Víkurfréttir - 28.10.2004, Side 6
Q
E
us
0
O
Stafræn
myndavél
hleðslutæki og taska fylgir fritt
með að verðmæti kr. 4.500
Upplausn: 3.2 MegaPixol
Aðdróltur: 40-11 Immm, 15x
Hreyfimyndir: ótakmarkað eftir
stærð minniskorts
Fókus: Normal AutoFocus
X.Xm^cndanlogt, Macro
AufoFocus X. 14-X.Xm
Lokarahraði: 2 til 1/2000 sek. ■ — _ __ _
skiár:4.6cmiiiuicDskiár verð kr. 24.900
Flass: Innbyggt
ISO hraði: 100, 200, 400,
Minnkar rauð augu: Já
Minnisraufar: ló mb innra minni
Secure Digital (SD) eða (MMC)
SAMHÆFNIf
íffxnwkHaii
= allt er framkvæmanlegt
Hringbraut 96 • Sími 421 7755 • www.samhaefni.is • sola@samhaefni.is
FÉLAG ELDRIBORGARA
Á SUÐURNESJUM
Eldey
Kór FEB á Suðurnesjum heldur
tónleifea í Ytri-Njarðvíhurfeirhju, föstu-
daginn 29. október kl. 20.00.
Miðasala við innganginn kr. 500.
Tónlistarfélag Reykjanesbæjar stendur fyrir tónleikum með Kristínu Sædal Sigtryggsdóttur sópransöngkonu í
kvöld, fimmtudaginn 28. október í Listasafni Reykjanesbæjar. Kristín tileinkar tónleikana Guðrúnu Á. Símonardóttur en hún
stundaði hjá henni söngnám þegar Guðrún kenndi söng við Tónlistarskóla Keflavíkur og áfram hjá Söngskólanum í Reykjavík. Á
dagskrá verða lög í anda Guðrúnar og hið hefðbundna tónleikaform brotið upp en með Kristínu leika Lára S. Rafnsdóttir og Þórir
Baldursson á píanó ogJón Rafnsson á bassa.
Mér skilst að þú hafir rödd!
Kristín Sædal heldur minningartónleika um Guðrúnu Á. Símonardóttur í Duushúsum í kvöld
Kristín Sædal er fædd og uppalin í Keflavík og er
spennt að halda sína fyrstu tónleika í Duushúsum
en þar var leiksvæði hennar hér áður fyrr.
„Keflavík er minn heimabær þar sem ég er fædd og
uppalin. Eg er búin að halda tónleika víða á
Suðurnesjum en ekki í Keflavík og finnst afar
sjannerandi og spennandi að halda nú tónleika í
Duushúsum sem voru innan leiksvæðis míns til níu
ára aldurs en foreldrar minir bjuggu á
Klapparstígnum. Við krakkamir lékum okkur ntikið
í slippnum en að vísu fór maður hratt fram hjá
fiskverkunarhúsunum þar sem maður sá drauga
jafnt að rnorgni sem kvöldi í öllum gluggum. Það
er því skemmtileg upplifun fyrir mig að halda nú
tónleika í þessum húsum sem nú em orðin menn-
ingar- og tónlistarhús í Reykjanesbæ”.
Hvernig voru kynni þín af Guðrúnu A.
Símonar?
„Eg kynnist Guðrúnu í Keflavík þegar ég var á sex-
tánda ári. Ragnar Bjömsson skólastjóri
Tónlistarskólans réði Guðrúnu til starfa veturinn
1967 en hún kenndi söng í Keflavík að mig minnir í
tvö ár og stundaði ég söngnám hjá henni bæði árin.
Það er garnan að segja frá fyrstu kynnum okkar
Guðrúnar en þeim gleyrni ég aldrei. Þegar ég kom í
fyrsta söngtímann, unglingsstelpa með tíkarspena
en búin að syngja mikið heima í Keflavík við alls
konar tækifæri tengdum skólanum fannst mér
auðvitað að ég kynni nú töluvert fyrir mér í söng og
tónlist. Eg var þó afskaplega kvíðin og ég man
ennþá eftir þessari kvíðatilfinningu. Þegar ég gekk
inn í tónlistarsalinn kom hún á móti mér með þetta
mikla rauða hár og allar festarnar um hálsinn. Hún
settist við pianóið og lét mig syngja nokkra skala og
spurði svo af hveiju ég væri komin til að læra að
syngja. Ég sagði henni að ég væri búin að vera að
syngja frá því að ég væri smá bam og langaði til að
læra undirstöðuatriðin i raddbeitingu en tók frant að
ég ætlaði mér aldrei að verða óperusöngkona. Hún
hélt áfram að láta mig syngja spyr síðan með
nokkurri ákveðni; var mannna þín að senda þig í
söngtíma..?? Þetta fannst mér hrikaleg ntóðgun og
fauk heldur betur í mig og mótmælti ég kröftuglega.
Er heim kom lét ég ófogur orð fjúka og var ákveðin
í að fara aldrei aftur í tíma til hennar. Hún sagði mér
síðar að hún hefði verið ánægð að finna fyrir skap-
inu í mér strax því hún vissi sem var að söngkonur
yrðu að geta staðið á sínu. Ég var eins og áður sagði
hjá henni í tvo vetur í Keflavík en siðan hætti hún
kennslu suður frá og hóf kennslu heima hjá
sér i Reykjavik. Ég reyndi að sækja
námið til hennar þangað en það varð
frekar sundurlaust. En einn daginn
hringir Guðrún í mig og segir: „Kristín
ég er búin að skrá þig í Söngskólann i
Reykjavík”. Hún sagðist vera búin að
tala við Garðar Cortes og tilkynnt
honum að hún vildi fá í skólann stúlku
með rödd og jafhframt beðið hann
um að hringja í mig. Þetta vafðist
ttú aðeins fyrir mér en hún sagði
að það þýddi ekkert annað fyrir
mig en að láta vaða. Nokkrum
timum siðar hringdi Garðar
Cortes og sagði: „Kristín
Sædal, mér er sagt að þú hafir
rödd... og ég býð þig velkomna
i Söngskólann í Reykjavík.”
Ég var sem sagt ekki prófuð
inní skólann heldur voru orð
Guðrúnar látin standa. I
Söngskólanunt stundaði ég
nám frá 1973 til 1985 þegarég
útskrifaðist með söngkennara-
próf. Fyrstutvo
veturna í
skólanum var ég
hjá Guðrúnu en
eftir það var
ákveðið að ég
færi til Þuríðar
Pálsdóttur þar
sem mér fór ekki
nógu mikið fram.
Þuríður var síðan
ntinn aðalkennari
í Söngskólanum.
Það breytti ekki
sambandi okkar
Guðrúnar, við
vorum alltaf jafn
nánar og hún var
fyrst og fbernst að
hugsa um mína
velferð því hún hafði mikla trú á mér. Þegar ég hélt
fyrstu tónleikana mína þá fór hún með mig til Báru
bleiku og keypti kjól handa mér en hún sagði oft að
ég væri eins og dóttir sín. Eftir að hún féll frá fékk
ég nótnasafhið hennar til varðveislu og lögin sem ég
syng á tónleikunum eru lög sem hún söng ntikið á
seinni hluta tónlistarferilsins, þá meira sem
skemmtikraftur enda var hún feikilega vinsæl. T.d.
má nefria að þegar hún hélt upp á fjörutíu ára söng-
afmælið sitt í „Dúr og MoH” í Háskólabíó þá fyllti
hún húsið fimm sinnum. Ég söng þar ein-
söngsnúmer en ég var þá komin í söngnám til
Þuríðar. Síðustu árin hennar voru frekar erfið. Hún
þurfti oft að flytja og kom það í minn hlut að hjálpa
henni ásamt fleirum góðum vinum. Guðrún var að
sjálfsögðu ekki allra og lenti oft uppá kant við fólk,
hún var ófeimin að segja sína meiningu sem að
sjálfsögðu féll i misjafnan jarðveg. En hún var fyrst
og fremst mikil listakona sem var afar viðkærn og
brothætt.
Hvernig verður dagskráin á tónleikunum í
kvöld?
Lögin sem að við tökum eru blanda af alþjóðlegri
sveiflu og klassískum íslenskum sönglögum því á
þessum tónleikum vil ég bijóta upp það hefðbundna
tónleikaform sem við klassisku söngvararnir
bindum okkur gjaman við. Mér finnst það vera
mjög í anda Guðrúnar. Ég fékk til liðs við mig
frábæra tónlistarmenn sem allir eru landskunnir. I
alþjóðlegu sveiflunni leika með mér þeir Þórir
Baldursson og Jón Rafnsson en það hefur verið
ný upplifun fyrir mig að æfa með þeim og
komast á áður óþekkt flug. Lára
Rafnsdóttir píanóleikari spilar með mér í
íslensku sönglögunum en við höfúm
unnið saman áður, meðal annars fómm
við í siglingu fyrir tveimur árum með skip-
inu The World til Kanada og héldum fjóra
tónleika um borð í jómfrúarferð skipsins.
Eins og áður sagði eru lögin skemmtileg
blanda og má nefha Little Things
Mean A Lot, My Own, Somewhere
OverThe Rainbow, You’ll Never
Walk Alone, Draumalandið, Þú
eina hjartans yndið mitt, Lítill fugl
og Við gengum tvö. Allt eru þetta
lög sem vekja upp hjá mér dýr-
mætar minningar og miklar til-
ftnningar en á þeim byggja þessir
tónleikar fyrst og ffemst.
Tónleikamir verða haldnir í
Listasafhi Reykjanesbæjar,
Duushúsum og heijast kl. 20:00.
Miðaverð er kr. og fer miðasala
fram við innganginn.
6
VfKURFRÉTTIRÁ NETINU I www.vf.is I LE5TU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!