Víkurfréttir - 28.10.2004, Page 10
Tilboðsdagar
28. okt. - 12. nóv.
Tilboð 1:
Fótsnyrting, litun og plokkun kr. 3.990,-
Tilboð 2:
Fótsnyrting og handsnyrting kr. 4.400,-
Tilboð 3:
Andlitsbað, litun og plokkun kr. 5.300,-
Verið velkomin,
Brynja Ástráðsdóttir
snyrtifræðingur
HAr- og
Snyrtistofa
S: 421 2195
Ýsurúllur fylltar með
rjómaosti og apars
kr. kg.
YTT, NYTT
skur saltfiskréttur
>o
Hringbraut 92
Fiskbúðin
Vík
Sími 421 4747
Teppi á stígaganga
Nú er rétti tíminn
til að teppaleggja
stigaganginn fyrir jólin.
Við mælum og gerum
tilboð í efni og vinnu,
þér að kostnaðarlausu.
Mikid úrval
Hringdu í síma 421 7090
Opið: mán. - fös. 8-12 & 13-18, lau. 9-13
Iðavöllum 7, 230 Reykjanesbær C| f C A D ,
Sími 421 7090 Fax 421 7091 iLlð/lll fj/Ál C
E-mail: flg@simnet.is ttW.JgMT
> Menningardagur í kirkjum á Suðurnesjum tókst vel:
kirkjugestir
ó menninqarlequm nótum
Mcnningardagur í kirkj-
um á Suðurnesjum
var haldinn á sunnu-
dag og var fjölbrcytilcikinn í
fyrirrúmi. Dagskráin hófst kl.
10 um morguninn í Kálfatjarn-
arkirkju og lauk kl. 10 um
kvöldið í Grindavíkurkirkju.
Þetta var í annað sinn sem
Menningardagar eru haldnir
en örugglega ekki í það síöasta.
Um 1100 rnanns
mættu í kirkj-
urnar til að sjá
menningarupp-
ákomur af öll-
um gerðum og
má þar nefna
Ijóðalestur, dæg-
urlagasöng og
erindi af ýmsum
toga.
Þar niá nefha fyrir-
lestur Jóns Böðv-
arssonar í Njarð-
víkurkirkju um
Sveinbjörn Egils-
son, skáld og
menntaskólarektor.
Komst Jón að þeirri
niðurstöðu að Svein-
björn hafi verið
mesti málamaður
sem Island hefur alið
og að „Pereatið” svokallaða hafi
verið mikið hneyksli.
I Ytri-Njarðvíkurkirkju söng
Magnús Þór Sigmundsson eigin
lög, en í Keflavíkurkirkju flutti
Hákon Leifsson erindi um trúar-
lega tengingu í tónlist keflviskra
poppara. Þar steig Rúnar nokkur
Júlíusson á stokk sem leynigestur
og flutti óð um móður sína sem
snerti viðstadda afar djúpt. Hann
tók einnig lagið „Elskaðu náung-
ann” ásamt kór Keflavíkurkirkju.
í Útskálakirkju sagði sr. Sigurður
Sigurðsson,
vígslubiskup, frá
kynnum sínum af reimleikum á
Útskálum þegar hann var þar
gestur í æsku. Kirkjukórinn flutti
að lokum tvo sálma.
1 Hvalsneskirkju flutti Matthías
Johannessen eigin ljóð og texta
og kallaðist á við Hallgrím Pét-
ursson með þeim.
I Kálfatjarnarkirkju hélt Ómar
Smári Armannsson erindi um
selin i heiðinni og lífið þar í þús-
und ár. I framhaldinu var þjóð-
lagasöngur og klassísk verk flutt
með miklum ágætum.
Bjami Arason fyllti svo Kirkju-
vogskirkju um kvöldið þar sem
hann söng lög sem Vilhjálmur
Vilhjálmsson gerði vinsæl.
Mannfjöldinn var þvílíkur að
einhveijir þurftu að hlýða á
fallegan söng Bjama fyrir utan
dyrnar. Það kom ekki að sök
því tónleikagestir skemmtu sér
allir afar vel.
Menningardegi lauk formlega
í Grindavíkurkirkju þar sem
um 300 manns mættu. Þar
flutti séra Jóna Kristín Þor-
valdsdóttir erindi um samspil
íþrótta og kirkju og tónlistar-
fólk úr hópi íþróttamanna,
þau Gígja Eyjólfsdóttir og
Jón Agúst Eyjólfsson sungu
og léku á gítar.
Kristján Pálsson, formaður
Ferðamálasamtaka Suður-
nesja og einn af aðstand-
endum menningardagsins sagði
að þegar hefðu heyrst áskoranir
um að hátíðin yrði haldin i þriðja
sinn að ári.
Alþjóðaleg kaffíbarþjónakeppni haldin í Reykjanesbæ
Alþjóðlega kaffibarþjónakeppnin Nordic
Baristacup fer fram í húsakynnum Kafftárs i
Reykjanesbæ dagana 28. til 30. október næstkom-
andi. Þetta er í annað skiptið sem keppnin er hald-
in. Norðmaðurinn Tini Wendelboe heimsmeistari
kaffibarþjóna 2004 verður gestur á keppninni.
Fjórir keppendur eru í hveiju liði ásamt liðstjóra.
Liðin fá svokallaða gullkistu fulla af íslensku hrá-
efni sem þau vinna úr í keppninni. Dæmt verður út
frá brennslu og blöndun kaffis og hvemig hráefnið
er borið á borð fýrir dómara. Hópurinn mun heim-
sækja Mjólkursamsöluna, Gullfoss og Geysi og
komið verður við í mjólkurbúi. Einnig mun hópur-
inn fara í Bláa Lónið og skoða brúna á milli heims-
álfa á Reykjanesi. Fyrir hönd Islands keppa þau
Njáll Björgvinsson, Sigga Dóra Halldórsdóttir,
Hjörtur Matthías Skúlason og Asa Jelena Petter-
son. Liðstjóri íslenska liðsins er Ragga Gisladóttir,
en þetta er í fyrsta skiptið sem ísland tekur þátt i
Nordic Baristacup.
10
VfKURFRÉTTIRÁ NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
UÓSMYNDIR: ÞORGIIS JÖNSS0N