréttir.
Gunnar segir að þeir hafi gert björgunarbát-
inn tilbúinn til notkunar. „Við komumst ekki í
fjarskiptatæki en i björgunarbátnum var neyð-
arsendir sem við gátum notað,” segir Gunnar
en báturinn lagðist að bryggju um klukkan tiu
sama kvöld.
Slökkvilið Brunavarna Suðumesja var með
mikinn viðbúnað við Keflavíkurhöfn þegar
Ósk KE lagðist að bryggju. Jón Guðlaugsson
aðstoðarslökkviliðsstjóri sagði að það væri
alltaf mikil hætta á ferðum þegar eldur kvikn-
ar um borð í bátum. „Það myndast oft miklar
eiturgufúr í eldsvoðum út á sjó og viðbúnaður
slökkviliðsins er alltaf mikill við svona að-
stæður. Við komum búnaði okkar fyrir á
bryggjunni og sendum reykkafara niður til að
kanna aðstæður og um leið reykræstum við
stýrishúsið,” sagði Jón í samtali við Víkur-
fréttir.
Einar Magnússon útgerðarmaður og eigandi
bátsins sagði í samtali við Víkurfréttir að
mestu máli skipti að áhöfn bátsins kæmi heil
út úr þessu. „Það skiptir mestu máli að menn-
imir sleppa ómeiddir.” Aðspurður sagði Einar
að skemmdir um borð í bátnum væm miklar.
„Allt sem ætti að vera hvítt er svart og allt
innanstokks er sviðið og ónýtt.”
2
VÍKURFRÉTTIRÁ NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
UÖSMYNDIR: JÖHANNES KR. KRISTJANSSON UÖSMYNDIR: HILMSR BRACI tóRÐARSON