Víkurfréttir - 28.10.2004, Qupperneq 11
Andlát:
INGIBJÖRG SALÓME
DANIVALSDÓTTIR (LÓA)
Ingibjörg fæddist 29.12.1913.
Hún lést 21. október sl.
Foreldrar hennar voru hjónin
Danival Kristjánsson bóndi á
Litla-Vatnsskarði, Laxárdai í
Austur Húnavatnssýslu, f.
15.02.1842-d. 25.08.1925 og
Jóhanna Jónsdóttir húsfreyja,
f. 30.10.1866-d. 06.07.1931.
Danival og Jóhanna eignuðust
átta börn saman en Danivai
átti einnig tvær dætur af fyrra
hjónabandi. Ingibjörg var
yngst svstkinanna en þau eru
nú öll látin.
Ingibjörg giftist Guðmundi
Stefánssyni vélstjóra íYtri
Njarðvík, d.17.06.1977. Þau
eignuðust sjö böm og sex
þeirra eru á lífi. Stefán Ingi f.
01.09.1938, JóhannValur f.
06.03.1940, Kristín f. 01.11.
1942, Gunnar Öm f. 29.04.
1945, Haukur Viðar f.
09.11.1947 og Ingigerður f.
27.12.1956.
Ingibjörg bjó fyrstu ár ævi
sinnar í Laxárdalnum en flutt-
ist til Kristínar, eldri systur
sinnar, sem bjó þá á Reykja-
strönd í Skagafirði, eftir að
faðir þeirra lést. Hún gckk í
Kvcnnaskólann í Reykavík en
hugur hennar hneigðist ætíð til
frekari mennta. Þegar hún var
um tvítugt kom hún suður í
Njarðvíkur. Þar vann hún fyrir
sér um tíma en gekk svo í
hjónaband með Guðmundi
Stefánssyni.
Ingibjörg var mjög virk í fél-
agsmálum í Njarðvík. Hún var
cin af stofnendum Kvenfélags
Njarðvíkur og var síðar gerð
að heiðursféiaga. Hún var
einnig ein af stofnendum
Framsóknarfélags Njarðvíkur,
fyrsti formaður þess og síðar
heiðursfélagi. Hún gegndi
ýmsum trúnaðarstörfum í
hreppsnefnd Njarðvíkur um
árabil sem fulltrúi Framsókn-
arflokksins. Ingibjörg var virk-
ur félagi í stúkunni Vík i Kefla-
vík og hafði einnig umsjón með
starfi barnastúkunnar Sumar-
gjafar í Njarðvík, ásamt Kar-
vel Ögmundssyni og Sigríði
Hafliðadóttur. Sálarrannsókn-
arfélag Suðurnesja var stofnað
árið 1969 en Ingibjörg var einn
af aðalhvatamönnum að stofn-
un þess, sat í stjóm félagsins
árum saman og sinnti for-
mennsku þess. Síðar var hún
gerð að heiðursfélaga.
Ingibjörg bjó öll sín búskap-
arár í Stefánshúsi við Borgar-
veg í Njarðvík. Síóustu árin átti
hún einnig samastað á heimili
dóttur sinnar, Ingigerðar.
Ingibjörg verður jarðsungin
frá Ytri-Njarðvíkurkirkju
föstudaginn 29. október nk. kl.
14.
Fyrstir með
þœgindin!
Upplifðu
fyrstu lituöu einnota daglinsurnar ó markaðnum
Kannaöu mólið hjó okkur
/•"■i >ACUVUL
rmimn -d
iS Opticol StucJio
1 GLERAUGNAVERSLUN KEFLAVÍKUR
HAFNARGÖTU 45 • SÍMI 421 3811
Smáauglýsingar í VF berist fyrir kl. 17 á þriðjudögum
MLAZDA helgi lijá SG bíluiim
föstudag og* laugardag frábær sýningar tilboð
á MAZDA 6, MAZDA 3, MAZDA Wagon og MAZDA DOUBLE.
Kíktii við og kynntu þér tilboðin allt að lOOoOOO kr afsláttaro
MAZDA RX 8 var valinn sportbíll ársins 2004 og verður hann til sýnis hjá okkur um helgina.
^421 4444
Brekkustígur 38 Reykjanesbær
sacars@sacarrental.is
VtKURFRÉTTIR I 44.TÖLUBLAÐ2004 I FIMMTUDAGURINN 28. OKTÓBER 2004 111