Víkurfréttir - 28.10.2004, Qupperneq 8
VIDHORFSKÖNNUN
M U N D I
Einu skotin á Vellinum
eru afgreidd á
Offiséra-klúbbnum...
Spurt var:
Leysist kcnnaraverkfall á næstu tíu dögum?
Já sögðu 13%, nei sögðu 83% en 4%
sögðu: veit ekki
Spurning vikunnar á vf.is er:
ErVarnarliðið endanlega á fórum?
Farðu inn á vef Víkurfrétta, www.vf.is og taktu
þátt í vikulegri viðhorfskönnun. Niðurstöður
verða birtar í Víkuríréttum vikulega, ásamt
næstu spumingu.
Varnarliðið
ÖÐRU HVERJU berast bréf til Kallsins á kassanum - misgóð. Kallinn fékk bréf
frá góðum manni sem upplýsti að verið væri að segja upp 24 starfsmönnum
flugþjónustudeildar hjá vamariiðinu á Keflavikurflugvelli. Maðurinn segir í
bréfi sínu að þeir sem vinni í deildinni séu varaslökkviliðsmenn fyrir slökkvi-
liðið á Keflavikurflugvelli - séu til taks ef flugslys verður. Þessa starfsemi á að
bjóða út og án efa verða einhverjir endurráðnir.
„STAÐALL Keflavikurflugvallar miðast við að starfsmenn deildarinnar séu til
staðar, enda em þeir flestir með slökkviliðs- og sjúkraflutningsréttindi.
Gaman væri að vita til þess hvort það verði tekið fram í forvali til þeirra
fyrirtækja sem fá að bjóða í þetta verk að þessara réttinda sé krafist. Það
hvílir mikil leynd yfir þessum uppsögnum en þetta var ákveðið sl. föstudag.
Að lokum vil ég þakka umfjöllun þína á uppsögnum hjá slökkviliðinu og
málum er varðar Varnarliðið. Vona að svo verði áfram,” sagði bréfritari
stórgóðu bréfi sem Kallinn fékk á dögunum.
EITTHVAÐ mikið er að gerast hjá Varnarliðinu. Það tipla allir á tánum þama
uppfrá og fólk er logandi hrætt. Hvað er að gerast þama uppfrá? Em línur að
fara að skýrast i málum? Kallinn óskar eftir bréfum frá fólki sem veit eitthvað
um þessi mál.
NJARÐVÍKINGAR ERU gjörsamlega að rústa deildinni. Keflvikingarnirverða
að taka sig allvemlega á ætli þeir að eiga einhverja möguleika. Kallinn hefur
alltaf trú á Keflavík og hvetur alla til að mæta á Evrópuleikinn.
KENNARAVERKFALLIÐ er svo sannarlega farið að hafa áhrif á bömin. Fyrir
stuttu gerðust þeir hrikalegu atburðir að unglingar eyðilögðu leiði og leg-
steina í kirkjugarðinum í Keflavik. Ábyrgðarleysið hefur verið algjört og
Kallinn trúir því ekki að svona lagað sé gert með fullu ráði. Guð hjálpi okkur
öllum!
88-HÚSIÐ og Fjörheimar eiga að gegna stóm hlutverki fyrir unglingana á
tímum sem þessum. Kallinn veit ekki hvort það er gert þessa dagana - en
hann vonar það svo sannarlega og hvetur þá sem þar stjórna til að búa til
verkefni fyrir unglingana.
OG MEIRA AF verkfalli - það er ekki neitt að gerast! Hvað halda samn-
ingsaðilarnir að hægt sé að halda lengi áfram? Þar til veturinn verði gjörsam-
lega ónýtur hjá stómm hluta gmnnskólabarna? Kallinn hvetur
Sandgerðinginn Unni sem situr í samninganefnd að klára málið og semja
áður en allt fertil fjandans.
ANNARS - kveðja, Kallinn@vf.is
SVART
& sykurlaust
Kennarar í verkfalli hreiðra
um sig í húsi bæjarins
Kennarar í verkfalli í Reykjanes-
bæ hafa hreiðrað um sig í 88-
húsinu, menningarmiðstöð ungs
fólks í Reykjanesbæ. Þar er nú
verkfallsmiðstöð þeirra. Reykja-
nesbær leigir húsið undir starf-
semi fyrir ungt fólk. Þykir það
nokkuð skondið að Reykjanes-
bær sé að leigja húsnæði fyrir
kennara sem standa í kjarabar-
áttu við bæinn sjálfan...
Hvaða skilaboð
er verið að senda?
Sveitarfélögin Sandgerði, Garður
og Vogar slitu á dögunum sam-
starfi við Reykjanesbæ í mál-
efnum barnaverndarnefndar.
Þessi uppsögn kom mönnum í
Reykjanesbæ í opna skjöldu, en
sveitarfélögin tala um breyttar
aðstæður. Hvort uppsögn á sam-
starfinu tengist sameiningar-
áformum sveitarfélaga er ekki
vitað en heimildarmaður S&S
segir að með þessari aðgerð séu
sveitarfélögin að senda skilaboð
til sinna sveitunga um að til
sameiningar við Reykjanesbæ
komi ekki...
Hverju svarar Reykjanesbær?
S&S hefur það hins vegar eftir
ónafngreindum heimildum að
það sé til skoðunar í meirihlutan-
um í Reykjanesbæ að slíta sam-
starfi um einhverja af sameigin-
legum stofnunum sveitarfélag-
anna sem þannig gæti komið illa
við minni sveitarfélögin.
Afgreiðsla Víkurf rétta
er opin alla virka daga
frákl. 09-12 og 13-17.
Meðþvíað hringjaí
síma 4210000 erhægtað
velja beint samband við
auglýsingadeild, fréttadeild
oghönnunardeild.
Fréttavakt allansólar-
I hringinn er í síma 898 2222
Útgefandi:
Afgreiðsla, ritstjórn og auglýsingar:
Ritstjóriogábm.:
Fréttastjóri:
Blaðamenn:
Sölu-ogmarkaðsstjóri:
Auglýsingadeild:
Útlit, umbrot og prentvistun:
Hönnunardeild Víkurfrétta:
Prentvinnsla
Dagleg stafræn útgáfa
Skrifstofa Víkurfrétta
RITSTJÓRNIN
Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319
Grundarvegi 23,260 Njarðvik, Sími 4210000 Fax 4210020
Páll Ketilsson, sími 4210007, pket@vf.is
Hilmar Bragi Bárðarson, sími 4210002, hilmar@vf.is
Jóhannes Kr. Kristjánsson, simi 4210004, johannes@vf.is
Þorgils Jónsson (íþróttir), sími 4210003, gilsi@vf.is
Jónas Franz Sigurjónsson, sími 4210001, jonas@vf.is
Jófríður Leifsdóttir, sími 4210008, jofridur@vf.is
Jón Björn Ólafsson, sími 4210014, jbo@vf.is
Víkurfréttirehf.
Kolbrún Jóna Pétursdóttir, s: 4210005, kolla@vf.is
Anita Hafdís Björnsdóttir, s: 4210013, anita@vf.is
Þorsteinn Kristinsson, s: 4210011, steini@vf.is
Prentsmiðjan Oddi hf.
www.vf.is og vikurfrettir.is
Stefania Jónsdóttir, sími 4210012, stebba@vf.is
Guðrún Karitas Garðarsdóttir, sími 4210009, gudrun@vf.is
Aldís Jónsdóttir, sími 4211010, aldis@vf.is
Lögmál markaðarins
„Af hverju minntist þú ekki á okhur í greininni þinni” spurði
eigandi pizzustaðarins sem ekki var getið um í síðustu viku. Ég
svaraði í hreinskilni að krakkarnir vildu eldd pizzurnar hans jafnvel
þó ég væri sísuðandi í þeim að breyta til, svona endrum og eins. Við
ræddum um hugsanlegar ástæður þess að ungdómurinn minn
vildi ekki pizzurnar hans og ákváðum að komast að hinu sanna. Ég
ákvað að setja af stað markaðsrannsókn á heimilinu enda hafði ég
skilað greinagóðu verkefni um markaðsmál í rekstrar- og
viðskiptafræði í Háskóla Islands sl. vetur. Sjálfur var hann með
nýjar fféttir af markaðsherferð sem þeir hófu nýlega og sagði að
níutíu prósent tólf ára unglinga hefðu komið í ffía veislu hjá Pizza
67 á undanförnum vikum.
Ég reyndi að rifja upp helstu kenningar og reglur úr ffæðunum og
komst að því að ég mundi þær ekki. Bækurnar mínar voru komnar
niður í geymslu, jafnvel þó að bækur meistara Kotlers ættu að vera í
hvers manns hillu. Að minnsta kosti þeirra sem eru í bisness. Ég
hugsaði með mér að það hlyti að skipta verulegu máli í viðskiptum,
að vera í nálægð við kúnnann eins og Jóhannes í Bónus og þekkja
væntingar og vonir markaðarins. Svo ekki sé nú talað um að vera
sýnilegur í auglýsingum! Ég minnist þess sem ritstjóri þessa blaðs
ítrekaði við mig í síðustu viku, að vera ekki með svona langan pistil.
„Stutt er betra” sagð’ann en meinti auðvitað að ég tæki of mikið
pláss ffá auglýsendum.
„Hvers vegna viljið þið ekki pizzurnar hans Jóa á 67” spurði ég
krakkana mína íbygginn á svip og undir niðri grunaði þau að eitth-
vað væri í aðsigi. Þau svöruðu um hæl að þær væru svo dýrar og
sjaldan tilboð í gangi. Engu öðru um að kenna. Hafði ekkert með
bragð og gæði að gera. Það þurfti svo sem engan prófessor til að
komast að hinu sanna, unglingarnir eru með þetta á hreinu. Hafa
hag foreldranna að leiðarljósi. Mikið er gott að eiga svona indæla
krakka.
Mig grunar þó að Jói hafi ekki verið neitt sérstaklega latur við að
auglýsa en vissulega er verðið alltaf álitamál. Svo afskaplega afstætt.
Ég segi að dýrðleg pizza má vera dýr! Aðrir staðir hafa svo sem
verið duglegir að minna á sig og þau á Langbest hafa t.d. verið sér-
lega dugleg að styrkja íþróttalífið í bænurn, allt ffá fýrstu tíð. Svona
lagað gleymist oft þegar samkeppnin er annars vegar. Við látum
glepjast af núinu, sem ákvarðast oftar en ekki af börnunum okkar
og stýripinnum markaðarins. Það eru menn sem hafa lesið meis-
tara Kotler. Ég er hins vegar á því að breyta frá norminu og snúa á
kenningarnar. Um helgina var veislan í boði Jóa á 67 og ógleyman-
leg á allan hátt. Á morgun er ný dögun.
fimmtudags
uu
FRAMSÖKNARFLOKKUftlNN
Fundur verður haldinn í Framsóknar-
félagi Reykjanesbæjar n.k. laugardag kl. 11.30
í húsi félagsins að Hafnargötu 62.
□agskrá:
Kosning fulltrúa á kjördæmisþing
Stjórnin
WJ
8
VfKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!